Bjarmi - 01.03.1923, Blaðsíða 3
BJARMl
31
biblíurit í einu, frá upphafi til enda,
færðu meiri og gleggri skiltiing á efni
þess. Og hafirðu tilgang ritsins í huga
er þú lest það, munu mörg torskilin
orð og hugsanir verða þjer auðskild-
ari, er þú skoðar þau í ljósi heildar-
innar. Á þennan hátt færðu miklu
gleggra heildar-yfirlit yfir þau við-
fangsefni kristins manns, sem ræðir
um í ritinu, svo að þjer verður auð-
veldara að heimfæra þau til þín sjálfs
og hafa þeirra full not. Samfeldur
lestur heilla biblíurila verður þannig
til að vekja áhuga þinn á lestri Guðs
orðs og örfa skilninginn.
4. Lesta biblíu-kafla.
Margir lesa kafla og kafla í biblí-
unni, hjer og hvar. Skiftingin í kapí-
tula og vers gerir slikan lestur auð-
veldari. Guðs orð er óþrjótandi auð-
æfasafn, og hvarvelna er þar perlur
að finna, sje þeirra leitað af rjettum
hvötum.
Þessi ósamstæði lestur verður þó
oft fretnur óuppbyggilegur, og með
þeim hætti fáum vjer ekki nógu sterka
hvöt til að kryfja orðið rækilega til
mergjar.
Þú verður að nema staðar við
lestur orðsins, svo að þú getir til-
einkað þjer það og sál þín fái af því
næringu. Einkum skaltu nema staðar
▼ið
Dýrðlegu versin,
sem hrífa hjarta þilt. Sál þín eignar
sjer þau. Þau líða þjer ekki úr minni
og þú getur notað þau. Þau fylgja
þjer í önnum dagsins, verma hjarta
þitt og eru ljós á vegum þínum.
Sá, sem þannig tileinkar sjer hin
dýrðlegu vers, hann safnar sjer mikilli
auðlegð af dýrum perlum.
' 5. Lestu œfisögur þeirra manna sem
biblian segir /rá.
í bibliunni kynnumst vjer afar-
mörgum og harla ólíkum mönnum.
Vjer sjáum þá ýmist á vegum synd-
arinnar eða hjálpræðisins. Og margt
er af þeim að læra. Líf þeirra og
hegðun, freistingar og sigurvinningar
— alt er það fræðsla til sannrar
mannþekkingar og leiðbeiningar um
handleiðslu Guðs. Þar gefst oss eink-
um að sjá hjálpræðis-ráðstafanir Guðs
meðal mannanna. Vjer lærum bezt
að þekkja lífið og baráttuna f Guðs
riki, með því að kynna oss rækilega
æfisögur hinna miklu Guðs manna i
biblíunni; því að sögur þeirra eru
þættir í framþróunarbaráttu Guðs rikis.
Hvorttveggja verður svo minnisstætt,
ýmist til viðvörunnar eða eftirbreytni.
Lestu um einn og einn i senn og
leitaðu uppi hina ýmsu kafla, er um
þá hljóða, hvern um sig. Fylgdu þeim
í sorgum þeirra og gleði á undur-
samlegum vegum Guðs og lærðu af
þeim. Með þeim hætti getur þú gengið
f Guðs skóla hjá Abraham og Móse,
Samúel og Davíð, Jesaja og Jeremía,
Maríu og Jóhannesi, Pjetri og Páli.
Umfram alt skulum vjer þó daglega
setjast við fælur frelsarans og hlýða
á orð hans og virða fyrir oss dá-
semdarverk hans.
6 Lestu um biblíuleg orð og efni.
Stundum getur það verið gagnlegt,
að lesa um biblíuleg meginorð og
efni, svo sem synd, sorg, þrengingar,
dauða, frelsi, trú, kærleik, afturhvarf,
eilíft líf. Þá leitum vjer uppi þau um-
mæli, er lúta að þessum sjerstöku
efnum, hverju um sig, berum þau
saman, skoðum þau frá ýmsum hlið-
um og leitumst þannig við að gera
oss sem allra gleggsta grein fyrir
Guðs vilja í því efni, sem um er að
ræða. Þessi sjerstöku viðfangsefni
geta þá orðið oss að leiðarstjörnum,
sem lýsa og verma, svo vjer fáum
löngun og mátl til að gera Guðs vilja.