Bjarmi - 01.03.1923, Síða 15
BJARMI
43
liala mjallahvita velliii{»a sjáll', og taka
pá ekki af sjer á samkomunni. Konurnar
heilsuðu henni með handabandi, og þá
sáust fljótt blettir á vetlingunum. Þær
fóru að smátaka eftir þessu, konurnar,
og eftir fácina fundi gat liún hætt að
koma með hvíta vetlinga, því að þá voru
þær allar með hreinar hendur.
Þetta er eitt dæmi af ótai, en sýnír þó
vcl sannleikann.
Vjer sjáum ekki synd vora og óhrein-
leika fyllilega, nema í samanburði við líf
lians, sem einn var hreinn. »Fauskurinn«
er fullur sjálfsálits, uns hann liggur við
rætur »græna trjesins«. Sýnum heiminum
liugsjónir, ef vjer viljum hjálpa honum
til sjálfsprófunar. — Huldar syndir vorar
koma í ljós andspæuis Kristi. Geislarnir
frá nálægð hans sýna best, hve svartar
þær eru.
Hver, sem íliugar i næði dýrð Drott-
ins, samkvæmt bibiíunni, þá dýrð, sem
hann sjálfur getur hlotið í samfjelagi
Krists, fer að hræðast synd sína. Hún
verður ægileg og óþolandi þær stundir.
Þegar Jcsajas sá dýrð Guðs, hrópaði
hann: »Vei mjer! Það er úti um mig!«
Þegar Símon Pjetur sá dýrðargeisla
Krists, mælti hann: »Vík frá mjer, því
að jeg er syndugur maður«. — Biblían
er wnytsöm til umvöndunar«.
Vertu mjer samferða dálítið enn. Ritn-
ingin er einnig wnytsöm til leiðrjettingar«.
Jeg held reyndar að orðið »leiðrjetting«
nái ekki hugsun postulans. »Til við-
reisnar« væri betra. Sá, sem liggur lam-
aður, þarf meira en »l,eiðrjettingu«, hann
þarf hjálp frá öðrum, og innri þrótt, til
að rísa aftur á fætur. Og biblían segir
svo vel frá þvi, nefnir mörg dæmi og
fullyrðir, að þú og jeg getum einnig orð-
ið þess dæmi. — Hefir þú reynt það?
Hugsaða þjer að einhver þeirra, sem
verða »vinstra meginw daginn mikla, þeg-
ar reikningarnir eru úrskurðaöir að íullu,
liti við, og sæi sem í spegli tvær myndir,
mynd sjálfs sín, eins og hann hefði getað
orðið, eflir hugsun Guðs, og sanna mynd
sjálfs sín, eins og hann þá er. — Gætir
þú hugsað þjer, að nokkur átakanlegri
sálarkvöl gæti mætt þjer sjálfum, en að
sjá þær tvær myndir — um seinan? —
Þú raátt trúa því, að sú sjón er full
átakanleg í dag, þótt enn sje tími til
breytinga, enn sje viðreisn að fá.
Aðgættu texta minn að nýju. Fyrst og
fremst birtir ritningin dýrðina, en um
leið birtir hún auvirðingu mína. En því
næst sýnir hún ráð til viðreisnar,- —
Reyndu þau! — Reyndu þau? — Ættum
við heldur að loka biblíunni, neita að
hlusta á l'yrirmæli hennar og skoða öll
ráð hennar sem ófullnægjandi og gagns-
lílil? Hvar á jeg þá að finna ráð til við-
reisnar syndugum manni? Getur þú sagt
mjer hvert jeg á að leita?
Jeg fjekk í gærkvöldi brjef frá manni,
fult af kveinstöfum; hann er einn af ótal
mönnum, sem syndin hefir lamað og
gjörspilt. Getur þú geíið mjer ráð handa
honum, ef jeg loka bibliunni? Hvar eru
annarsstaðar . hagkvæm viðreisnarráð
handa þrekiausum syndara, sem gamall
vani og illur hefir bundið ótal böndum?
Jeg gæti litið í bækur mínar. Ekki er
til mikils að fá manninum náttúrufræði
eða skáldskaparrit. En þarna er stór, vís-
indaleg, siðfræði í mörgum bindum. Þar
er lýst alls konar glæpum, en hanu hefir
sjeð þá, og þekkir þá betur en prófessor-
inn, sem samdi bókina. Maðurinn þarf
ekki lýsingu af syndinni, heldur ráð til
að losna úr fjötrum hennar, og fá sam-
viskufrið. En siðfræðin ein þekkir ekki
þau ráð. — Biðum við, hjer er fræg bók
um hjálpsemi. Ætli hún geti ekki gefið
góð ráð? — Ekki líst mjer á það. — í
henni stendur: »Það er ekki til neins að
dylja þá staðreynd, að það er ekkert ör-
ugt ráð við spiltu hjartalagi«. — Maður-
inn kvartaði einmitt um »spilt hjartalag«,
svo þá er engin viðreisnarvon! Á jeg að
skrifa honum á þessa leið: »Það er von-
lausl um þig, þvi að engin örugg ráð eru
til að losna við spilt hjartalag«. — Sárt
er að þurfa að segja það við einn mann,
en sárara þó að segja hið sama við alla
hina, sem hafa wspilt hjartalag«. — Eru
þá engin örugg ráð út úr syndamyrkri?
Aldrei getur þú öðrum bætt, aldrei getur
þú hlotið samviskufrið, aldrei getur þú
fengið siðferðisþrótt? Væri ekki jarðlíf
vort óttalegt, ef þetta væru æðstu sann-
indin?
En það eru engin sannindi!
Það eru til örugg ráð, margreynd og
fullsönnuð, ótal menn geta borið vitni
nm það. Líttu á biblíuna, þar er hand-
bókin, sem lýsir viðreisnar- og endur-
lifgunar-ráðum náðarinnar.
(Niöurl. næst.].