Bjarmi

Volume

Bjarmi - 15.01.1928, Page 1

Bjarmi - 15.01.1928, Page 1
BJARMI ■= KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ XXII árg. Reykjavíb, 15. jan. 1928 3. tbl. „Vjer höfum sjeð og vitum, að faðirinn hefir sent soninn, til að vera frelsari heimsins". — I. ]óh. 4, 14. Aðalmunur gamallar og nýrrar guðfræði Erindi flutt á sóknarnefndafundi í Rvik 19. október 1927. Af Sigurbirni Á. Gislasgni. Smáleturskaflarnir eru þó síðari viðbót. Þegar rætt er um trúmál, kvarta ýmsir um, að of mikið sje gert úr ágreinings-atriðunum; menn eigi að sameinast um aðalatriðin, en láta öll aukaatriði liggja í þagnargildi. Lang- I oftast er þó ekkert samkomulag um hvað sjeu »auka-atriði«, en venjan sú, að enginn kannist við að hann sjáljur hafni neinum aðalatriðum kristinnar trúar. Minsta kosti þykjast prestar og aðrir trúmálamenn jafnvel kristnir eftir sem áður hvað mörgu sem þeir hafna af kristinni trú feðra sinna. Aðrir líta svo á, að of lítið sje rætt og ritað af stillingu og þekkingu um ágreiningsmálin í trúarefnum. »Slagorð« og stóryrði heyrist að visu á báðar hliðar, en þau skýri í raun- inni lítið annað en lundarfar þeirra, sem nota þau. — Æðimörgum er ekki vel ljóst hvað er sameiginlegt og hvað ekki með þeim tveim stefnum innan kirkju vorrar, sem kenna sig við gamla og nýja guðfræði, og jafnvel hætt við, að guðíræðingarnir sjálfir ætli hvorir öðrum þær skoðanir, sem þeir hafi ekki. Er þá miklu æskilegra og líklegra til góðs árangurs, að menn tali sam- an hreinskilnislega um ágreinings- atriðin, en að hvorir gangi á snið við aðra, og sendi hnútur í heimunnar skrípamyndir af skoðunum hinna. Ress vegna tókum vjer, forgöngu- menn þessara fundahalda, þetta mál á dagskrá, og reyndum að gera ráð- stafanir til að þeir menn, sem fram- arlega standa hjá báðum stefnum, gætu fengið tækifæri til að lýsa skoð- unurn sínum á aðalmismun gamallar I og nýrrar guðfræði. Hitt var ekki tilætlunin, að bera eld að þeim trú- máladeilum, sem þegar geysa í landi voru, nje knýja aðra hvora til að falla frá skoðunum sínum. Vjer mun- um flestir, sem til máls tökum hjer, vera þegar svo sannfærðir í þeim efnum, að orðadeilur hagga ekki sannfæringu vorri um gildi þeirrar trúar, sem vjer kunnum að eiga. En hitt getum vjer gert, að tala hrein- skilnislega um hvað aðgreini og hvað sameini þessar fyrnefndu stefnur; og sje þannig talað frá báðum hliðum, ætti oss að vera auðveldara að kom- ast hjá að búa til skrípamyndir af skoðunum hvorra annara, — og þeim, sem óákveðnir eru, er þá hægra að átta sig á, hvorri stefnunni þeir vilji fyigja- Vandalaust verk er það ekki, að I hefja slíkar umræður.

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.