Bjarmi - 15.01.1928, Blaðsíða 7
BJARMI
23
af nokkurri persónulegri kynning við
Jesúm á æskuárum þeirra.
Lúkas telur líka mæður þeirra
beggja hafa verið vini og kunningja
góða. Einnig má og vel hugsa sjer,
að æðri opinberun um þetta hafi
veizt Jóhannesi.
Jeg skil ekki heldur hót betur þá
uppástungu eða tilgátu, að Jesús hafi
fengið guðdóm sinn eða guðdóms-
fylling sína við skírnina hjá Jóhann-
esi, eða við ummyndunina á fjallinu
eða upprisuna frá dauðum fremur
en við getnað sinn; heldur finst og
skilst mjer þvert á móti, bæði eðli-
legast og aðgengilegast, að taka getn-
aðarfrásögurnar gildar og aðhyllast
þær framar öllu öðru.
Er það meðal annars fyrir þá sök,
að með því er auðveldara, að hugsa
sjer fulla sameining eða samruna
Guðs og manns eða hins guðlega og
mannlega, og skoða Jesúrn og Krist
eina og sömu, óskifta persónu, en
ekki Jesúm Krist, sem tvöfalda eða
tvíkiofna veru, eins og mjer endi-
lega finst vera, ef aðhylst er tilgátan
um, að guðsfyllingin muni hafa veizt
Jesú fyrst við skírn hans eða um-
myndun eða upprisu eöa jafnvel
himnaförina. Þær tilgátur gefa mjög
svipaða hugmynd um Jesúm frá
Nazaret og hugmynd sumra guðspek-
inga nú um Kristnamurti, sem þeir
vænta, og trúa sumir, að Kristur,
hinn himneski, mannkynsfræðara kalla
þeir hann, eigi eða muni birtast í,
og sje jafnvel kominn í nú þegar. —
Jeg get ekki annað en látið það upp-
skátt, að jeg get ekki með nokkru
móti felt mig við eða aðhylst neitt
af þessu, heldur að eins það 1900
ára gamla, um getnað og guðdóm
Jesú Krists, sem frá upphafi hefir
verið »Logos« bjá Guði, og alveg
sjerstakur »Sonur hins hæsta« frá
getnaði og fæðing hans. Petla gamla
er líka það eina, sem nokkur sögu-
leg rök og sögulegar opinberanir eru
fyrir. Og þau rök eru þannig löguð
að sje nokkuð við þeim haggað, þá
verður úr þeim illþolanlegt hneyxli
og xuðlast.
Eða svo er það fyrir mínum huga
og minni tilfinning, eins og þegar
er sagt.
En dýrðar- og dásemdar-opinber-
anirnar við skírn Drottins, ummynd-
un hans og upprisu, finst mjer harla
eðlilegar og viðeigandi yfirlýsingar
og staðfestingar föðursins á himnum
um það, að hann sje hans einka
elskulegur sonur frá upphafi. — Já,
mjer finst, að allar þessar dýrðar-
opinberanir og alt hið dásamlega,
sem um og af Jesú Kristi er sagt í
öllum guðspjöllunum eigi við og beri
bezt vitni um guðlegan uppruna,
getnað og fæðing hans.
Og ofan á alt þetta finst mjer, að ef
rengja má og hafna getnaðar- og
fæðingar-frásögum Matt. og Lúk.,
af því að þeir hafi farið þar með hjá-
trú og hindurvitni, blindir af fáfræði
og auðtrygni, þá liggi einnig nærri,
að rengja jafnvel flest annað hja þeim,
og trúa þá ekki öðru eða meiru en
hverjum gott þykir.
En Guð varðveiti mig og aðra frá
því 1
Mjer blöskrar svo og svíður margt
talið og skritið um Krist nú hjá oss,
að jeg get ekki stilt mig um, að gera
þessa grein trúar minnar opinskáa.
Ó. V.
Gjaflr afkentar Bjarma s
Til Elliheimilísins: N. N. Rvík 100 kr.
Sra Ó. V, 10 kr.
Til kristniboðs: Sra Ó. V. 10 kr., Ó. B.
Akrancsi 5 kr., S »10°/o hagnaður af refa-
eldi« 100 kr. — Þeirri gjöf verður varið
til styrktar staríi Ólafs Olafssonar kristni-
boða hjerlendis. [Meira næst].