Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.10.1929, Blaðsíða 4

Bjarmi - 15.10.1929, Blaðsíða 4
184 BJARM' ritstjóri »Vísis« var svo hlálegur, að reka brott ótta lesendanna, með því að bæta við greinina : »Vísi« er ekki ant um viðgang kaþólskrar trúar hjer á landi, og fyrir því sjer hann ekki ástæðu til að neita um rúm fyrir ofanskráða grein«. — Annað blað islenskt var að segja frá því, að sænskir kennimenn hefðu rokið gramir í blöðin, er þeim barst sú fregn, að fyrst hefði verið ætlað að kenna kaþólska biskupinn á ís- landi við Lund, — en þá frjettist frá Danmörku, að a hefði dottið aftan af sögunni; það befði aldrei átt að kenna hann við Lund, heldur við Lunda, — en hætt við það »vegna lundanna í Lundey«, segir sagan hjer heima. íslenskir kennimenn hafa hinsvegar hvergi andmælt Hólabiskups-nafnbót- inni, það mega þeir eiga, og fara varla til þess úr þessu, er þeir lesa áminningar síra Boots í fyrnefndri »Visis«-grein. — En löng er leið og tafsöm fyrir Landakots-biskup, að vitja um Lunda austur f Litlu-Asíu, og má hann því vel við una, að sleppa við það ferðalag. — Ekki hefir frjettst hvort nokkurt »uppi- stand« hefir orðið þar eystra út af ölium þessum lunda-misskilningi. Gömul vers. (Aðsend). Geymdu dyrnar, Drottinn minD, dásamlegur með kraftinn þinn, Rlugga, veggi, gólf og rúm, Guðs á meðan stendur húm. Gæskuríki Guð eilifl, gæsiu pinnar undir væng oss jeg fel með önd og lífi, út af mig svo legg í sæng. Augað syfjar aldrei þitt, innsiglaðu rúmið mitt helgra engla hlifðarskiidi, hjartans ástin Jesú mildi. Jesús vaki mjer jafnan hjá, Jesús, sem allir treystum á. Jesús sje hjálp, Jesús sje vörn, Jesús varðveitir öll sín börn. Jesús sje skjól, Jesús sje ijós. Jesúm til fylgdar sál min kjós. Ó, Jesús, vertu mín yndisrós. Brúðhjóna-ósk. Jesús ykkur jafnan leiði, Jesús ykkar vinur sje, Jesús veginn jeg bið greiði, Jesús ykkur hugsvali. Jesús gefur gleði best, græði Jesús sárin flest. Jesús huggi’ í hretum nauða. Hjálpi’ hann j’kkur í lífi’ og dauða. Vertu bæði’ i vöku’ og blund vafin Jesú örmum, standi hver hans æð og und opin pjer á dauðastund. R. K. K. F. (»Resande Köpmáns Kristiliga Förening«) lieitir kristilegt verslunarmannafjelag í Svípjóð. Pað hjelt 10 ára afmæli sitt i vor. Meðal annars hefir pað tekið sjer fyrir hendur að út- vega bibliur í öll gestaherbergi gistihúsa í Svipjóð. Pað byrjaði á pví starfi árið 1923, og gaf pað ár bibliur í 23 gistihús Gautaborgar, 906 herbergi samtals. Síðan hefir verið haldið áfram, með aðstoð góðra manna, og búið að gefa nú bibliur í rúm 4000 heibergi i 138 gistihúsum í 19 borgum. — Hafa langflestir gestgjafar tekið pessu mjög vel, og sumir segja að pað sje bcinlinis »praktiskt« fyrir gisti- húsin, pví framkoma gestanna hafi verið prúðari par, sem bibliurnar eru komnar, en áður var. — En ekki er takmarkinu náð, pví að gestaherbergi i gistihúsurn Svía eiu alls um 25 púsundir. Samskonar fjelagsskapur í Bandarikj- unum er kendur við Gídeon. Hafa »Gíd- eonítar« nýlega sent fulltrúa sinn um- hverfis jöiðina, til að koma biblíum i aðal gistihús stórborga peirra, sem lang- ferðafólk heimsækir mest.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.