Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.07.1931, Blaðsíða 4

Bjarmi - 01.07.1931, Blaðsíða 4
100 BJARMI r fyrir hönd fundarmanna sra Friðriki Hallgrímssyni starf hans í útvarpsráðinu. Kl. flutti sra Ásm. Guðmundsson er- indi fyrir almenning, í dómkirkjunni, um lcirkjuna og verkamannahreyfinguna. Laugardagsmorgun 20. júní kl. 9 var aftur gengið til fundarhalds og hófst fund- ur sem áður með sálmasöng og bænar- flutningi. Biskup skýrði frá því hvað liði sálma- bókar-endurskoðuninni, sem áformuð hefði verið, að nefnd hefði enn ekki fengist sett til að vina það verk og þá ekki held- ur loforð fyrir neinu fje í því skyni, sem óhjákvæmilegt skilyrði væri fyrir, aó koma slíku verki í framkvæmd. Verk eins og endurskoðun sálmabókarinnar væri meira vandaverk en svo, að hrapa mætti að því, yrði vel að vanda það er lengi ætti að standa. Hinsvegar taldi biskup vandhæfi á því að fá endurskoðunarnefnd skipaða öðru eins mannvali og nefnd sú var skip- uð, sem vann að sálmabókinni 1886, og naumast verði unnió svo að íslenskum sálmakveðskap síóan, að úr miklu væri aó velja. Ilitt leiddi af sjálfu sjer, að senn 50 ára gömul sálmabók fullnægði ekki sem skyldi trúarþörf einstaklinga á ''Tor- um dögum, þótt hún þætti afbragð á s'n- um tíma og væri álitin það enn af mörg- um, bæði innan lands og utan. Pess vegna yrði það aó teljast tímabært mál að far- ið yrði aó vinna að endurskoðun hennar eða safna til viðbcetis vió hana, sem ein- att væri fyrsta sporió til gagngerðrar endurskoðunar. Umræður urðu ekki um þetta mál. Pá skýrði biskup frá tilhögun áform- aórar biskupsvígslu næsta dag og þátt- töku synoduspresta og annara andlegr- ar stjettar manna i þeirri athöfn. Og vegna undirbúningsins undir þá athöfn óskaði biskup að prestastefnunni yrói lok- ið með þessum fundi, enda væri dagskrá lokið og fundarmenn hefði ekki hreyft við neinum málum, sem þeir óskuðu að hreyfa á prestastefnu þessari. Las forseti prestastefnunnar aó fund- arlokum 23. sálm Davíós, flutti bæn og árnaði kirkju og þjóó allrar blessunar. Var þá sungió versið »Son Guós ertu með sanni« og því næst prestastefnunni slitið. --------------- AíaMir Prestafjelap íslais var haldinn á Laugarvatni 22.—24. júní að aflokinni preststefnu í Reykjavík 18. —20. júní og biskupsvígslu 21. s. m. Fundurinn var óvenjulega vel sóttur. Komu á hann 53 menn alls, þar af 47 prestvígóir, 4 guðfræðikandidatar og 1 trúboði (Pjetur Sigurðsson). Aðalverkefni fundarins, auk venjulegra fundarmála, var: Eining kirkjmvnar og áhrif hennar á þjóðlífið. Var það rætt sem hjer segir og þessir framsögumenn: 1. Eining kirkjunnar og einingargrund- völlur (Sig. P. Sívertsen). 2. Eining og margbreytni: a) í skoðun- um (Porsteinn Briem), b) í störfum (Ei- ríkur Albertsson), c) i helgisiðum (Björn Magnússon). 3. Meiri starfsþróttur (Bjarni Jónsson). 4. Kirkjan og æskan (Guðm. Einarsson). 5. Kirkjan og verkamannamálin (Ásm. Guðmundsson og Gunnar Árnason). Um öll þessi mál urðu miklar umræð- ur, en ályktanir engar samþyktar, nema þessar tvær, út af síðasta málinu: I. »Aðalfundur Prestafjelags Islands óskar þess, að samvinna megi verða milli prestastjettarinnar og þeirra, sem vinna í þjóðmálum að bótum á kjörum fátæíkra manna og bágstaddra og að jafnrjetti allra. Kýs fundurinn fimm manna nefnd

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.