Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.07.1931, Side 5

Bjarmi - 01.07.1931, Side 5
101 BJARMI til þess nánar að athuga, hvernig slíkri samvinnu geti oróió háttaó í einstökum at- rióum. Leggi svo nefndin tillögur sínar fyrir næsta aóalfund Prestafjelagsins«. II. Aóalfundur Prestafjelagsins skorar á Alþingi að setja þegar á næsta þingi lög, er tryggi öllum fiskimönnum og bif- reióarstjórum nægilegan svefntíma, og setji einnig lög um hvíldartíma þeirra á helgidögum .þjóókirkjunnar«. 1 nefndina, sem getið er um í fyrri ályktuninni, voru þessir kosnir: Ásmund- ur Guómundsson dósent, sra Árni Slgurðs- son fríkirkjuprestur, sra Brynjólfur Magn- ússon, sra Eiríkur Albertsson og sra Ingi- mar Jónsson skólastjóri. Þá var kosin önnur nefnd til þess aó koma meó tillögur um þaö fyrir næsta að- alfund, með hverjum hætti kirkjan gæti best náð til aó vinna fyrir æskuna. 1 hana voru kosnir: Sra Friðrik Hallgrímsson, sra Þorsteinn Briem og sra Eiríkur Brynjólfs- son. Fundurinn fór hið besta fram og urðu þessir samverudagar fundarmönnum til mikillar gleói og ánægju, enda voru við- tökurnar á fundarstaðnum hinar ágæt- ustu frá hendi skólstjóra og annara heima- manna. — tijaflr í Jólakvoðjusjóð: úr barnaskóla Rvíkur, viðbót, (S. J.) 87,25 kr., Grímseyingar (St. G.) 60 kr., úr Landprestakalli (ó. F.) 3 kr., H. Bj. Eskifirði 2 kr., farskóli Austur-Eyjaf jalla (S. G.) kr. 5,47, börn í Stöðvarfirði 20 kr., á Brekku 1,20, i Stykkishólmi (ó. L.) 30 kr., E. P. Odda 10 kr. — Er nú kominn allur kostnaður við kaup og útsendingu Passíusáimanna um jólin 1930, og 72 kr. betur, sem bíða uns aftur verður eitthvað senf hjeðan. Bestu þakkir til allra, sem að því hafa unnið, einkum barnakennaranna. En munið nú eftir að láta mig vita ef vanskil verða ein- hvers staðar þegar Jólakveðjan fer á stað í okt. eða nóv. í haust. S. A. Gíslason. TH Prestlaunasjóðs Strandarkirkju, afhent af Vísi: 8 kr., kona í llvik 6 kr. Harris og lærisveinar lians. Eftir sr. Sigurjón Árnason. Árið 1824 var stofnuó nýlenda fyrir /eys* ingja frá Ameríku, við Guineaflóann á vesturströnd Afríku. Þeir voru fíestir kristnir,en þar bjuggu fyrir heiónir svert- ingjar. Nýlendan hlaut nafnió Líberia. Hún varð sjálfstætt lýðveldi 1847. Austur af Líberíu lig'gur land, sem Frakkar ráða yfir og heitir Fílabeinsströndin. Austan vió Fílabeinsströndina er Gullströndin. Yf- ir henni ráóa Englendingar. Um alllang't skeió hafa hvítir menn rek- ió evangeliskt kristniboö meóal heióinna svertingja í Líberíu, og á Gullstöndinni. En árið 1925, er hvítir kristniboöar mót- mælendatrúar hófu fyrst starf á Fílabeins- ströndinni, þá eru kristnir söfnuóir um alt þaó land, sem taka kristniboóunum opnum örmum, eins og lengi þráðum sendiboóum Guós. Hvernig mátti slíkt ske? Skýringin er Harris, spámaðurinn Harris, eins og hann er venjulega nefndur. I. William Wade Harris er fæddur í Líber- íu, eftir því sem næst verður komist um 1850. Foreldrar hans voru af svertingja- kynþætti, sem var fyrir í landinu, þegar svertingjarnir frá Ameríku komu þangaó. Þau voru heióin. En föðurbróóir hans var kristinn. Hann tók drenginn að sjer og fyrir tilstilli hans lærói Harris aó lesa og skrifa, nam höfuðatriði kristindómsins og' var skírður. Ilann drógst aó sjónum á unglingsárun- um og varó skipsdrengur. En fljótt leidd- ist honum sjómannslífió, yfirgaf sjóinn, settist aó í bænum Cap Palmas í Líberíu og gjörðist múrari. Til þessa hafói hann ekki átt lifandi trú. En 21 árs gamall varó hann fyrir sterkum trúaráhrifum og var ákveðinn kristinn trúmaður þaðan í frá.

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.