Bjarmi - 01.08.1932, Qupperneq 6
118
BJARMI
ur, gekk út, náði í »helga« ösku frá lík-
neskinu og bar á enni sjer. Pað var rauna-
legt að horfa á það.
Johxmne Heiberg.
Prestafjelag Islands
samþykti á aðalfundi sínum á Pingvöll-
um meðal annars:
1) Að beina þeim tilmælum til prest-
anna, að þeir leggi eins mikla rækt og
þeim er frekast unt við fermingarundir-
búning ungmenna, að þeir leitist við að
halda guðsþjónustur fyrir börn og ung-
linga, annað hvort sjerstakar’ eða í sam-
bandi við venjulegar safnaðarguðsþjónust-
ur, eftir því, sem best þykir henta, að hafa
samvinnu við þau fjelög ungmenna, sem
starfandi eru á hverjum stað, styðja þau
og leiðbeina þeim, en sje enginn slíkur fje-
lagsskapur starfandi í sókninni, þá stofna
til kristilegs fjelagsskapar meðal ung-
menna, þar sem líkur eru til, að hann geti
þrifist, að gangast fyrir því, að í hverju
prestakalli verði stofnað foreldrasamband
tii eflingar kristilegu uppeldi æskulýðsins,
eða fá kvenfjelög eða önnur fjelög í sókn-
um sínum til þess að taka þetta mál á
stefnuskrá sína, að leita sem bestrar sam-
vinnu við skólana.
2) Prestafjelagið skorar á Alþingi, að
taka f'átækralöggjöfina til gagngerðrar
endurskoðunar, þannig, að lögð sje meg-
ináhersla á það, að fátækraflutningur og
sveitardráttur út af fátækramálum hverfi
úr sögunni, og að lögð sje áhersla á það,
að veita vinnufærum mönnum atvinnu,
þeim og fjölskyldum þeirra til framfærslu,
fremur en beinan peningalegan styrk, eft-
ir því sem kostur er á.
3) Að öðru leyti álítur Prestafjelagið
heppilegast, að fátækraframfærslan fær-
ist meir í það horf, að í stað hennar komi
sem fullkomnastar alþýðutryggingar, svo
sem tryggingar vegna sjúkdóma, slysa, ör-
orku, elli o. s. frv.
4) Aðalfundur Prestafjelagsins kýs ár-
lega fimm manna nefnd, til þess að at-
huga og gera tillögur um samvinnu milli
prestastjettarinnar og þeirra, sem vinna
í þjóðmálum að bótum á kjörum fátækra
manna og bágstaddra og að jafnrjetti
allra.