Bjarmi - 01.08.1932, Blaðsíða 8
120
BJARMI
Sr. Vilhelrn Kolcl,
formaöur heimatrúaoðsins danska,
f. 186!) — d. 1932.
Prestafundur Norðlendinga.
(Otdráttur úr fundargerð).
Ár 1932, miðvikudaginn 6. júlí, var
ársfundur Prestaf,jelags Hólastiftis settur
að Laugum í Reykjadal,, í húsi alþýðu-
skólans. Kvöldið fyrir, hafði vígslubiskup
stiftisins, sr. Hálfdan Guðjónsson á Sauð-
árkróki, og nokkrir prestar úr fjarlægari
sýslum komið heim að Laugum, en nokkr-
ir prestar komu um morguninn.
Vígslubiskup setti fundinn og stýrði
honum. Kvaddi hann til fundarskrifara
sr. Lárus Arnórsson á Miklabæ og sr.
Knút Arngrímsson á Húsavík.
Fundinn sóttu þessir prestar:
Úr Húnavatnsprófastsdæmi: Sr. B. Stef-
ánsson, prófastur, Auðkúlu, sr. G. Árna-
son, Æsustöðum, sr. S. Norland, Hindis-
vík; úr Skagafjarðarprófastsdæmi: Sr. H.
Guðjónsson, vígslubiskup, Sauðárkr., P.
Þóroddsson, Hofsós, sr. G. Björnsson, Við-
vík, sr. L. Arnórsson, Miklabæ; úr Eyja-
fjarðarprófastsdæmi: Sr. S. Kristinsson,
prófastui’, Völlum, sr. I. Þorvaldsson, Ól-
afsfirði, sr. S. Stefánsson, MÖðruvöllum,
sr. Fr. Rafnar, Akureyri; úr Suður-Þing-
eyjarprófastsdæmi: sr. Ásm. Gíslason, pró-
fastur, Hálsi, sr. Hermann Iljartarson,
Skútustöðum, sr. Þ. Sigurðsson, Grenjað--
arstað, sr. K. Arngrímsson, Húsavík, sr.
Þ. Sigurðsson, Vatnsenda; úr Norður-Þing-
eyjarprófastsdæmi: sr. Páll Þorleifsson,
Skinnastað. Alls sóttu því fundinn 17
þjónandi prestar úr Hólastifti. En auk
þessara presta 3íit sr. Friðrik HaUgrims-
son, dómkirkjuprestur í Reykjavík, fund-
inn, sem gestur, og einnig nokkrar (9)
prestskonur.
Fundurinn stóð í tvo daga.
Fyrri daginn (G. júlí) gerðist það, er
hjer segir:
Eftir að forstíti hafði sett fundinn og
boðið fundarmenn velkomna, hélt sr. Guð-
brandur Björnsson i Viðvík — áður gtíng--
ið var til dagskrár stutta guðsþjónustu
með fundannönnum. Lagði hann þar út
af orðunum Í Joh. 12, 35.—36.
Því næst var gengið til dagskrár og tek-
in fyrir þessi mál:
1. Sr. Guðbrandur í Viðvík flutti er-
indi, sem hann kallaði: »Afstaða kirkj-
unnar til bindindismÆsins.« Tók ræðumað-
ur það fram, að hann ætlaðist ekki til að
fá neina fundarsamþykt í málinu, heldur
fýsti sig að heyra skoðanir stjettarbræðra
sinna um það og undirtektir.
2. Sr. Björn Stefánsson, prófastur á Auð-
kúlu, flutti erindi, er hann nefndi: »Kröf-
ur safnaðarins til prestsins.« Hneig ræða
hans að því, að meta bæri prestinn sem
prest, engu síður eftir framkomu hans
utan kirkju en í.
Bæði erindin voru rædd sameiginlega
og urðu um þau alllangar og fjörugar um-
ræður, og tóku margir til máls, en í hvor-
ugu málinu var ályktun gerð. Stóðu er-
indi þessi og umræður fram að kvöldverði.