Bjarmi - 01.08.1932, Page 16
128
BJARMI
Skaftfellingur 10 kr., Tr'boðsfjelag karla, Ak-
ureyri, 250 kr., Vinkona, til minningar um hjón-
in á Leysingjastöðum í Húnav.s., óðalsbónda Guð-
jðn Ingva Jónsson, d. 1930, og konu hans, frú
Steinunni Púlsdóttur, d. 1924, og ron þeirra, Björn
ólsen, d. 1930, 10 kr. S. J. Vm. 5 kr., Laufey,
Iloltum, 5 kr., Kristniboðsdeild K. F. U. M. og
K. í Vm. 150 kr., »Tvær« 100 kr. og sömu 100 kr.
til »hungraðra Kínverja«, B. F>. 4 kr., S. ó. 2 kr.
Júlnkvoðjiisjúður: Börn við Eystri-Eyjafjöll
22,30 kr. Börn í Skálavík 1,50 kr.
Til EllIhcimiJisIns í Hvík: »Tvær« 300 kr., K.
P. 50 kr.
I’rcstlaiinasjúðu]’ Straiidnrkirkju: Kona í Bol.v.
5 kr., N. N. Winnipeg 20 kr., N. N. ísafirði 12,50
kr.
Kirkjuráðlð. Kosning hjeraðsfunda fór svo, að
kosnir voru Matthías Þórðarson, þjóðmenjavörð-
ur og ólafur Björnsson, kaupmaður, með 10 og
9 atkvæðum. Jón Björnsson, Sauðárkrók, hlaut
atkvæði 5 hjeraðsfunda, aðrir færri. Kosningin
hefði farið á sama veg, þótt atkvæði einstak-
linganna hefðu -verið talin. Áður voru í ráðinu:
Kirkjumálaráðherra, biskup og vígslubiskup
(S. P. S.). — Það fær margt vandaverk.
Fyrsta útvai'iisguðsþjúnusta á íslensku vestan
hafs, fór fram 5. júní s. 1. Hún fór fram í kirkju
Fyrsta lútherska safnaðar í Winnipeg og ræð-
una flutti sr. Björn B. Jónsson, prestur þess
safnaðar. Hann skýrir frá |)ví í Lögbergi 16.
júnt, að borist hafi á annað hundrað brjef og
skeyti víósvegar frá ísl. fólki í Vesturheimi,
til að þakka þessa nýbreytni, og sumir sent
dollar með, upp í kostnaðinn við næstu ísl.
útvarpsmessu í Winnipeg. Þakklæti þeirra er
mest, sem lengi hafa engan kost átt á að hlýða
á messugjörð á móðurmáli stnu, ýmist vegna
lasleika eða einangrunar í enskumælandi um-
hverfi.
líjcraðsl'uudir og safnaðarfundir í sumar hafa
lagst eindregið gegn prestafækkun, alstaðar, þar
sem Bjarmi hefir frjettir frá.
Sóknarnefnd dómkirkjusafnaðarins skrifaði öll-
um sóknarnefndum landsins út af prestafækkun-
artillögu Neðri-deildar, og hefir fengið ýms
góð svör aftur, Hjer er sýnishorn, kafli úr
brjefi frá form. sóknarn., dags. 3. þ. m.:
»Á aðalsafnaðarfundi fyrir útskála-sókn, sem
haldinn var 31. júlí s. 1., var brjef yðar lesið
upp, og þessu næst tekin til umræðu þingsálykt-
unartillaga landlæknisins. Kom brátt í ljós, að
hún hefir ekkert fylgi. Sjerstaklega þótti athuga-
verð atkvæðagreiðsla þingmanna þeirra, er vilja
fækka prestum. Fanst mönnum þeir bregðast illa
trausti kjósenda sinnat vitandi vel, að hjeraös-
og safnaðarfundir víðast á landinu, nú fyrir
tveimur árum, mótmæltu fækkun presta mjög
eindregið.
Tillaga sú, sem hjer fer á eftir, kom fram frá
sóknarnefndinni og var samþykt í einu hljóði:
»Fundurinn mótmælir eindregið fækkun presta
og samsteypu prestakalla. Telur þjóðinni, nú
eins og viðhorfið er, brýn nauðsyn á fleiri góð-
um, trúuðum og áhugasömum kennimönnum, sjer-
staklega til uppfræðslu barna og ungmenna, í
kristindómi.«
Fundurinn ákvað, að skrifa hinum nýja kirkju-
málaráðherra og skora á hann að gera alt sem
í hans valdi stendur, til aukinnar kristindóms-
fiæðslu og eflingar og styrktar kirkju og krist-
indómi í landinu.«
Sainbaiul norskrn siiniiinlagaskúla heldur lands-
fund á þriggja ára fresti. Norvegur er svo stór
og kostnaðarsamt að sækja þjóðfundi, að kristi-
legu fjelögin hafa sjaldnast ársþing, nema fyrir
eitt og eitt fylki eða biskupsdæmi. Seint í
júnl hjelt ]>etta samband landsfund í Kristjáns-
sandi.
Undanfarin þrjú ár höfðu andkristin öfl, og
]>ó einkum kommúnistar, barist mjög gegn sunnu-
dagaskólum trúaða fólksins og sett meðal ann-
ars á fót í ýmsum borgum guðleysisskóla fyrir
börn, á sunnudögum, og kappkostað að hafa
barnaskemtanir samtímis sunnudagaskólum. —
En trúaðir menn og konur höfðu ekki horft á
þetta iðjulausir nje kjarklausir.
Og árangur »baráttunnar um börnin« var sá,
ao sunnudagaskólum sambandsins hafði fjölgað
um 218 síðan 1. jan. 1929; 655 sjálfboðaliðar og
13000 börn voru þar starfsmenn og þátttakend-
ur. Alls voru um síðustu áramót 1891 sd.skólar
í sambandinu, börnin 123979 og kennarar 6113.
Ársreikningur var 40,472,98 kr., innkomið og
farið. Sambandið hafði fjölgað ferðastarfsmönn-
um um 2, báðir prestar.
Sambandiö gefur út mánaðarblað með texta-
skýringum, er það ári eldra en öldin, ritstjóri
er sr. I. C. Larsen, jafnframt framkvæmdarstjóri.
Handa börnunum gefur það út »Börnebibliotek-
et«. Það er orðið 78 ára gamalt; ritstjóri þess
er nú frú Hvoslef. Það selst vel; upplagiö er
26,500. Söngbókin hefir verið endurprentuð 26
sinnum og eintök hennar orðin alls 430,000.
Enginn veit, hve margir fullorðnir eiga upptök
gæfu sinnar frá þessu starfi.
Útgefandi: S. Á. Gislason.
Prentsmiðja Jóns Helgasonar.