Bjarmi - 15.04.1934, Blaðsíða 1
Frá Noregi.
Eftir V. Skagfjörð, cand. theol.
Margt er á annan veg í kirkju- og
kristnilífi frænda vorra Norðmanna en hjá
oss. Meðal margs annars má þar tilnefna
hið kristilega starf meðal stúdenta og
menntaskólanemenda, sem nú á síðustu ár-
urn hefii- unnið marga og mikla sigra hjer
> Noregi. Fyrir skömmu átti »Norges
kristelige studentlag« 10 ára afmæli, og
þ.vkir mjer því vel við eiga, að gefa les-
endurn »Bjarma« kost á að Ivynnast þessu
mikilvæga starfi.
IJm aldamótin síðustu var stofnað kristi-
legt stúdentafjelag hjer í Osló, Norske
studenters knstelige forbund,« sem enn er
starfandi. Fyrstu árin var starf þess mjög
áhrifamikið og blessunarríkt, enda margir
ágætir kirkjumenn, sem stóðu þar í fylk-
mgarbroddi. En þegar aldamótaguðfræðin
(»nýguðfræðin«) náði fótfestu hjer við há-
skólann leið ekki á löngu uns hún fór einn-
að gera vart við sig í stúdentafjelag'inu.
í*eir fáu, sem hjeldu fast við sína gömlu
frú, fengu ekki rönd við reist, og' svo fór
a3 lokum, að aldamótaguðfræðingarnir
rJeðu lögum og lofum í fjelag'inu.
Hjer í Noreg'i mætti aldamótaguðfræð-
in harðri mótspyrnu innan kirkjunnar,
sem leiddi af sjer harðvítuga kirkjudeilu.
Fyrsti þátturinn í þeirri deilu var hin
víðfræga bók »Mót straumnum,« sem
Heuck biskup gaf út (1904); alvarleg og á-
hrifarík viðvörun við afneitunarguðfræð-
inni. Næsti þáttur var prófessor-deilan 1908
sem lauk með því að einn róttækasti alda-
mótaguðfræðingurinn, J. Ording, var skip-
aður prófessor við háskólann, og samdæg-
urs sagði prof. dr. S. Odland af sjer em-
bætti sínu við háskólann, þar sem hann
gæti ekki samvisku sinnar vegna, tekið á
sig þá ábyrg'ð, að standa við hlið þess
manns, sem afneitaði meginstaðreyndum
kristindómsins, og á þann hátt að gerast
óbeinlínis samsekur um það, að prestaefni
kirkjunnar fengju skaðvæna uppfræðslu
í nafni vísindanna Tveim árum síðar, 1908,
var svo Safnaðarháskólinn settur á. stofn,
þar sem dr. Odland varð prófessor. Vet-
urinn 1919 blossaði svo kirkjudeilan upp
að nýju, og þá lauk henni með allsherjar-
fundi hjer í Osló, þar sem allir leiðtogar
biblíutrúarmanna voru samankomnir (alls
ca 4—5 þús.), og' þar sem samþykt var
einróma að hafna allri samvinnu við alda-
mótaguðfræðinga. — Síðasti -þátturinn í
þessari löngu og hörðu deilu var svo »Norg-
es kristelige studentlag«. Um stofnun þess
segir svo í nýútkomnum bækling í tilefni
af 10 ára afmælinu: Það var ekki óeðli-