Bjarmi - 15.04.1934, Blaðsíða 7
BJARMI
61
mfiltíðina. - Lindbergh afþakkaði boðið, Hann
var spurður uni ástæðuna, og svaraði hann þvl
svo:
»Pyrir skömmu kom jeg til Shanghai I Kína.
Þar var mjer sagt frá hallærinu mikla og að
fólk dæi daglega þúsundum saman úr sulti og
drepsóttum i sumum hjeruðum Kínaveldis. Marg-
'r læknar höfðu farið þangað, en einir 7 kom-
'ð aftur lifandi; og nú væri þar hinn mesti skort-
ur meðala.
Jeg bauðst til að Ieggja lið og tók í flug-
vjel mína eins mikil lyf og hún gat borið. Þeg-
ar jeg lenti, komu læknar og hjúkrunarkonur
til að taka á móti lyfjunum, en fólkið þyrptist
að, til að sjá hvort ekkert kæmi ætilegt. Sumir
ðitu í vængina á flugvjelinni, til að ganga úr
skugga um hvort ekki væri hægt að borða þá.
—• Með mestu erfiðismunum komst jeg af stað
aftur til að sækja meira.
En þessar ferðir höfðu þau áhrif á mig, að
mjer fannst jeg gjörbreytast áður en jeg fór
frá Kína. — Vísindin eru góð, þau hafa meðal
annars gefið mjer flugvjelina, svo að jeg get
flogið umhverfis jörðina, þrátt fyrir storma og
illviðri. En vjer þurfum annað meira en vlsind-
in, — Vjer þurfum nýtt hugarfar. — Og jeg
•nun aldrei borða 5 dollara miðdegisverð, meðan
flugvjelin mfn er með tarinaför sárhungraðra
nianna og meðan ekki er að fullu bætt úr hung-
ursneyðinni.«
K. F. U. K. I Svíþjóð stofnar til fundar með
leiðtogum K. F. U. K. á Norðurlöndum í Sig-
túnum í Svíþjóð 30. júlí 13. ágúst I sumar. ltæðu-
wenn verða þar margir góðir, en jafnframt eiga
konurnar að fá góðan tíma til að kynnast jiessa
14 daga. Skyldi nokkur fara frá islandi?
Fyriiiestraföi' Stanley Jones um Norðurlönd, sem
getið var um I síðasta bl., hefir vakið hina
meslu eftirtekt. Flytja stórblöðin löng samtöl
við hann um kristniboð.
Stanley Stones er Ameríkumaður, en fór til
Indlands eftir háskólaprófið. Bar ekki mikið á
honum við kristniboð fyrstu árin og um eitt
skeið var heilsa hans svo biluð, að útlit var á,
að hann yrði að hverfa alveg frá Indlandi. —
En þegar öll sund virtust lokuð, tók Drottinn
1 taumana. Heilsuleysið hvarf, en trúarþrekið
uiargfaldaðist, og síðan hefir hann starfað meö
uuklum árangri, aðallega meðal menntamanna
Indlands. Bækur hans hafa náð útbreiðslu um
°Þ kristin lönd — jafnvel út á íslandi. »Kristur
a vegum Indlands«, sem tímáritið Jörð er að
flytja I íslenskri þýðingu, var fyrsta bókin, sem
gjörði hann heimsfrægan, en slðar hefir hann
skrifað ýmsar aðrar jafngóðar eða betri, Prje-
dikunarferðir hefir hann farið um Suður-Ame-
ríku og Kína og Japan og skrifað ágætar frá-
sögur þaðan.
Hvað eftir annað hafa honum verið boðin bestu
embætti heima fyrir, og ársþing Metodista í
Bandaríkjum kaus hann einróma að biskup fyrir
fám árum, en hann hefir hafnað því öllu. »Drott-
inn gaf mjer heilsuna til að vera kristniboði
og því starfi held jeg meðan kraftar leyfa,«
segir hann.
Heimatrúboðið I Stokkhólmi — »Stockholms
Stadsmission« er það nefnt á sænsku - varð
í vetur fyrir svo hörðum árásum út af fátækra-
hjálp, sem það veitir, að stjórnarnefnd þeirrar
starfsgreinar þess, sem Svíar nefna »Smá smul-
or«, sagði af sjer störfum. En þá komu bæði
gefendur og þiggjendur með svo ákveðnar áskor-
anir um áframhald, að starfið var tekið upp
aftur. Konungsefni Svía tók fyrstur til máls
við útsölu til styrktar starfinu þegar verið var
að endurreisa það, og er mælt að heimatrúboð-
inu hafi orðið það hinn mesti styrkur.
Stúdeiitai' og menntaskólapiltar í Svíþjóð hafa
hafið herför gegn saurblöðum og lauslætisbækl-
ingum. Stúdentar I Lundi urðu fyrstir til að
hefjast handa I þessu efni. »Munaðarfýsn og fje-
græðgi er að eitra fyrir æsku þjóðar vorrar, og
þá stendur það næst oss æskumönnum sjálfum
að hrinda brott óþverranum,« segja þeir. And-
mælaskjöl gegn öllum óþverra I ritmáli hafa síð-
an farið um landið og æskumenn tugum þúsunda
saman skrifað undir þau, Sumstaðar taka og
menntaskólapiltar mikinn þátt í almennu safn-
aðarstarfi.
fbúnr Gyðingnlnnds voru taldir rjett fyrir síð-
ustu aldamót og voru þá 1035154 (konur 509076,
karlar 526078). Um sjötti hver maður, en tæp-
lega þó, var Gyðingur. Peir voru alls um 172
þúsund. íbúar I Jerúsalem voru um 92 þús., af
þeim voru um 56 þús, Gyðingar.
Dnniol Frnser, framkvæmdarstjóri kristniboös-
fjelags skotsku kirkjunnar síðan 1925 og kunn-
ur Afríku-kristniboði árin 1896 1925, er nýlega
látinn, 64 ára gamall.
Síðustu skýrslur segja að jarðarbúar sjeu um
1958 milljónir, Rómversk-kaþólskir menn eru þá
taldir 298 milljónir, evangeliskrar trúar 145