Bjarmi - 15.06.1934, Blaðsíða 7
BJARMI
93
er eftirtektarvert og ánægjulegt, að í þeirri
hjálparstarfsemi hefir engin »pólitík« kom-
ist að, enginn spurt um hvar þeir væru
í »pólitík«, sem misstu húsin sín. Ætli þao
sje ekki bending um að deilumálin sjeu
ekki jafn róttæk og ætla mætti við lestur
sumra blaðanna, — og því enn tími til að
slökkva flokkahatur. En vera má að þjóð
vor þurfi að fara fyrst í enn alvarlegri
reynsluskóla.
Hvaðanæva.
KiisUiiIioðssaiiibaiuliil retlaði að haida auka-
I>ing á Akureyri snemma i þ. m.; var tilætlunin
að fundarmenn hjeðan að sunnan færu í bif-
reiðum norður og- hjeldu samkomur og útbreiðsiu-
i’undi víða á leiðinni. En vorkuldarnir og' snjór-
inn kom í veg' fyrir það. ófrert var með bifreið-
Um yfir Hollavörðuheiði og öxnadalsheiði, þeg-
ar fara skyldi á stað, en hins vegar þótti
ekki svara kostnaði að fara norður sjóveg og
geta þá ekkert gagn gjört á leiðinni. Þá þðtti
°g ófaert að fara eftir miðjan mánuðinn, því um
I>að leyti snýst athygli flestra svo mjög að stjðrn-
málafundunum, rjett fyrir kosningarnar.
Syiioilus hefst 28. þ. m. í llvik.
Aðal fiiiidur Pl'cstafjelags íslnnds verður á f>ir,g-
völlum sunnudag 1. júlí kl. 5 síðd. til hádegis
þriðjud. 3. júlí. Aðalmálin eru útgáfumál og'
Úeynsla i prestsstarfi og þörf á meiri samvinnu
með prestum.
Jafnhliða þeim fundi halda prestskonur fund
2. júlí á Pingvöllum.
Alinoiiiiiii' klx'kjiifundiir hefst á Þingvöllum
að loknum prestafjelagsfundinum og verður 2
daga. Er þangað boðið prestum, safnaðarfulltrú-
um og formönnum söknarnefnda eða einhverj-
um sóknarnefndarmanni í þeirra stað. Aðalum-
•'seðuefni þar er samstarf presta og leikmanna
°fí glœðing trúarlífs með þjóðinni.
l3restafjelagsstjórnin hefir þannig orðið fljótt
°8' vel við óskum sóknarnefndafundarins í Rvík
síðastliðið haust, og vreri óskandi að trúaðir
ahugamenn gretu fjölmennt til fundarins, og
gætu komið hinum í skilning um, að þótt gott
sje að skrafa vel á mannfundum, eru fram-
kvæmdir betri heima fyrir.
Viðhretir við sálmabók til kirkju- og heima-
söngs er nýlega útkominn (196 bls. 1 litlu broti,
verð í bandi 2 kr.). Þar eru 250 sálmar, eftir
nál. 60 höfunda; margir eru þeir góðir, bœði
þeir, sem áður hafa verið prentaðir og hinir.
En mjög hefir veriö dreginn hlutur sumra höf-
unda við sálmavalið, en setið á hlut annara, sem
ort hafa og þýtt fjölda góðra sálma. Enginn
sálmur er þar um kristniboð, en tvær þýðingar
eru teknar af danska sálminum »Dejlig er Jord-
en«; samkvœmt efnisröð bókarinnar á að syngja
»Fögur er jörðin« á jólunum, en »FögUr er fold-
in« við jarðarfarir. Margt fleira má um þessa
bök segja, og verður vœntanlega gjört.
Sr. (iiiðhrandi lljörnssyni i Viðvík hefir verið
veitt Fell I Sljettuhiíö og sra Jóni Guðjönssyni
Holt við Eyjafjöll.
(iuðl'rreðisprói tökii nývcrið: Magnús ltunólfs-
son, Gísli Biynjólfsson og Porsteinn Jónsson,
allir með I. eink.
Yd nirelt. Pjetur Sigurðsson regluboði skrif-
aði í Vísi góða grein í f. m. um guðleysisskrifin
og segir þar meðal annars:
»Jeg er stöðugt að fá meiri og meiri skömm
á þessari lítilmennsku sumra rithöfunda nutlm-
ans, sem apa hver eftir öðrum þennan fúlmennsku-
lega rithátt um trúmál og andlegt líf. Par er
oft sakramentum kristinna manna og kjötáti
mannætna, átveislum villimanna og öllu mögu-
legu rótað saman. Par er talað um »Guð og allt
slíkt hyski«. Par er »Guði almáttugum ásamt
syni hans, Jesú, öllum máttarvöldum himins og
jarðar« og hinu fyrirlitlegasta, er þessir menn
kunna að nefna, öllu þvælt 1 einn graut, sem
auðvitað er ætlast til að veki fyrirlitningu
manna. Guði almáttugum er »klappað á lend-
arnar« og það er »tekið í hornin« á honum, og
þó á hann enginn að vera til! Jeg hirði ekki
um að nefna hjer menn eða ritverk, jeg les allra
manna minnst af þessu dóti, en þetta er svo
almennt, að maður getur ekki ánnað en þreyst
á tómleikanum og fengið megnasta viðbjóð á
þessari sömu margþvældu, ófrumlegu framleiðslu
kaldlyndra eða kærúlausra manna.«