Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.11.1934, Síða 8

Bjarmi - 01.11.1934, Síða 8
166 B J ARMI ina að vilja hennar og það hefir sömu afleiðingar. Sje það gert án vitorðs henn- ar eða vilja, þá varðar það hegningarvinnu í 4 ár og allt að 16 árum eða æfilangt, ef mjög miklar sakir eru«. —- — Vafalaust eiga þessi ákvæði ekki við það, er læknir neyðist til að lífláta fóstur eða barn í fæðingu til að bjarga lífi móð- ur þess, enda aldrei verið skilið á þá leið, og engin gremja nje ágreiningur út af því risið. Væntanlega hafa margir ætlað að engin stórhætta væri á ferð í þessum efnum, og því brá flestum í brún, er þeir lásu grein- argerð þá, er fylgdi frumvarpi landlæknis, um ieiðbeiningar fyrir konur um varnir gegn því að verða barnshafandi og um fóst- ureyðingar.« Þar segir svo meðal annars: »Fóstureyðingar lækna eftir vafasömum heim- ildum máttu heita hjer óþekktar fram 'á siðustu ár, ef ekki bókstaflega óþekktar. Pessi gullöld er nú liðin. Yfir landið er skollin sá alda, sem lengi hefir flætt um önnur menningaröld, að fleiri og fleiri konur í öllum stjettum giftar og ógiftar, rlkar og fátækar, siðlátar og ljettúðugar, trú- aðar og vantrúaðar og að þvi er virðist án tillits til pólitiskra skoðana, gera þær kröfur til lækna, að þeir losi þær hispurslaust við óvelkomin fóstur sín«. 1 heilbrigðisskýrslum, sem núverandi landlæknir hefir gefið út, er hvað eftir annað vikið að þessu alvarlega máli. Samkvæmt þeim hafa læknar árið 1930 skafið leg kvenna 225 sinnum, 84 sinnuin vegna fósturláta, 52 sinnum vegna fóstur- eyðinga og 89 sinnum af öðrum tilgreind- um ástæðum. Fósturlát eru þá talin samt nærri óþekkt nema í Reykjavík, Ilafnar- firði og Akureyri. Árið eftir skafa læknar leg 349 kvenna, 97 si'nnum vegna fósturláta, 92 sinnum vegna fóstureyðinga og 160 sinnum af öðr- um ástæðum. 1 brjefi sem landlæknir ritaði Lækna- fjelagi Islands 6/3 1933 og prentað er í greinargerð fyrnefnds frumvarps segir svo: »Samkvæmt skýrslum sjúkrahúsanna 1930 var þar eytt 52 fóstrum á því ári, en 1931 92 fóstrum, og er það ca. 77% aukning á einu einasta ári. Á 5 ára tímabilinu 1926—1930 var á St. Josephs- spítala í Landakoti eytt 95 fóstrum öll árin, eða til jafnaðar 19 fóstrum á ári, en á árinu 1931 fóstrum, sem svarar til 163% aukningar. 1930 eru fóstureyðingar á öllum sjúkrahúsum í land- inu 1 hlutfalli við fósturlátin 62%, en 1931 95%. Nú gjöri jeg ráð fyrir að skýrslur segi ekki allan sannleikann i þessum málum, og má vera að undir endometritis (legbólga), metrorrhagia (legblæðing), dysmenorrhoe (tíðaverkir) o. s. frv. dyljist ekki ófátt fósturláta. Má benda á, að á Landspítalanum eru á árinu 1931 aðeins 31 sinni skafin leg af ýmsum ástæðum, en á Landa- koti 103svar sinnum, i smáholum eins og i Sól- heimum í Reykjavik 72svar sinnum og á Haínar- fjarðarspítala 77 sinnum. Gefur sá urmuil þess- ara aðgerða óneitanlega tilefni til nokkurar tor- tryggni. Ástæðurnar til fóstureyðinganna eru greindar á skránni samkvæmt skýrslum sjúkrahúsanna, og mun þar mega finna alla flokka þeirra til- efna, sem talin hafa verið íram tiil rjettlætingar þessum aðgerðum: sjúkdómsástæður, þjóðfjelags- legar ástæður og mannúðar ástæður. Og mikið má vera, ef ekki er enn lengra gengið í sumum til- fellum, og aðgerðin framkvæmd hispurslaust, þegar um er beðið. Sumir sjúkdómarnir virðast að fninnsta kosti vera hreinar tylliástæður, eins og þegar »blóðleysi« er talið eina tilefnið í ekki færri en 15 tilfellum«. Þegar svona er komið er síst furða, þótt landlæknir sneri sjer til Alþingis í vetur og legði fram frumvarp til að stemma stigu fyrir þessum hræðilegu barnamorðum. Hitt er fremur undrunarefni að heilbrigðis- stjórnin skyldi ekki hafa þegar í stað tekiö fast í taumana og kært þá lækna og mæð- ur, sem byrjaðar voru á þessu þokkaverki. Þótt refsingin hefði ekki verið önnur en há sekt vegna einhverra »málsbóta«, mundi það hafa bjargað nokkur hundruð barns- lífum, sem líflátin hafa verið í móðurkviði undanfarin ár, ■ og enginn veit hvað þjóðinni allri er mikið tjón að. — Þaö

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.