Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.11.1934, Blaðsíða 10

Bjarmi - 01.11.1934, Blaðsíða 10
168 BJARMI árin í þjónustu syndarinnar vrðu eins fá og hægt er; því það eru glötuð ár. Jeg man eftir ríkum bónda sem jeg kynntist í Noregi fyrir nokkrum árum. Hann var þá á áttræðis aldri. En allt af þegar hann hugsaði til baka, til æskuár- anna, þá hrundu tárin niður eftir hrukk- óttu kinnunum hans. Hvert vegna? — »Þá fylgdi jeg girnd hjartans og óhlýðnaðist Drottni«, sagði hann. - Jeg get ekki hugs- að mjer nokkuð sorglegra en að hlusta á grát þeirra sem verða að ásaka sig sjálfa fyrir það að þeir glötuðu bestu árum æf- innar. En sagan um glataða soninn sýnir okkur hvernig það getur farið svo illa fyrir mönnunum. Þessi ungi maður, sem Jesús talar um, hjelt að það væri engin hætta á ferðum þegar hann lagði á stað út í heiminn. Bjartsýnn var hann eins og ungmenni eru vanalega og ótal raddir kölluðu á hann. Lífið í landinu ókunna gaf góðar vonir og ánægður og glaður lagði hann á stað með vasana fulla af peningum. Brátt urðu kunningjarnir margir og þar var glaumur og gleði. Ailir þar í landi voru aðeins að leika sjer. Enginn talaði um alvöru eða synd. Lífið var bara leikur. En allir leikir hafa þó^endi, og þarna voru leikslokin hörð. Það kemur svo oft fyrir að: »Þess bera menn sár um æfilöng ár, sem aðeins var stundarhlátur«. Það er allt af hættulegt að leika sjer ef að Guð er lokaður úti frá leiknum. Við vitum öll hvernig það fór fyrir glat- aða syninum. En gættu að, vinur, að þessi saga er allt af að endurtaka sig. Nú langar mig til að segja þjer sögu af glötuðum syni«, sem jeg þekki. Sú saga er sönn og það eru aðeins fjögur ár síðan það bar við. Norskur bóndasonur fer til höfuðstað- arins til að skemmta sjer. Hann hefir mörg hundruð krónur í vasanum og er vongóður um góða skemmtun í borginni. Ferðin heppnast vel og leikurinn byrjar bærilega. Kunningja finnur hann alstaðar og allir vilja að hann skemmti sjer sem best. Bóndasonurinn er aðeins að leika sjer. Daginn áður en hann fer heimleiðis vilja nýju kunningjarnir hans halda dá- lítið samsæti að skilnaði. Það á bara að vera skemmtun. Þar er áfengi, hljóðfæra- sláttur og dans og að lokum bíltúr. Allt þetta er gert til þess að leika sjer sem best. En þá koma leiks-lokin. Morguninn eftir skemmtunina vaknar kunningi minn við vondan draum. Þá liggur hann í mold- arflagi einhversstaðar fyrir utan borgina. Er hann að dreyma? Hann hefir opið blæðandi sár á höfðinu. Og hvar eru kunn- ingjarnir — en peningaveskið hans? — Fjelagarnir höfðu leikið hann illa. Nú var hann saurgaður á sál og líkama. Þá fer þessi ungi maður að hugsa um hvort þetta hafi nú eiginlega verið skemmtun eða hvað? — 1 þessu eymdarástandi sjer hann að hann hefir verið að leika sjer með lífio. Og enginn mun lá þessum aumingja þó að hann færi að hugsa heim til föðurhúsanna. Gættu að þjer, vinur. Hvar ert þú, í ó- kunna landinu eða heima hjá föðurnum? Jeg held að það sje hægt að tala um þrjá flokka þarna í »fjarlæga landinu«. Þeir eru allir án samfjelags við Föðurinn, en eru þó ekki jafn fjarlægir föðurhúsunum. 1 einum flokknum eru þeir sem segja að sjer standi alveg á sama hvort þeir glat- ist eða verði hólpnir. Lífið í þrældóm synd- arinnar hefir farið svo illa með þá að löng- unin til að lifa betra lífi er að slokna. Það er einhver dauðans friður í sál þeirra. Þeir hafa gefið sálinni steina fyrir brauð þangað til að þorstinn eftir eilífa lífinu er að hætta að g'era vart við sig. En þökk- um Guði að fáir eru í þessum hóp. Annar flokkurinn eru þeir sem eru hrifnir af löngun eftir að geta losnað frá »svínahjörðinni« og komist heim. Þeir vita að föðurfaðmurinn bíður þeirra, en þá vantar viljakraft til þess að segja eins og glataði sonurinn: »Jeg vil taka mig upp (Framhald á bls. 173.)

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.