Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.11.1935, Page 14

Bjarmi - 01.11.1935, Page 14
174 B J A'RMI frjálsa vilja er það verð serr> vjer verð- um að borga fyrir möguleikann til þess að hljóta hamingjuna í eilífri sælu. Eilíf sæla er hið fullkomna líf í kærleika í og með Guði, og allur kærleikur gjörir ráð fyrir frjálsræði. En frjálsræði hefir áhættuna í sér fólgna — það liggur í eðli sjálfs frjáls ræðisins, Fleira en það sem jeg hjer hefi sagt um þetta efni get jeg ekki dregið fram þegar rúmið er svo mjög takmarkað sem raun er á hjer. Pýtt úr vBerlingske Tidende«. C. Sk.-P. Heimsókn í Betlehem. Eftir Ingibjörgu Ólafson. Síðast liðið vor auðnaðist mjer sú gleði að ferðast til landsins helga ásamt nokkr- um enskum vinum mínum. Hvert sinn sem jeg hugsa um þessa ferð verð jeg að þakka Guði, sem gaf mjer tækifæri að sjá þetta yndisfagra land. Jeg er ekki í hóp þeirra, sem urðu fyrir vonbrigðum við að sjá Gyðingaland. Jeg hafði ekki hugsað mjer það öðruvísi; jeg þekkti einnig talsvert nútíma Gyðingaland gegnum frásagnir ferðamanna og önnur rit. — Að þetta fagra land er »fyrirheitna land- ið«, stendur heima, einmitt hjer hlaut Frelsarinn að fæðast, og í hinni kaldrana- legu óvingjarnlegu Jerúsalem »sem grýtir spámennina«, hlaut hann að deyja. Já, manni virðist, þegar maður er þar, að það hefði ekki getað verið öðru vísi, í þessu undralandi hlaut allt þetta að verða, Við heimsóttum flesta þá staði sem tal- að er um í biblíunni og fórum einnig til Damaskus. Snemma morguns í glaðasól- skini fórum við í gegnum Jaffahliðið í Jerúsalem yfir Hinnonsdal út á veg þann, sem liggur í suður til Betlehem og Hebron. Þegar við fórum gegnum Jaffahliðið var okkur sagt að það væri kallað »Vinarhlið- ið« á arabísku þ. e. a. s. »Abrahamshlið« Múhameðstrúarmenn kalla Abraham nefni- lega »Vininn« eða »Guðs vin«. Á hliðinu s'endur á a.rab;skri tungu: »Enginn Guð er til nema Allah og Abraham er vinur hans«. Þessi áletrun á að minna á að þessi vegur liggur til Hebron, á a.rabisku: E1 Khalil, »Borg vinarins«. Þegar við förum í geg'num* Jaffahliðið og hugsum um það, að við erum á leið til Betlehem, erum við minnt. á það' eitt að við erum á leið til bæj- ar Abrahams, Hebron. Ef til vill verður einhverntíma sett sú áletrun á þenna múr, sem minnir þá á, sem í gegnum hliðið fara, að þessi vegur liggur til Betlehem, þar seni Frelsari heimsins fæddist, en ennþá stend- ur aðeins þessi múhameðska áletrun, er hefir slæm áhrif á kristinn mann þrátt fyrir virðingu fyrir »föður hinna trúuðu«, hinum hlýðna Guðs þjóni, Abraham, Fyrir utan Jaffa hliðið er Hinnonsdalur til vinstri og Refaimdalur til hægri. Refaít- ar eða Rafas börn bjuggu í Refaimdaln- um þegar ísraelsmenn unnu landið. Þeir voru meðal frumbyg'gjenda. Kanaans, sem hafa verið mjög miklir vexti. Sendimenn Móse urðu hræddir, þegar þeir sáu íbúa fyrirheitna landsins. »Allt fólkið, sem við sáum þar eru risavaxnir menn«, sögðu þeii við Móse, »og vjer vorum í augum sjálfra vor og þeirra, sem engisprettur«. (4. Mós. 13, 32—33).. Á dögum Ðavíðs konungs voru ennþá leyfar af þessum frumbyggjum, en börn Rafas bjugg'u ekki þá í Refaímdaln- um, heldur á Gat, sem álitið er að verið hafi fyrir sunnan Jaffa milli Ekron og Asdot. Golíat og hinar hetjurnar, sem tal- að er um í 2. Sam. 21. komu þaðan. Efraim- dalurinn þar sem hetjurnar bjuggu á dög- um Móse og þar sem faðir Davíðs bjó áð- ur en hann flutti til Betlehem, hefir ekki neitt sjerstakt að bjóða nútíma-ferðamönn- um, þar er nú úthverfi Jerúsalem. Járn- brautin er lögð þar sem menn álíta að Efraimssljettan hafi verið, og sjálfur dal-

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.