Bjarmi

Volume

Bjarmi - 15.04.1940, Page 4

Bjarmi - 15.04.1940, Page 4
4 B J A R M I Dagskrá mótsins að Brautarhóli hefir ekki verið ákveðin að fullu, en verð- ur væntanlega birt í næsta blaði. Ilún verður nefnilega ekki alveg eins og Hraungerðisdagskráin, vegna skorts á starfskröftum. Vinirnir fyrir norðan undirbúa nú mótið eins og þeir geta, og erum vér þess fullvissir, að það verður ánægulegt að koma að Brautarhóli. Gott og eigulegt rit. Eins og getið er um á öðrum stað hér í blaðinu, er þess nú minnzt, að 400 ár eru liðin frá útkomu Nýja-testamentisins á vora tungu. Hefir þess verið minnzt með guðsþjónustum og samkomum og greinar verið rit- aðar um þessa fyrstu kunnu þýð- ingu testamentisins. Einn liður i minningu um þýð- ingu Odds Gottskálkssonar er sá, að á fjögurra alda afmælinu, 12. apríl, kom út sýnishorn af þýð- ingu Odds. Jóliannes Sigurðsson er útgefandinn, en síra Sigurður Pálsson mun hafa valið kaflana. í þessu riti er og bréf konungs, sem prentað var með fyrstu þýð- ingunni, svo og formáli Odds fyr- ir Opinberunarhókinni og hinn stórum eftirtektarverði eftirmáli hans við þýðinguna. Útgáfa þessa minningarrits hlýtur að hafa ver- ið dýr, þvi útgáfan er mjög svo glæsileg, þótt hún sé ekki stór. Titilblað mjög svo fagurt, prent- að með tveimur litum. Er þar haganlega fyrirkomið táknum guðspjallamannanna fjögurra, Ijósastikunni, sem táknar söfnuð- inn, Biblíunni, dúfunni, kaleikn- um og krossinum. Og auk þess má sjá myndir af fornu biskupastól- unum Skálholti og Hólum. Auk skautlegs titilblaðs, er fagur rammi utan um lesmál hverrar síðu, og uppliafsstafir prentaðir í rauðum lit. Þetta er nú það ytra, sem mælir með þessu litla, en mjög svo snotra minningarriti þýðingarinnar. En aðalatriðið er þó hitt, að hér gefst trúuðum mönnum kostur á að sjá og eignast kafla úr fyrstu þýðingu Guðs heilaga orðs. Og það ætti svo að vera, að trúaðir mensn tæki þessari útgáfu með fögnuði og þrái að eiga þennan dýrmæta fjársjóð — Guðs orð — á vorri tungu, og því ber oss að varðveita og blessa minning þeirra, sem gáfu oss hana. Og það gerum vér vel með því að eiga þessa bók og nota hana. Eft- irmáli Odds hefir enn sinn boð- skap að flytja. Vér vildum hvetja alla, sem þess eiga kost, að kaupa þetta rit. Það kostar kr. 3.00 í kápu og 4.50 í bandi. Bitið fæst í öll- um bókaverslunum — og má einnig panta hjá afgreiðslu „Bjarma“. Það er alltaf eitthvað aðlaðandi og hlýtt við samverustundir unga fólksins, þegar það situr inni í. hlýrri slofu um kalt vetrarkvöld. Gestirnir í Grænuhlíð finna það, þar sem þeir sitja í kringum horðið, í fjörugum samræðum, og borða. Þegar máltíðinni er lokið, taka stúlkurnar til. Á meðan situr Leif- ur og ruggar sér í ruggustól og skoðar í gamla myndamöppu. Andrés spilar á gamalt orgel, að því er virðist algerlega hugsana- laust. Knútur, hár og grannur, dökkhærður og skarpleitur pilt- ur, stendur með hendur í vösum og skoðar málverlc. Stuttu síðar eru þau öll sex sest inn í stofu, og reyna að koma frjálsu samtali af stað. En það tekst illa. Aðstæðurnar eru nokk- uð erfiðar, þar sem Leifur er yf- irlýstur trúaður maður. Og hann er sér þess fyllilega meðvitandi. Og hin fimm eru smeyk við að segja nokkuð vanhugsað. Auk þess er samveran einskon- ar heiðursboð fyrir Leif, sem bjargaði „gestgjafanum“ og And- rés, sem bjargaði Leifi. Þess vegna geta þau ekki talað um hvað sem er. Það voru sannarlega lífið og dauðinn, sem tókust á úti á vök- inni, og svo aftur á sjúkrabeðn- um. 1 þetta sinn tapaði dauðinn, og þess vegna er þetta minning- arstund fyrir sigur lífsins. Það verður þvi að tala um hluti, sem samboðnir eru þeim sigri. „Var ekki hræðilegt að liggja í vatninu?“ spyr Andrés Berg- ljótu. „Eg veit ekki hvernig það var. Eg skynjaði svo lítið af veruleik- anum.“ „Þú hefir verið neydd til að skynja eitthvað. Lif þitt var í hættu“, grípur Ragna, sem er glaðlynd, fram í. „Hugsanirnar námu staðar. Mig grunaði ekkert livað á eftir færi. En fortíðin rann upp fyrir mér, eins og draumur.“ „Einmitt það. Hugsaðir þú ekk- ert um .það, sem óhjákvæmilega mundi koma, ef . .. . “ segir Knút- ur, og horfir rannsakandi augum á hana. Leifur hlustar. þögull. Hann hugsar um „hinn“ ræningjann á krossinum, þann, sem ekki fékk að fara með í Paradís. — Vissu- lega er hægt að deyja, án þess að hugsa nokkuð um það, sem á eft- ir fer------— jafnvel fyrir ófrels- aðan mann. „En þig gat ómögulega dreymt svona mikið þessa stund, sem þú varst í vatninu?“ „Jú, og miklu meira.“ „Því trúi eg vel,“ segir Leifur. „Draumurinn er óháður tímanum, og þýðingarmestu atburðir lifsins þjappast saman í smá augnablik, og löng ár líða hjá eins og and- varp.“ „Vissir þú hvað i húfi var, þeg- ar þú stökkst út á eftir henni, Leifur?“ spyr Ástríður. Spurningin er barnsleg og feimnisleg, en Leifur svarar henni hlátt áfram: „Eg get ómögulega munað hvort eg hugsaði nokkuð eða vissi yfirleitt. Það er sjálf- sagt réttast að segja, að eg hegð- aði mér ósjálfrátt eftir því lög- máli, sem virðist skráð í hvert Sumarstarf K. F. U. M. Sumarstarfsnefnd K.F.U.M. hefur beðið Bjarma fyrir eítirfarandi upp- lýsingar: Þrátt fyrir mikla erfiðleika verður reynt að reka sumarstarf í Vatnaskógi fyrir drengi og pilta, með sem likustu íyrirkomulagi og undanfarin ár. — Þó verður ekki hjá því komizt, að hækka þátttökugjald alltilfinnanlega. Ákveðið hefur verið ]>að gjald, sem hér segir, miðað við vikudvöl: fyrir drengi undir 14 ára kr. 27.00, fyrir pilta 14 ára og eldri kr. 33.00. Þessu verði er mjög í hóf stillt, miðað við almenna verðhækkun, en því verður reynt að halda, svo framarlega sem ekki verður alveg ófyrirsjáanlega mik- ii verðhækkun á þessu tímabili. Undanfarin ár hefur verið hægt að fá keypt gjafakort, sem tryggja drengjum aðgang að skóginum. Þessi kort verður einnig hægt að fá í ár, með ofangreindu verði, hjá Arna Sig- urjónssyni, Þórsgötu 4. Vér vildum sérstaklega mæla með slíkum kortum sem hentugum fermingar- eða tæki- færisgjöfum til pilta, sem e. t. v. mundu annars ekki eiga kost á að dvelja í Vatnaskógi. * Hvað eru áhyggjur? Þegar ung stúlka var einu sinni að þvi spurð, hvað hún ætti við með orð- inu ,,áhyggjur“„ svaraði hún: ,,Á- hyggjur eru það, að hugsa um fram- tíðina, eins og enginn Guð væri til.“ * ,,Det norske lutherske Kinamisjons- forbund“ í Noregi, kristniboðsfélagið, sem Ólafur Ólafsson starfar i sam- bandi við, minntist nýlega 50 ára af- mælis sins. Á þessum tíma hefir félag- ið farið ört vaxandi og er nú næst stærsta kristniboðsfélaga Norðmanna. Auk kristniboðs í Kina og Mansjúríu rekur það mikið heimastarf. * Norðurlönd höfðu tekið að sér að hlaupa undir bagga með kristniboði Finna, sem. var lamað eftir finnsk- rússnesku styrjöldina. Norðmenn voru í þann veginn að safna 30 þús. krón- um, þegar Þjóðverjar ruddust inn i landið. Nú má búast við að kristni- boð Norðmanna lendi í sama vanda og kristniboðsfélög Finna. Á þessu ári hefir verið lokið við prentun á stærsta upplagi, sem prent- að hefir verið af Biblíunni á rúss- nesku. Það er 80 þús. eintök — og flýgur út. En sá erfiðleiki er á út- breiðslu hennar í Rússlandi, að hún er bönnuð, og verður því að ,,smygla“ henni til kaupenda — svo fagurlega sem það hljómar. mannslijarta. Það var slcylda mín að hjarga henni og eg hegðaði mér sldlyrðislaust eftir þeirri kröfu. — Og svo er eg trúaður. Það hefir mikla þýðingu á slíkum stundum. Lífið er mér Iíristur og dauðinn ávinningur.“ Það varð þögn. Að þetta séu ekki ímyndanir, er þeim öllum ljóst. Bergljót ef til vill bezt. Hún brosir, en djúp alvara livílir þó yfir svip hennar, er hún segir: „Þú hefir víst rétt fyrir þér, Leif- ur.“ Nú verður þögnin dálitið þving- andi. Þau verða um fram allt að finna einhverja aðra dægrastytt- ingu. „Nú verður þú að syngja fyrir okkur, Bergljót“, segir Ástriður allt í einu. „Já, gerðu það!“ svara hin. Hún sezt við orgelið, hálfnauð- ug, spilar nokkurar hendingar, og byrjar svo að syngja uppáhalds söng, sinn: Ó, mig langar sem lóa’ a'ð syngja á ljúfu vori í stormsins gný, :|: að gleðja særða, er sorgir þyngja, ' að sólskin vorsins þeir finni’ á ný. :|: „Æ! Það er svo þreytandi, að syngja og spila í einu.“ „Ég skal þá spila undir. Því þú verður að syngja meira“, og Leifur sezt við orgelið. Það var nú reyndar það, sem hún óskaði sér. Svo hljómar „Nú liða dagar, liður tið“, hrífandi. Allir syngja síðasta versið með. Leifur er mjög hrærður: „Eitt sinn mun hjarlað liætta að slá, og hula síga’ á augu mín.“ Hann snýr sér, hrifinn, að þeim, og segir hlýlega: „Ó, að vér minntumst þessara orða. Því eftir því, sem ég hefi lieyrt lijá þeim, sem komnir eru á efri ár, þá líður æfin fljótt. Og hreinar og fagrar æskuminningar gera ellina hjarta.“ Hann vill gjarnan segja meira, en brestur djörfung. Hann þorir ekki að segja frá frelsinu í Kristi. Bergljót verður að syngja á ný. Eftir að hún liafði lokið söngn- um varð dálítið hlé, og þau neyta ávaxta og láta sér líða vel á ýms- an hátt. Á meðan ræða þau um ýmislegt, sem er dálítið varið i. „Á ég að syngja dálítið fyrir ykkur?“ spyr Leifur allt í einu, og gengur að orgelinu. Það er ekki laust við að hann slcjálfi i knjánum og sé kvíðafullur. — Fyrstu tónarnir eru því Óstyrkir og veikir. En svo breytist það í styrkt forspil að ókunnum söng: Upp á liæð skín við oss gamall hrörlegur kross, sem á hörmung og kvöl minnir enn. En ég elska hann þó, þar hinn albezti dó fyrir auma og synduga menn. Krossins hrörnun og rýrð gyllir himnanna dýrð, þar hinn heilagi sonur Guðs dó. Öll mín helgun og dyggð á hann hans dauða er byggð, öll mín djörfung og heilög ró. Ó, ég undrast og elska þann kross, þar eilifðarmarki ég næ, fyrir hrörlegan kvalanna kross lífsins kórónu seinast ég fæ.

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.