Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.02.1947, Side 2

Bjarmi - 01.02.1947, Side 2
2 B J A R M I Ég hef hér á borðinu fvrir framan mig nokkrar myndir, sem ég er dálítið hrifinn af. Þetta eru fallegar biblíumyndir, sem að vísu munu vera ællaðar börnum, cn þær eru jafngóðar fyrir því. Eigum við ekki að skoða nokkr- ar þeirra dálitla stund og vita, livað þær segja okkur. Hér er til dæmis ein, sem er sérstaklega falleg. Hún sýnir fjár- hirðana, sem voru á Betlehems- völlum hina fyrstu jólanótt. „Dýrð Drottins“ ljómar í kring- um þá, og engill birtist þeim og segir: „Verið óhræddir, þvi sjá: ég hoða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnuni, ])ví að yður er í dag frelsari fædd- ur, sem er Kristur Drottinn í borg' Davíðs“. Og þarna sjást fleiri englar, sem lofa Guð og segja: „Dýrð sé Guði i upphæðum, og friður á jörðu með þeim mönn- um, sem hann hefir velþóknun á.“ (Lúk. 2, 10—14). — Að hugsa sér, að Guð skyldi fara að segja fjárhirðum frá ])essu! Hví birti hann ekki heldur einhverjum höfðingjanum eða jafnvel keis- aranum ]>essi stórkostlegu tið- indi? Nei, Iiann kemur til smæl- ingjanna. Þetta flytur mér gleði- hoðskap. Drottinn kemur til min og segir við mig: Sjá, ég boða þér mikinn fögnuð: frelsarinn er fæddur! Engillinn sagði við fjár- hirðana: „Hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og liggjandi i jötu“. (Lúk. 2, 12). Og fjárhirðarnir fundu. Drottinn segir líka við mig: Þú munt finna! — Eigum við ekki að koma? Við munum finna, því að hann bíður. Hér er önnur mynd: Heimsókn vitringanna. „Og ]>eir opnuðu fjárhirzlur sínar og færðu því (barninu) gjafir: gull, reykelsi og myrru“. (Matt. 2, 11). Vitring- arnir gáfu mikið. Hvað get ég gefið? „Gef þig allan að hans vilja, — allan, allan gaf hann sig“. Vilt þú koma með — til -Tesú? Þriðja myndin er af Mariu með barnið — „jólabarnið“. „Heims um ból helg eru jól; signuð mær son Guðs ól“. — Hefurðu nokk- urn tíma fundið það, hvað jólin geta verið leiðinleg, — þ. e. a. s. þar sem Jesús fær ekki að skapa jólahátíðina? Góður matur, ný föt, heimsókn kunningja . .. allt er gert til að breyia til. En ef Jesúm vantar, ef þetta á allt að vera heimslegt, — ja, þá eru bara cngin jól. — Átt þú jólagleðina? Er Jesús á þínu lieimili um jólin, og ávallt? Opnaðu hjarta þitt fyr- ir honum, og þú munt taka und- ir með Davíð: „Lofa þú Drottin, sála min, og allt sem i mér er!“ Fjórða mvndin: Jesús í muster- inu. Foreldrar lians höfðu „týnt“ honum, en fundið hann að lokum í musterinu -— húsi Drottins. Þar var hann „mitt á meðal lærimeist- aranna og gerði hvort tveggja að hlýða á þá og spyrja þá. En alla, sem heyrðu til lians, furðaði á skilningi hans og andsvörum. Og er þau sáu liann, urðu þau for- viða; og móðir hans sagði við hann: „Barn, hvi gerðirðu okk- ur þetla? Sjá, faðir þinn og ég leituðum þín liarmþrungin“. Og hann sagði við þau: „Hvers vegna voruð þið að leita að mér? Viss- uð þið ekki, að mér ber að vera í því, sem míns föður er?“ (Lúk. 2, 46—49). — Lærisveinar .Tesú læra það smám saman, að lijá honum hafa þeir alll, sem þeir þurfa. Einnig gleðin, hin sanna gleði, veitist i samfélaginu við hann. Davíð þékkti gleðina i Drottni. Hann segir t. d. i 27. sálminum, 4. v.: „Eins hefi ég heðið Drottin, ])að eitt þrái ég: að ég fái að dveljast í húsi Drott- ins alla ævidaga mína, til ])ess að skoða yndisleik Drottins, sökkva mér niður í hugleiðingar í musteri hans“. — Vinur minn, hvar er uppspretta gleði þinnar? þú veizt, hvar beztu gleðina er að finna. Viltu koma með til Jesú? Ilér er mynd af ungum dreng. Svipur hans er hreinn og frjáls og sakleysi skín úr augunum. Undir myndinni stendur: Dreng- urinn Kristur. — Skyldi svipur minn bera vott um, að ég sé lærisveinn Drottins? Já, daglegl lif mitt, orð og öll framkoma, er ])að sannur vitnisburður? Páll postuli ritar: „Legg kapp á að sýna sjálfan þig fullreyndan fyr- ir Guði, verkamann, er ekki þarf að skammast sín, sem fer rétt með orð sannleikans". (II. Tím. 2, 15). Ein myndin er af ríka mann- inum, sem spurði Jesú, hvað hann ætti að gera til þess að eign- ast eilíft líf. Þetta var réttlátur og góður maður, sem hafði gert sér far um að lifa samkvæmt lög- máli Drottins. En hann vissi, að hann átti ekki eilífa lífið. „En Jesús horfði á liann og fór að þyk ja vænt um hann og sagði við hann: „Eins er þér vant; far þú og sel allar eigur ])ínar og gef fá- tækum, og munl þú fjársjóð eiga á hinmi; kom síðan og fylg mér“. En liann varð dapur í hragði við þau orð og fór burt hryggur, því að hann átti miklar eignir“. (Mark. 10, 21—22). — Ilann fór, því að hann vildi ckki sleppa eignunnm, sem hann elskaði, elsk- aði meira en eilífa lífið. Þurfum við engu að sleppa, þú og ég? Jesús krefst e. t. v. ekki, að ég selji allar eigur minar. En það er kannske eitlhvað annað, sem ég þarf að losna við, annað .... það er synd. „Þetta þarf ég að losna við, og þetta lika.“ Hann hendir mér á það. Það er e. t. v. einhver „smásynd". Ég held í hana, — og hlessun Drollins kemst ekki að. Ég sleppi henni, — og Drottinn gefur mér miklu meira og dýrðlegra í staðinn. .Tesús gefur kraft og sigur. „Drag mig nær, þótl galan sé ei greið, gegnum dimma næturskuggans leið. Svi])t mig því, er svipta þarf mig hér, sífelll drag mig nær, ó, Herra, þér“. Lærisveina Drottins langar til að breiða út fagnaðarboðskapinn um Jesúm. Það er hægt að gera það á margan liátt. Hér er mynd af því, hvernig einn af fyrstu lærisveinum Jesú starfaði fyrir hann. Það er Andrés, sem finnur bróður sinn Símon og segir við liann: „Við höfum fundið Mess- ías“, það er útlagt: smurður; og hann fór með hann til Jesú. (.Tóh. 1, 42—43). — Hvað geri ég fyrir Drottin? Hvað gerir þú? Verk- efnin eru mörg. „Litið á akrana: þeir eru þegar hvítir til upp- skeru!“ (Jóh. 4. 35). Segjum: Drottinn, hér er ég, send mig! Þarna er skrítin mynd. Hún er af Jesú ásamt börnum af ýmsum kynflokkum. Varla hafa þó ver- ið svona marglituð börn í Gvð- ingalandi! Nei, auðvilað ekki, en Jesús sagði: „Alll vald er mér gefið á himni og jörðu. Farið því og gerið allar þjóðir að mínum lærisveinum, með því að skíra þá til nafns föðursins, sonarins og hins heilaga anda. og kennið þeim að halda allt það, sem ég hef boðið yður. Og sjá, ég er með yður alla daga, allt til enda veraldarinnar.“ (Matt. 28,18—20). Ef við hlýðum þessu kalli, þá verður myndin sönn. Segjum: Glaður vil ég vinna fyrir þig! Önnur mynd: Við sjáum snar- bratta klettahlíð. Fyrir neðan er djúp gjá. Stór ránfugl svífur i loftinu. Hann liorfir með athvgli á sauð, sem stendur í klettaskoru. Sauðurinn kemst auðsjáanlega hvorki upp né niður. Hann er al- gerlega ósjálfbjarga. En nú sjá- um við meira: Hirðirinn er kom- inn! Hann hefir (fundið týnda sauðinn og er nú kominn til að bjarga honum. — Ilvað táknar þessi mynd? Klettaskoran lieitir synd. Ránfuglinn er Satan, sem bíður eftir því að sauðurinn hrapi niður í djúpið glötun. Sauðurinn ert þú. Hirðirinn er Jesús. Hann er kominn til að hjarga þér úr syndinni, sem held- ur þér unz ])ú fellur . . . fellur . .. glatast. Jesús þráir að taka þig í faðm sér, því að þar ertu örugg- ur. Leslu um góða hirðinn i 10. kapítula Jóhannesar. Það eru hér fleiri myndir, sem gaman væri að skoða. En við skulum lála þetta nægja núna. Ég vona, að þú hafir hafl ánægju af myndunum, hæði ])ú sem trúir, að þú mæltir styrkjast í trúnni, og einnig þú sem e. t. v. hefir ekki ennþá gefizt Drottni, að þú meg- ir opna hjarta þitt fyrir honum. Guð blessi ])ig. — v. Verkefni kristinnar æsku — Framli. af 1. síðu. sjúríu. Þetta er vist fjórða skipti, sem ég fæ að vera viðstaddui' brottför kristniboða. Ég hefi einnig fengið að sjá kristniboða koma heim og það kristniboða, sem höfðu verið fjarri ástvinum sínum í mörg ár. Flestir, eða allir, lengur en þeir áttu að vera. Þeir komu með lest frá Svíþjóð. Þangað höfðu þeir komið með flugvél. Það var há- tíðlegt að sjá, þegar lestin kom. Á hrautarpallinum stóðu meðal annarra gömul hjón. Þau voru að taka á móti dóttur sinni — og það voru góðar móttökur. Þar stóð líka kona með dætur sinar. Andlitin ljómuðu. Hann pabhi var að koma. Þær yngstu mundu líklega ekki eftir, hvernig hann leit út i raun og veru. Þarna kom hann út úr lestinni. — En sú gleði. Einn kristniboðanna hafði náð lestinni daginn áður og komst þannig nógu snennna til þess að horða og fara síðan beint í kirkjn með syni sínum, sem átti að fara að ferma. Ekki var það amaleg heimkoma. Frásögur þeirra. Fréttirnar, sem þeir koma með: — Hinn kristni leiðtogi Kinaveld- is liefir gefið út þá fyrirskipun, að ryðja skuli öll hof. Það er gert. Heiðingjarnir í| Kína eru að missa trúna á liin dauðu stein- líkneski. En hvað tekur við? Ég Iieyrði einn kristniboða segja, að nú snúi kínversk æska baki við guðunum og snúi sér til tóm- leikans. Þeir eiga engan lifandi frelsara, eins og við, sem þeir geti komið til. Verkefnin eru mik- il og möguleikarnir miklir. Kristniboðinn, sem ég var að segja frá, lauk máli sínu með ])vi, að liann hefði á heimleið- inni lesið, að aðeins Kin- verja væru kristnir, en 99%%

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.