Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.07.1957, Blaðsíða 1

Bjarmi - 01.07.1957, Blaðsíða 1
11.—12. tbl. Reykjavík, júlí-ágúst 1957 „Kristur er ineii, Kristur vinnur verkiiT * Stæða séra Sigurjóns Þ. Arnasonar við kristniboðavígsluna í Vatnaskógi Jesús sagði upprisinn við læri- sveina sína: ,,Þér munuð öðlast Þraft, er heilagur andi kemur yfir yður, og þér munuð verða vottar mínir bæði í Jerúsalem og í allri Júdeu og Samaríu og til yztu endi- marka jarðarinnar". (Post. 1,8). Vottar Jesú skulu lærisveinar hans vera. Það gildir um þá alla til efsta dags, hvern á sinn hátt. Hvern í sinni kynslóð, votta Jesú og fagnaðarerindis hans. Flestir skulum við vottar vera í okkar Jerúsalem og okkar Júdeu, þar sem við vorum borin, í okkar ætt- landi, hjá okkar þjóð, í okkar um- hverfi, í okkar lífi og starfi þar. En enn gildir einnig boð Drottins til lærisveina hans, vottar hans skulu þeir vera, „til yztu endi- marka jarðarinnar". I hlýðni við það boð Drottins yfirgefa menn enn ættland og eigin þjóð og halda til fjarlægra þjóða til þess að vera þar vottar Jesú Krists, beinlínis til þess að flytja þangað hin miklu fagnaðartíðindi um Drottin Jes- úm. Þið ungu hjón vígizt hér í dag til þeirrar háleitu þjónustu. Það er háleit þjónusta að flytja meðbræðrunum hinn fagnaðarrík- asta boðskap, sem mönnunum hef- ir borizt, hin miklu tíðindi um hið eina, sem svo er stórt, að nægir mannlegri þörf: Fagnaðarerindið um Jesúm Krist, frelsara mann- kynsins. Fagnaðarerindið um Guðs voldugu trúfesti og óbrigðulu elsku í Jesú Kristi, sem fyrir okk- ur er fæddur, sem fyrir okkur er dáinn, fyrir okkur upprisinn, svo við getum lifað með Guði æviár jarðlífs og fyrir hans voldugu náð með honum að eilífu. Það er alltaf háleit þjónusta að mega vera vott- ur Guðs fagnaðarerindis í Jesú Kristi. Og þó í meðvitund okkar kristinna manna eigi sízt heilagt hlutverk að fara með fagnaðarer- indið til þjóða, sem eru rétt að byrja að heyra það. Slíkt er ykkar háleita hlutverk, ungu kristniboðs- hjón. En háleitu hlutverki fylgir vandi. Hvernig fá menn innt því- líkt hlutverk af hendi ? Hvernig fá menn borið þvílílc undraverð, næstum óskiljanlega góð tíðindi eins og fagnaðarerindið í Jesú þannig til mannanna, að þeir heyri og trúi ? Hvernig fæ ég valdið slíku hlutverki, svo að gagni verði? Það er hin heita spurning hvers þess, er fagnaðarerindið á að flytja. Og án efa hugsið þið á vígsluhátíð ykkar, kristniboðshjón, um starfið sem þið gangið nú senn inn í, og vanda þess. Kannske leyfist mér þá að und- irstrika á þessari stundu það, sem þið vel vitið, að fagnaðarerindið, sem þið eigið að þjóna að hjá framandi þjóð, „er kraftur Guðs til hjálpræðis“, orðið, sem þið eigið að túlka, er „orð krossins, sem er „kraftur Guðs“ (sbr. I. Kor 1,18). Guð vinnur sitt verk, hvar sem fagnaðarerindi hans um Jesúm Krist er boðað í miklum mannleg- um veikleika. Guð er þess kraftur og Guð verkar í því. Svar Roberts Morrisons, hins mikla kristniboða í Kína, er al- þekkt, við spurningu skipstjórans sem flutti hann til Kanton. „Og þér, herra Morrison, væntið þess í raun og veru að hafa áhrif á hið heiðna kínverska ríki?“, sagði skipstjórinn. „Nei herra", svaraði Morrison „ég vænti þess, að Guð vilji gera það“. Guð vinnur verk sitt, hvar sem fagnaðarerindið er boðað. Guð 'hefir unnið milda hluti í kristniboðsstarfi þessarar og hinnar síðustu aldar, svo vegna þess starfs hefir kristni nú fest rætur hjá fleiri þjóðum en nokkru sinni fyrr. Og Guðs kraftur verk- ar áfram í náðarorði krossins. 1 fagnaðarerindinu um Jesúm, sem er kraftur Guðs til hjálpræðis, mun Guð áfram á ný taka menn á vald sitt, hvar sem það er boðað. Það er hinn óhagganlegi grund- völlur alls kristniboðs. 1 trausti til þess skuluð þið, góðu kristniboðs- hjón, ganga til starfs og starfa. Fullviss um það megið þið ganga fram með fagnaðarerindið þar, sem Guð felur ykkur að vitna um Jesúm Krist: Á Guði sjálfum hvílir að lokum útbreiðsla hans ríkis. Þetta er gott að vita og muna vel. En þótt það sé Guð, sem vinnur menn á Krists hjálp- ræðisvald með fagnaðarerindinu, er hitt og staðreynd, að misjafnir eru ávextir þjónustu lærisveins við Drottin sinn. Misjafnir líka 51. árgangur ávextir boðunarinnar. Erfiðleikar mæta öllum ytri og innri. En það er svo ólíkt, hvernig allt samverk- ar til þess að gera okkur hæfa þjóna í hendi frelsarans. Einnig hér er lausnin ein kraft- ur Guðs í fagnaðarerindinu, að sá, sem þjóna á fagnaðarerind- inu, veiti því sjálfur viðtöku, lifi á fagnaðarerindinu í eigin lífi. Lifa með Jesú. Eiga með honum líka erfiðleikana, líka eigið getu- leysi og veikleika, allan vanda. Leggja það allt á vald hans náðar og treysta honum, hans fyrirheit- um, ómælanlegri getu hans elsku líka til að leiða okkur og frelsa. Svo fullnast fyrirheiti Drottins æ á ný í lífi þjóns hans. Þér munuð öðlast kraft, er heilagur andi kemur yfir yður. Svo fullnast æ á ný Guðs orðið í lífi manna. Náð mín nægir þér; því að mátt- urinn fullkomnast í veikleika. (II Kor. 12,9). Svo getur Guð enn not- að hina veikustu menn til bless- unarríks starfs í þjónustu hans. Ungu kristniboðshjón, ykkar bíður veglegt starf en vandasamt, sem án efa gerir til ykkar miklar kröfur, er ykkur sýnast einatt erfiðar og þið harla veik til að uppfylla. En Kristur er með. Kristur vinnur verk sitt. Kristur vill einnig vinna verk sitt í ykkar lífi, svo að þið verðið hæfir vottar hjá þjóðinni, er hann sendir ykkur til. Manna hendur falla. Jafnvel fyrirbænarhendur geta þreyttar hnigið. En Jesús Kristur breytist eigi og bregzt engum. Mætti ykkur auðnast að halda ykkur ætíð fast að Kristi sjálfum í trú, lifa á fagnaðarerindi Guðs í Jesú Kristi, svo nærri Drottni sjálfum, að hann gefi ykkur krafta til að vera trúir vottar hans. Svo verðið þið vígð til hins helga starfs. Svo hverfið þið til starfs hjá framandi þjóð til þess að vera þar vottar Drottins. Guð veiti ykkur kraft frá sér. Guð geri ykk- ur sanna sterka þjóna sína þar. Guð gefi ykkur hreinan, styrkan vitnisburð og mikið af kærleika sínum til mannanna, sem þið eigið að vinna fyrir, að hans vilja. Guð láti mátt sinn fullkomnast í ykk- ar veikleika, svo að ykkur mætti auðnast að starfa í Konsó mann- sálunum og þjóð til heilla og Drottni okkar og frelsara til veg- semdar og dýrðar í því kristni- boðsstarfi, sem þið hafði veiið kölluð til. Frá kristniboðsrígslunni Þessi mynd er tekin, er kristniboðahjónin og þeir, sem aðstoðuðu við vígslu þeirra, eru á leið til samkomutjaldsins í Vatnaskógi. Á myndinni sjást: Síra Sigurjón Þ. Árnason (aítast), frú Margrét Hróbjartsdóttir, Benedikt Jasonarson, síra Jónas Gíslason, síra Friðrik Friðriksson, Jóliannes Sigurðsson og Þórður Gislason. — Sjá nánari frásögn á síðu 5.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.