Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.09.1975, Síða 3

Bjarmi - 01.09.1975, Síða 3
Gídeonhreyfingin var stofnuð fyrir 76 árum, og hófst starfsemin í Bandaríkjunum. Markmið hennar er að út- breiða trúna á Jesúm Krist, og leggur hreyfingin áherzlu á dreifingu Ritningarinnar. Samkvæmt skýrslum frá því í febrúar á þessu ári höfðu Gídeonsamtökin þá útbýtt nær- fellt 14.500.000 Biblíum og rösklega 131.000.000 Nýja testamentum. Gídeonmenn á íslandi hafa frá upphafi úthlutað yfir 4.000 Biblíum á íslenzku og ensku og um 100.000 Nýja testamentum og að auki um 14.000 eintökum af guðspjalli Jóhannesar. Eftirfarandi grein hefur Þorkell G. Sigurbjörnsson skrifað fyrir Bjarma í tilefni af 30 ára afmæli Gídeonhreyfingar- innar á íslandi. „Tökudrengurinnu kom heim til Islands og stofnadi félag . . . Gideon 30 ára Seinni hluta ágústmánaðar 1945 kom hingað til lands vestur-ís- lenzki kaupsýslumaðurinn Kristinn Guðnason, sem andaðist 23. des. 1958, 75 ára gamall. Aðaltilgang- ur komu hans var að kanna mögu- leika á að stofna hér Gídeonfélag. Þessari blessunarríku för og góða tilgangi var vissulega stjórnað af Guði, enda varð árangurinn slík- ur, að vart verður efazt um hand- leiðslu Guðs, sem með trúum þjón- um sínum hafði undirbúið jarð- veginn, sem gjörði slíka félags- stofnun mögulega. Einn augljósasti votturinn um handleiðslu Guðs er sú staðreynd, að Kristinn skyldi leita á fund Ólafs Ólafssonar kristniboða og biðja hann, en ekki einhvern annan, um aðstoð til að kalla saman kristna verzlunar- og kaupsýslumenn, því að á þeim tíma mun Ólafur líklega hafa verið ein- asti maðurinn hér á landi, sem vegna vinsælda sinna og álirifa gat náð saman svo mörgum sem 17 kristnum verzlunarmönnum og tal- ið þá á að taka höndum saman um myndun þessara blessunarríku samtaka, eftir að Kristinn hafði kynnt starf Gídeonfélagsins. Fé- lagið hafði ekki enn fest rætur utan Ameríku, þótt hliðstæð félög hefðu reyndar verið stofnuð áður á Norð- urlöndunum þrem, Svíþjóð, Dan- mörku og Noregi, en báru þó ekki nafn Gídeons fyrr en nokkru eftir að ísl. félagið hafði verið stofnað. Eftir að Kristinn hafði þrjú kvöld í röð talað á samkomum í KFUM og kynnt Gídeonfélagið, var félagið stofnað 30. ágúst 1945 af 17 kristnum verzlunar- og kaup- sýslumönnum. Jarðvegurinn, sem Gídeonfélagið hér á landi er sprottinn upp úr, má segja að sé KFUM, enda voru allir stofnendurnir undantekningar- laust meðlimir þess félags. Séra Friðrik var ekki á landi hér, þegar félagið var stofnað. Hann var rétt ókominn heim, eftir að hafa dval- izt í Danmörku öll hernámsárin. Þegar hann kom heim og frétti af þessari félagsstofnun, gladdist hann mjög, enda sagði hann, að kristnir vinir hans meðal vefnaðar- vörukaupmanna í Kaupmannahöfn hefðu beðið sig að kanna, hvort ekki væri hægt að koma á slíkum sam- tökum á íslandi sem þeir hefðu með sér að koma biblíum fyrir í gistihúsum. Svo að segja má í já- kvæðri merkingu þess orð, að sótt hafi verið að okkur bæði úr austri og vestri í sama tilgangi. Má einnig í þessu sjá vilja Guðs og hand- leiðslu, sem við Gídeonfélagar höf- um svo margoft fengið að þreifa á allt til þessa dags. Eftir að sr. Friðrik kom heim, sat hann jafnan með okkur á fundum Gídeonsfélags- ins, sem haldnir voru mánaðarlega, þótt ekki væri hann leikmaður. Eins og kunnugt er, samanstendur félagið eingöngu af leikmönnum, þ.e. kaupsýslumönnum og öðrum sérmenntuðum mönnum. Með hliðsjón af því, hve mikil- vægan þátt sr. Friðrik hafði átt í því að hægt var að stofna hér Gideonfélag, þar sem hann hafði verið verkfæri í hendi Guðs til að undirbúa þann jarðveg, sem Gideon- félagið hér á landi er sprottið upp úr, þá var sr. Friðrik gerður að heiðursfélaga Gideonfélagsins, sá eini sem þann heiður hefur hlotið, og var undantekning gerð í þessu tilliti, þar sem lög félagsins gera ekki ráð fyrir slíku. Þrátt fyrir það, sem að framan segir, má að sjálfsögðu rekja ræt- ur Gideonfélagsins hér á landi víðar. Það verður hins vegar ekki gert í stuttri blaðagrein. Tildrögin til stofnunar félagsins hér eiga sér langan og merkilegan aðdraganda, sem fæstum er kunnur, og mun ég því skýra frá honum í stór- um dráttum, enda er starfssaga Gideonfélagsins bæði hér og er- lendis, að ég hygg, flestum lesend- um þessa blaðs svo kunn, að óþarft er að geta hennar hér, nema þá stuttlega, ef rúm blaðsins leyfir. Eins og fyrr segir, kom frum- kvöðull að stofnun Gideonfélags- ins hér á landi, Kristinn Guðnason, frá Bandaríkjum Ameríku, gagn- gert til að stofna hér Gideonfélagið, hið fyrsta utan Ameríku. Kristinn fæddist austur í Flóa. Hann ólst upp í fátækt sem töku- drengur, við sult og seyru, eins og hann sjálfur hefur sagt. Um alda- mótin síðustu, um svipað leyti og KFUM var að myndast hér á landi og Gideonfélagið í Bandaríkjunum, fer Kristinn með síldarskipi til Noregs og hefur ofan af fyrir sér með sölu bóka. Fjórum árum síðar hyggst hann freista gæfunnar í Ameríku. Hann fer til Kaupmanna- hafnar 1904, og á meðan hann bíð- ur eftir skipsfari til Bandaríkjanna, dvelst hann á hóteli þar í borg. Kvöld eitt kemur hann til hótels- ins eitthvað undir áhrifum víns. Þegar hótelþjónninn sér hann þann- ig, segir hann við hann, um leið og augu þeirra mætast: ,,Þú þarft 3

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.