Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.09.1975, Page 10

Bjarmi - 01.09.1975, Page 10
st BLESSUÐ BÓK Um rlt IVýJa tcstamentisins Guðspjall Jóhannesar Guðspjall Jóhannesar er á marg- an hátt frábrugðið fyrstu þremur guðspjöllum Nýja testamentisins. Það er eitt sérkenni þess, með hvaða hætti guðspjallamaðurinn kemur fram í riti sínu. Þar er hann ólíkur hinum fyrri guðspjallamönn- um. Lúkas einn segir „eg“ um sjálfan sig, sbr. inngang rits hans. En Jóhannes lætur það skýrt koma fram i frásögn sinni, að hann er sjónarvottur þess, sem er að gerast. Þegar í upphafi sjáum vér þennan sérstæða drátt í svipmóti bókar hans: „Vér sáum dýrð hans“, 1,14. Og í niðurlagi guðspjallsins segir: „Þessi er lærisveinninn, sem vitnar um þetta og hefir ritað þetta“, 21,24. Höfundurinn greinir að sjálfsögðu frá píslum og dauða Jesú. Þegar hann hefur sagt frá síðusárinu, sem Jesú var veitt, og að út hafi runnið blóð og vatn, segir hann hátíðlega: „Sá hefir vitnað það, sem hefir séð, og vitnis- burður hans er sannur, og hann veit, að hann segir það, sem satt er“, 19,35. Trúin þroskast. Annað sérkenni greinir þetta guðspjall frá hinum: Þegar sögu- maður hefur sagt frá atburði eða samtali, leggur hann oft áherzlu á, hvaða gildi eða merkingu það hafi, sem greint var frá. Það má segja, að Matteus, Markús og Lúk- as láti staðreyndimar sjálfar tala. Þeir geta þess oft, hver áhrif orð Jesú og verk hafi haft á þá, sem viðstaddir voru. En þeir láta les- endur yfirleitt um að draga álykt- anir af frásögninni. í þessu atriði er Jóhannesi öðru- vísi farið. Hann bendir á, að hann riti guðspjall sitt, til þess að les- endurnir skuli trúa því, að Jesús sé Kristur, sonur Guðs, 20,31. En ekki það eitt: Aftur og aftur vek- ur hann athygli á því, hvemig trúin þroskaðist með þeim, sem voru móttækilegir fyrir áhrif Jesú, en vantrú þeirra efldist, sem and- stæðir voru. Sjá 1,50; 2,11 22nn, 4,39-42,48-53; 6,69; 7,31; 8,50; 9,30; 10,4nn; 11,27,45; 12,11,38 -42; 16,30nn; 17,8; 19,35; 20,8,29. Einkum sýnir hann fram á, hvem- ig trú lærisveinanna þroskast, sbr. þegar í 1,50 og 2,11; 16,30nn; 20,8. Það var ekki fyrr en eftir dauða Jesú og upprisu, sem þeir skildu margt af því, sem Jesús hafði tal- að og sagt, 2,22; 12,16. Fyllri frásögn. Það er þó sjálft efni guðspjalls- ins og sú mynd eða form, sem orð Jesú birtast í, sem greinir þetta guðspjall öðru fremur frá hinum guðspjöllunum. Söguþráðurinn sýn- ist að sumu leyti vera annar, og „landafræði" ritsins virðist stinga í stúf við fyrstu guðspjöllin þrjú. Af samstofna guðspjöllunum mætti draga þá ályktun, að Jesús hefði ekki starfað nema eitt ár, enda kveðst hann vera sendur til að „kunngjöra hið þóknanlega ár Drottins", Lúk. 4,19. Þar er þess ekki getið nema einu sinni, að hann hafi haldið páska, þ.e. þegar hann var tekinn höndum og krossfest- ur. Þá mætti og ætla, ef vér þekkt- um ekki fjórða guðspjallið, að Jesús hefði starfað eingöngu í Galíleu, nema síðustu vikuna. í Jerúsalem var hann kenndur við Galíleu, Matt. 26,69. En oss verður Ijóst, þegar vér lesum guðspjall Jóhannesar, að svo var þessu ekki farið. Jóhannes nefnir að minnsta kosti þrenna páska í sambandi við opinbert starf Jesú; 2,13; 6,4 og 12,11. Af því verður dregin sú ályktun, að Jesús hafi unnið spámannlegt starf sitt eigi skemur en tvö ár, jafnvel þrjú. Jóhannes segir einnig frá öðrum hátíðum, sem Jesús sótti til Jerúsalem: 2,13, páskar; 5,1, ónefnd hátíð; 7,2,10; laufskála- hátíðin; 10,22, vígsluhátíð muster- isins; 11,55, páskar. Og flestir þeir atburðir, sem guðspjallamaðurinn getur um, eiga sér stað i Júdeu og Jerúsalem. Hið sama er upp á tengingnum varðandi samtöl og ræður Jesú. Jóhannes segir og ein- ungis lítið eitt frá Galíleu, 2,1—12; 4,43—54; 6,1—7,10. Þannig er ytri umgerð starfs Jesú önnur hjá Jó- hannesi en hinum guðspjallamönn- unum. Engu minni verður munurinn, þegar kemur að lýsingu Jóhann- esar á verkum og orðurn Jesú. Hér er ekkert sagt frá bernsku hans. Hér vantar líka margar þær frá- sögur, sem eru uppistaðan í sam- eiginlegu efni samstofna guðspjall- anna. Má nefna freistingu Jesú, postulakjörið, Fjallræðuna, lækn- ing manna með illa anda, líking- amar um himnaríkið, ummyndun- ina á fjallinu, baráttuna í Getse- mane og yfirheyrsluna fyrir ráð- inu. Á hinn bóginn eru í fjórða guðspjallinu aðrar frásögur, sem hinir guðspjallamennirnir sleppa og hverjum lesanda Biblíunnar eru kunnar og kærar: Köllun fyrstu lærisveinanna við Jórdan, brúð- kaupið í Kana, samtöl Jesú við Nikódemus og við samversku kon- una, lækning sjúka mannsins við Betesda, lækning blindfædda mannsins, Lazarus vakinn upp frá dauðum, fótaþvotturinn, yfir- heyrslan frammi fyrir Annasi, Jesús talar upprisinn við Tómas og birtist lærisveinunum við Tí- beríasvatn. Merking kraftaverkanna. Jóhannes velur úr kraftaverkum Jesú, er hann semur rit sitt. Hann segir frá sjö meiri háttar krafta- verkum, og hann bendir á, að þau séu tákn, ekki einungis því til sönnunar, að Jesús sé kominn frá föðurnum, heldur einnig líking um andlegt starf hans. Því er það, að Jóhannes lýsir ekki aðeins krafta- verkum hans, heldur greinir jafn- framt frá orðum, sem Jesús segir um dýpri merkingu þessara krafta- verka sinna. Frásögninni af lækn- ingu sjúka mannsins við Betesda fylgir ræða Jesú í 5. kap., þar sem Jesús leggur áherzlu á, að hann sé sá, sem lífgi menn, og eilífa lífið sé á hans valdi. Ræða Jesú, sem hann flutti í samkunduhúsinu í Kapernaum, þar sem hann lýsir því yfir, að hann sé brauð lífsins, kemur í guðspjallinu á eftir frá- sögninni af mettuninni (og af ferð lærisveinanna yfir vatnið). Jesús læknar mann, sem hafði verið blindur frá fæðingu, 9,lnn, en í næsta kap. eru ummæli Jesú, er 10

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.