Bjarmi - 01.03.1976, Qupperneq 10
Leikskólinn starfar í húsi félaganna við Langagerði í Reykjavík.
LEIKSKÓLI K.F.U.M. OG K.
ið formaður þeirra hvors um sig
um nokkurra ára skeið, og er því
gjörkunnugur kristilegu starfi með-
al íslenzkrar skólaæsku. Miklar
vonir eru bundnar við starf skóla-
prestsins, enda hefur það þegar
borið góðan árangur.
Ráðning skólaprestsins, sem er
algjörlega launaður af starfinu, er
mikið fjárhagslegt átak fyrir fá-
menn félög. Norrænu systurfélög-
in, sem KSF og KSS hafa starfað
í allnánum tengslum við, sýndu
málinu mikinn áhuga og tóku að
sér að greiða verulegan hluta launa
hans fyrstu þrjú árin, en síðan er
ætlunin, að félögin standi sjálf
allan straum af kostnaðinum við
starf hans. Eiga norrænu félögin
miklar þakkir skildar fyrir þessa
aðstoð.
Norræn kristileg skólaniót
Árlega eru haldin norræn kristi-
leg skólamót til skiptis i einhverju
Norðurlandanna, nema á íslandi,
en ferðin hingað er of löng og dýr
fyrir skólanemendur. KSS hefur
verið þátttakandi í þessum mótum
seinustu árin, og árlega hefur far-
ið allstór hópur íslenzkra skóla-
nemenda á þessi mót, nema s. 1.
sumar, en þá tóku flestir félags-
menn, sem aðstöðu höfðu til, mik-
inn þátt í undirbúningi og fram-
kvæmd norræna kristilega stúd-
entamótsins, sem þá var haldið hér
í Reykjavík í annað sinn í sög-
unni.
Þátttaka í þessum mótum hefur
verið til mikillar blessunar eins og
allt samstarfið við norrænu systur-
félögin.
KSSA
Á seinasta hausti gjörðust þau
tíðindi, að stofnað var eins konar
„útibú“ frá KSS á Akureyri. Hlaut
það nafnið Kristileg skólasamtök
á Akureyri, KSSA. Skólaprestur
var á stofnfundinum ásamt ritara
KSS í Reykjavík. Félagið hefur
starfað vel í vetur.
Skólaæskan fyrir Krist
Þetta er í stórum dráttum saga
KSS þessi þrjátíu ár, sem þau hafa
starfað. Markmiðið er enn hið sama
og í upphafi: Skólaæskan fyrir
Krist. Blessun Guðs fylgi starfi fé-
lagsins um alla framtíð, svo að það
verði tæki til þess að leiða unga
skólanemendur til trúar á .frelsara
sinn og Drottin.
Jónas Gíslason.
Oft hefur verið um það rætt,
bæði á sameiginlegum stjórnar-
fundum K.F.U.M. og K. og einnig
manna á meðal, hvernig hægt sé
að nýta betur en gert er félagshús
K.F.U.M. og K.
Málin hafa verið rædd fram og
aftur. Margar tillögur bornar
fram, með mismunandi árangri.
Ein tillagan, sem oft hefur komið
fram, var stofnun leikskóla eða
dagheimilis. Og niðurstaðan varð
sú, að samþykkt var að athuga með
stofnun leikskóla í félagshúsinu við
Langagerði 1, ef samþykki fengist
hjá viðkomandi yfirvöldum. Leyfið
fékkst, og hafizt var handa við að
undirbúa stofnun leikskóla, ekki
aðeins fyrir börn félagsfólks, held-
ur átti leikskólinn að vera opinn
öllum eins og allt annað starf
K.F.U.M. og K.
Það má segja, að nýtt blað hafi
verið brotið í sögu K.F.U.M. og K.
með stofnun leikskóla. Leikskólinn
er fyrir börn á aldrinum 2y2—5 ára.
En hvað er leikskóli? Hvílík
spurning! Eins og allir viti ekki,
hvað það er? Jú, ef til vill flestir,
en allt of oft verður maður var við,
að ruglað er saman leikskóla og
dagheimili og jafnvel bæði nöfnin
notuð jöfnum höndum um sömu
stofnun.
Hver er þá munurinn? Á dag-
heimili dvelja börnin allan daginn
eða frá 8 f. h. til kl. 5 e. h. En á
leikskóla dvelja börnin annað hvort
frá kl. 8—12 f. h eða frá kl. 1—5
eftir hádegi.
En svo að ég snúi mér aftur að
efninu: Leikskóli K.F.U.M. og K. í
Reykjavík tók til starfa 17. nóv.
s. 1. Leikskólinn starfar í tveim
deildum fyrir hádegi og tveim deild-
um eftir hádegi. — 15 börn dvelja
í hvorri deild, samtals 60 börn.
Þegar leikskólinn tók til starfa,
var nærri hvert sæti skipað, en nú
hefur myndazt biðlisti.
Sunnudaginn 16. nóv. komu
stjórnarmeðlimir félaganna sam-
an,ásamt forstöðukonu leikskólans,
Ragnhildi Ragnarsdóttur, fóstru,
og öðru starfsfólki, sem ráðið hafði
verið til starfa. Ennfremur nokkrir
sjálfboðaliðar, er unnið höfðu við
undirbúninginn. Tilgangurinn var
að sameinast í bæn fyrir starfi leik-
skólans, sem átti að taka á móti
fyrstu börnunum daginn eftir, eins
og áður er sagt.
Vorum við þá minnt á orð Jesú:
„Leyfið börnunum að koma til mín
og bannið þeim það ekki, því að
slíkra er guðsríki." Laukst þá enn
einu sinni upp fyrir mér, hve mikil-
vægt það er, að ná með fagnaðar-
erindið til barnanna, á meðan þau
eru ung og ómótuð.
Það er mikil náð að fá að taka
þátt í því starfi að sá góða sæðinu
í barnshjörtun. — Börnin eru fram-
tíð þjóðarinnar. D.
10