Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.03.1976, Side 11

Bjarmi - 01.03.1976, Side 11
Jólum mínum uni‘ eg enn Jólum mínum uni’ eg enn, og þótl stoliö hafi hœstum Guöi heimskir menn, hefi ég til þess rökin tvenn, aö á sœlum sanni er enginn vafi. (J• H.). Tveir fyrstu kapítularnir í guð- spjalli Lúkasar eru sérstæðir að því leyti, að það efni, sem þar er f jall- að um, kemur ekki fram í hinum guðspjöllunum. Lúkas var aldrei með Jesú, kom ekki til Jerú- salem fyrr en eftir dauða hans, en hann hafði náin kynni af postul- unum og án efa einnig af Maríu, móður Jesú, það ber guðspjall hans með sér. Lúkas segir í upphafi guðspjalls- ins, að hann hafi tekið sér fyrir hendur að rannsaka allt þetta efni frá rótum, og upphafið var auð- vitað að finna hjá Maríu. María var frændkona Elisabetar, móður Jóhannesar skírara, og hefur henni því verið allt kunnugt í sambandi við fæðingu hans. Jólaguðspjallið sjálft skrifar Lúkas eftir frásögn Maríu. í þeim kapítula tekur hann oftar en einu sinni svo til orða: ,,En María geymdi öll þessi orð í hiarta sínu og hugleiddi þau með sér“. Þannig hefði Lúkas ekki get- að tekið til orða, hefði hann ekki rætt við Maríu sjálfa. Til er bók, sem heitir „Læknir- inn Lúkas“. Er þar rakin ævi Lúk- asar guðspjallamanns. í bókarlok er sagt frá kynnum hans af postul- unum og Maríu. Uppistaðan af við- tali hans við Maríu kemur fram í tveim fyrstu kapítulunum í guð- spjalli hans, og hefur verið vikið að því hér að framan. Sjálfsagt hefur höfundur bókar- innar „Læknirinn Lúkas“ ekki haft öruggar heimildir fyrir öllu, sem þar er sagt, sem varla er von um svo löngu liðna atburði, en í ýmsu orðið að byggja á líkum. En frá- sögnin í tveim fyrstu kapítulum guðspjallsins hefur svo glögg ein- kenni, að hann hafi talað við Maríu, að telja má fulla vissu. Jólaguð- spjallið er því engin tilbúin helgi- sögn, heldur raunveruleg staðreynd, komin frá fyrstu hendi. Stefán Kr. Vigfússon. Stefán Kr. Vigfússon er bóndi á Arnarstöðum í Norður-Þingeyjarsýslu. Biblían í eldhúsinu HANKALAUSIR BOLLAR Eftir Kirsten Fougner Eiginlega heföi þaö átt aö vera húsmóöir, sem fann upp á aö nota þetta orðatiltœki, sem yfirskriftin felur í sér, en „því miö- ur“ hef ég þaö frá prédikara, sem var karlmaöur. En frwn- höfundur þess er ef til vill Páll þrátt fyrir allt, því aö liugsunin er sú sama og um fjársjóöimi og leirkeriö í 2. Kor. j. Allar húsmæöur, sem bera viröingu fyrir sjálfri sér, hafa a. m. k. einn hankalausan kaffibolla standandi í eldhússkápn- um og e. t. v. eina eöa tvœr skálar, sem brotnaö hefur upp úr. Bollinn er ekki œtlaöur til notkunar í síödegiskaffi tengda- mömmu, og skálarnar eru ekki settar á kalda boröiö í fimm- tugsafmœlinu. En þau standa sannarlege ekki ónotuö fyrir þaö, þau eru meö ncer þvt t lwerjum uppþvotti. Vissulega heföi átt aö vera búiö aö fleygja þeim fyrir löngu, en í hverju eigum viö þá að hrœra út geriö og geyma í afganginn af vanillusósunni? Nei, hankalausu bollarnir eru beztu þjónar okkar hversdagslega, bara ef þeir eru hreinir. Páll líkir Korintumönnum við veikbyggð leirker, þá geta lík- lega lesendur þessa blaös litiö á sig eins og gallaöa■ eldhúsbolla. Þaö er ekki heldur erfitt fyrir okkur sem kristna menn aö sam- þykkja þaö. Viö getum ef til vill litiö meö nokkurri öfund á handmálaö skraut og gylltar brúnir annarra, þaö eru bœöi þokka- legir og góöir menn t kringum okkur. Og viö vitum, aö viö œtt- um aö Ijóma eins og gljáandi silfurkönnur. Það bezta œtti oð- eins aö vera nógu gott undir innihaldiö, sem fyllir okkur. í þess staö finnst okkur aö viö séum af 2. eöa S. flokki. Þaö heföi eigin- lega fyrir löngu átt aö vera búiö aö fleygja okkur eins og liin- um, sem eru hankalausir. En hér kemur fagnaöarerindiö um veikbyggöu kerin til skjal- anna. Okkur var ábótavant og viö vorum lítils viröi, en þaö var samt gœöamerki á botninum. „Skapaöir t Guös mynd . . .“ Viö vorum dýrmæt í augum Guös. Hann þvoöi okkur hrein, þannig aö liann gat búiö í hjörtum okkar. Blóö Jesú hreinsar af allri synd. Og lún hreinustu leirker eiga aö bera þennan fjársjóö út til heimsins. ,)Heimurinn“ er svo ágengur og nálœgur. Þaö erum viö, þessir hankalausu, sem eiga að fœra þinum og mínu m hversdags- vinum fagnaöarerindiö um Jesúm. Kirsten Fougner er eiginkona Even K. Fougner, skólastjóra bibliu- skóla norska heimatrúboðsins í Staffeldtsgt. 4 og núverandi ritstjóra For Fattig og Rik. Grein þessi er úr greinarflokki, sem hún ritaði í það blað, undir yfirskriftinni Biblían fer í eldhúsið (Biblen gár kjökken- veien). Út koma 12 tölublöð á ári, 1—2 tbl. í senn. Ritstjóri Gunnar Sigurjónsson. Afgreiðsla Amtmannsstíg 2B, Reykja- vík. Pósthólf 651. Símar 17536 og 13437. Argjald kr. 350,00. Gjalddagi 1. apríl. Prentað í Prentsm. Leiftri hf. 11

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.