Bjarmi - 01.01.1990, Blaðsíða 19
- Er þá unnið á of mörgum stöðum?
- Fagnaðarerindið breiðist út eins og eldur
í sinu í Pókothéraði. Menn, sem verða
kristnir, vitna fyrir öðrum og æ fleiri taka trú.
Þeim þarf að sinna svo að þeir festi rætur en
falli ekki frá eða verði villukennendum að
bráð. Kristniboðarnir þurfa að hlúa að öllum
þeim sem eru að stíga fyrstu skrefin á veginum
- auk margvíslegra annarra verkefna í vax-
andi safnaðarstarfi.
- Hvað líður skólagöngu kristniboðs-
nemanna?
- Karl Jónas Gíslason og fjölskylda hans
eru í Osló þriðja veturinn af fjórum. Guð-
mundur Guðmundsson lauk námi nú um ára-
mótin, hann las nú síðast ensku í Lundúnum.
Hann verður í hálfu starfi hér heima nú seinni
hluta vetrar. Við vonum að hann geti farið til
Eþíópíu í haust. Það tekur jafnan nokkra
mánuði að fá atvinnuleyfi. Kristniboðarnir
þyrftu að vera fleiri. Neyðin er mikil meðal
heiðingjanna.
Meðan dagur er
- Það má þá ekki heldur slaka á í heim-
astarfinu?
- Alls ekki! Kristniboðsflokkarnir vinna al-
veg ómetanlegt starf þó að það sé að mestu í
kyrrþey. Og gleðilegt er að geta sagt frá því að
starfsmenn okkar hafa ferðast með mesta
móti það sem af er vetri. Við höfum heimsótt
marga skóla. Það er uppörvandi að finna að í
sumum skólum er beinlínis búist við okkur.
Einnig höfum við haldið samkomur á nokkr-
um stöðum.
Almennar samkomur hafa verið á miðviku-
dagskvöldum í húsnæði okkar á Háaleitis-
braut í Reykjavík frá því í haust og þar höfum
við átt góðar stundir þó að við þráum að sjá
fleiri samkomugesti. Enn erum við í mikilli
skuld vegna framkvæmdanna þar og fjárskort-
ur hamlar því að unnt sé að ljúka ýmsum verk-
efnum sem bíða þar. Vonandi sjá einhverjir
nauðsyn þess að styrkja bygginguna sérstak-
lega. - Fjórar kristniboðsvikur verða haldnar
á suðvesturhorni landsins nú seinni hluta
vetrar. Fjárþörf SÍK í ár er áætluð 18,5 mill-
jónir króna, þar af fjórar milljónir til Voitó.
- Nokkur orð að lokum?
- Það er talið að tveir af hverjum fimm
jarðarbúum séu án þekkingar á Jesú Kristi.
Og enn munu vera um tvö þúsund þjóðflokkar
þar sem enginn vitnar um Drottin. Víða um
heim fer áhugi á kristniboði vaxandi, Guði sé
■of. En andstaðan gegn trúnni á Jesúm færist
■íka í aukana. Guð viil að allir fái skilaboðin
um hjálpræði fyrir trú á Jesúm Krist. Kristna
menn skortir ekki verkefni á nýja árinu. Guð
gefi okkur öilum náð til að reynast frelsara
okkartrú. -ha
HEIMSÓKn ULRICHS PARZAHYS:
Vakningarsamkomur í
Bústaðakirkju
Eins og greint var frá í nóvemberblaði Bjarma kemur Ulrich
Parzany, aðalframkvæmdastjóri KFUM í Vestur-Þýskalandi, í
heimsókn til íslands nú í febrúar og verður hér á landi í eina viku.
Nú er unnið af fullum krafti við að undirbúa heimsóknina og hef-
ur verið ákveðið að halda vakningarviku í Bústaðakirkju dagana
18. til 24. febrúar. Samkomurnar verða haldnar í samvinnu
KFUM og KFUK, Kristniboðssambandsins, Kristilegu skóla-
hreyfíngarinnar og Ungs fólks með hlutverk. Er það fagnaðarefni
að lútherskar leikmannahreyfíngar innan þjóðkirkjunnar skuli
sameinast um þetta átak og er vonast til að það geti orðið kröftug
vakningarvika með mikilli þátttöku og að Guð blessi samkom-
urnar ríkulega og helgi þær með nærveru sinni.
Dagskrá vakningarvikunnar verður á þá leið að hún hefst með
bænasamkomu í Bústaðakirkju föstudagskvöldið 16. febrúar. Þá
er ætlunin að safnast saman til fyrirbænar fyrir samkomuvikunni.
Fyrsta samkoman verður svo sunnudagskvöldið 18. febrúar og
síðan verða samkomur öll kvöld vikunnar að undanskildu mið-
vikudagskvöldinu, því ætlunin er að Ulrich Parzany fari norður
til Akureyrar og tali á samkomu þar það kvöld. Lokasamkoman
verður laugardaginn 24. feþrúar. Allar samkomurnar hefjast kl.
20.30.
Ulrich Parzany verður aðalræðumaður á öllum samkomunum
nema seinni sunnudaginn, því hann verður að fara af landi brott
þann dag. Það er mikið gleðiefni að hann skuli sjá sér fært að
koma hingað til lands og óhætt að bíða komu hans með eftirvænt-
ingu. Eins og áður hefur komið fram þá er hann áhrifamikill
vakningarprédikari. Hann hefur tekið mikinn þátt í alþjóðastarfí
KFUM og hvatt til þess að KFUM-félögin í heiminum séu trú
uppruna sínum og boðun fagnaðarerindisins. Hann hefur einnig
tekið þátt í starfí Lausanne-hreyfíngarinnar og var einn af ræðu-
mönnunum á Lausanne II ráðstefnunni í Manila á Filipsseyjum í
sumar.
Lesendum Bjarma er lagt á herðar að minnast vakningarvik-
unnar í Bústaðakirkju. Mikilvægt er að undirbúa hana með mik-
illi fyrirbæn. Biðjum fyrir ræðumannmum, Ulrich Parzany, og ÖU-
um sem eiga eftir að taka þátt í samkomunum. Biðjum fyrir öllum
undirbúningi og skipulagningu. Biðjum Guð að undirbúa hjörtun
þannig að þau séu opin fyrir fagnaðarerindinu. Biðjum Guð að
nota vikuna til að kalla fólk til trúar á Jesúm Krist. Biðjum um
vakningu. Biðjum einnig fyrir samkomunni á Akureyri á sama
hátt. Notum líka tækifærið og tökum þátt í samkomunum og
bjóðum fólki með okkur.