Bjarmi - 01.07.1992, Síða 4
Anna Guðrún Huga-
dóttir er húsmóðir og
forstöðukona KFUK
yd í Garðabæ.
Þetta eru sting-
andi orð. Er
Jesús enn á
flóttamanns-
veginum?
ANNA GUÐRÚN HUGADÓTTIR:
Á FLÓTTAMANNS-
VEGINUM
„Þegar þeir voru farnir, þá vitraðist engill
Drottins Jósef í draumi og segir: „Rís upp, tak
barnið og móður þess og flý til Egyptalands.
Þar skaltu vera uns ég segi þér, því að Heródes
mun leita barnsins til að fyrirfara því““ (Matt.
2,13).
Ég heyrði þau nálgast
í húminu, beið
á veginum rykgráum veginum.
Hann gengur með hestinum
höndin kreppt
um tauminn gróin við tauminn.
Hún hlúir að barninu
horfirföl
fram á nóttina stjarnlausa nóttina.
Og ég sagði: þið eruð
þá enn sem fyrr
á veginum flóttamannsveginum,
en hvar er núfriðland
hvar fáið þið leynst
með von ykkar, von okkar allra?
Pau horfðu á mig þögul
og hurfu mér sýn
inn í nóttina myrkrið og nóttina.
Þannig leggur skáldið Snorri Hjartarson út
af 13. versinu í öðrum kapítula Matteusar-
guðspjalls. Hann segir í framhaldi af ljóðinu:
„Er ekki von, að fast sé haldið um taum þegar
varðveita þarf von okkar allra? Enn er fólk á
flóttamannsveginum. “
Það eru allmörg ár síðan ég las þetta ljóð
fyrst, en síðan hefur það búið með mér og því
hefur skotið upp í hugskotinu öðru hvoru.
Við sjáum fyrir okkur þau Maríu og Jósef
með barnið. Þau eru ein á hættulegri ferð.
Þeim er falið þetta dýrmæta barn, „von okkar
allra“. Þau vita ekki hvernig þessi ferð muni
ganga. Það eina sem þau vita er að engill
Drottins sagði þeim að fara til Egyptalands og
dvelja þar, þar til þau fengju ný fyrirmæli. Þau
brugðust ekki, þau tóku sig upp og lögðu af
stað allslaus í trausti til fyrirheitis Drottins. —
Orðin: „Hann gengur með hestinum höndin
kreppt og gróin við tauminn,“ sýna okkur að
hann ætlar að standa og falla með þessu barni.
María, sem föl og kvíðin hlúir að barninu,
óskar þess áreiðanlega að komast sem fyrst á
leiðarenda þótt hún viti ekki hvað þá tekur
við.
Nú talar skáldið í nútíð og ávarpar þau.
„Þið eruð þá enn sem fyrr á veginum flótta-
mannsveginum, en hvar fáið þið leynst með
von ykkar von okkar allra?“ Hvað á skáldið
við? Við vitum að þessari ferð lauk. Þau kom-
ust heilu og höldnu til Egyptalands. Þegar of-
sóknum Heródesar linnti sneru þau aftur heim
til Nasaret þar sem Jesús óx upp og varð full-
tíða maður. Þetta eru stingandi orð. Er Jesús
enn á flóttamannsveginum? Á skáldið ef til
vill við samtíð okkar, þetta þjóðfélag sem
hleypir honum helst ekki að nema á jólum og