Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.07.1992, Síða 10

Bjarmi - 01.07.1992, Síða 10
SLEGIÐ A PRAÐINN áyítntal Á SLÓÐIR VAKNINGAPREDIKARANS Pað þykir varla tíðindum sæta nú um stundir þótt einhver bregði sér yfir pollinn og dveljist lengur eða skemur í útlöndum. Samt er oft forvitnilegt að heyra fréttir af öðru fólki, ekki síst ef þær tengjast kristilegu starfi. Við komumst að því að Esther Gunnarsson, hús- móðir og hjúkrunarfræðingur í Reykjavík hefði skroppið vestur um haf ogslógum á þráðinn til hennar. — Esther, þú komst fyrir nokkru úr stuttri ferð til Ameríku. Hvað varstu að gera þar? — Það eru 25 ár síðan við maðurinn minn, sr. Guðni Gunnarsson skólaprestur útskrifuð- umst úr biblíuskóla í Chicago svo við fórum til að vera á stóru nemendamóti í því tilefni. En samtímis því hélt skólinn svo enn stærra mót sem var fyrir alla. Svo notaði ég líka tækifærið að hitta fjöl- skyldu mína í Bandaríkjunum. — Og var þetta ekki ánœgjuleg ferð? —Jú, það var auðvitað mjög gaman að hitta gamla vini og kunningja. Svo var ósköp nota- legt að búa á hóteli og geta bara slappað af, þurfa ekki að elda mat eða þvo upp. Og geta svo farið á samkomur og hlustað á góða tónlist og þekkta ræðumenn. Og svo var ósköp gott að finna að skólinn okkar heldur fast við gamla fagnaðarerindið þó margt hafi breyst í hinu ytra. — Segðu okkur svolítið frá þessu móti. Var margtfólk þarna? — Allar stærri samkomur voru haldnar í Esther Gunnursson er hjúkrunurfræðingur Moody-kirkjunni, sem tekur um fjögur til fimm þúsund manns, og þar var yfirleitt alltaf fullt. Á kvöldsamkomunum var svo margt að það þurfti að sjónvarpa þeim yfir í aðra sali og svo var öllu líka útvarpað um útvarpsstöðvar skólans en þær eru eitthvað um átta held ég. Til að fá góð sæti kom fólk mjög snemma á samkomurnar svo á kvöldin lék til dæmis alltaf hljómsveit svona hálftíma á undan hverri sam- komu. Aðalefni mótsins var áhersla á að boða fagnaðarerindið í stórborgunum þar sem vandamálin eru svo mörg. — Moody var merkur prédikari? — Dwight Moody fæddist árið 1837 í Massachusetts í Bandaríkjunum. Þegar hann var ungur maður fluttist hann til Boston og kynntist þar KFUM. Hann fór að starfa í skó- verslun og þar fékk sunnudagskólakennarinn hans leitt hann til lifandi trúar á Jesú Krist. Moody varð ljóst að hann var syndugur maður og þurfti á fyrirgefningu Guðs að halda. Skömmu síðar hélt hann til Chicago að leita sér frægðar og frama í viðskiptaheiminum eins og margir ungir menn gerðu á seinni hluta 19. aldar. Honum vegnaði vel sem skósölumanni en um 1860 fannst honum sem Guð væri að kalla sig til að gefa sig allan að kristilegu starfi. Hann hóf boðunarstarf meðal fólks í fátæk- ustu hverfum borgarinnar þar sem hann sagði á einfaldan hátt frá kærleika Jesú og fyrirgefn- ingu hans. Moody starfaði einnig mikið í KFUM og var formaður félagsins um skeið. Fjórum sinnum fór hann til Bretlands og

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.