Bjarmi - 01.11.1994, Síða 20
Hrönn Sigurðardóttir
er hjúkrunar frœð-
ingur.
6uð vill opna
augu okkor fyr-
ir synd okkor
svo honn fói
komið til leiðor
iðrun. Iðrunin
kollor o fyrir-
gefningu Jesú
og er undofori
endurlífgunor,
þess nýjo lífs
sem 6uð gefur.
20 BJAPAAI
Hrönn Sigurðardótrir
r ll
AVOXTURINN
„En ávöxtur andans er: Kœrleiki, gleði,
friður, langlyndi, gœska, góðvild, trúmenska,
hógvœrð, bindindi“ (Gal. 5.22-23a).
A fyrstu síðum Postulasögunnar rekumst
við á yndislega lýsingu á frumsöfnuðinum og
samfélagi trúaðra. Þar segir að allir sem trúðu
héldu hópinn, þar var eitt hjarta, ein sál og
einn hugur. Lúkas, höfundur Postulasögunnar,
er ekki í vafa um hvað batt þá saman. Heilag-
ur andi var að verki og fyllti líf þeirra með
fögnuði og einlægni hjartans.
Með því er þá einnig sagt að einingin, ein-
lægnin og fögnuðurinn var verk heilags anda í
lífi þeirra en ekki neitt sem þeir gátu kallað
fram hjá sjálfum sér. Þeim voru gefnar vin-
sældir, kærleikurinn óx fram, þeir eignuðust
nýja djörfung og lofsöngur fyllti hjarta þeirra.
Þannig vann Guð verk sitt í lífi þeirra fyrir
sinn heilaga anda. Tákn og undur urðu fyrir
hendur þeirra sem var einnig verk andans og
þeir gáfu Guði dýrðina fyrir allt.
Andinn leiddi þá, talaði til þeirra, gaf þeim
sýnir, skapaði réttar kringumstæður þar sem
hann leiddi fólk í veg fyrir þá svo þeir gætu
vitnað um frelsara sinn Jesúm Krist. Þeir voru
stöðugt í bæn og bænin var það vopn sem þeir
gripu til þegar þeir mættu ofsóknum og mót-
læti. Lífið var þeim Kristur. Þeir byggðu ekki
á sjálfum sér en byggðu á Jesú Kristi og
horfðu á hann. Þannig kom heilagur andi
miklu til leiðar í lífi hinna trúuðu. Hann vill á
sama hátt fá að koma miklu til leiðar í lífi
okkar.
Guð vill fá að úthella anda sínum í hjörtum
okkar. Syndin er það afl sem heftir verk Guðs.
Mér finnst syndin og mitt synduga eðli
íþyngja mér. Mig langar helst til að rífa hana
út. Guð vill opna augu okkar fyrir synd okkar
svo hann fái komið til leiðar iðrun. Iðrunin
kallar á fyrirgefningu Jesú og er undanfari
endurlífgunar, þess nýja lífs sem Guð gefur.
Andinn bendir okkur á Jesú. Hann vill fá að
fylla okkur svo mynd Jesú sé skýr fyrir augum
okkar. Hann vill fá að komast að í sérhverjum
krók og kima lífs okkar.
Þegar Guð fyllir okkur sínum heilaga anda
koma ávextirnir í ljós í lífi okkar. Þeir vaxa
fram því andinn gefur þeim vöxt. Við getum
ekki sjálf kallað fram ávöxtinn, kærleikann,
gleðina, friðinn, eininguna eða vinsældir af
öðrunt. Avöxturinn er verk andans sem hann
vill komast að til að vinna í lífi okkar. „Gjörið
því iðrun og snúið yður, að syndir yðar verði
afmáðar. Þá munu koma endurlífgunartímar
frá augliti Drottins“ (Post. 3.19-20a). Hann
vill eiga okkur öll og að við gefum honum
allt.
Kærleikurinn er nefndur fyrst þegar talað er
um ávöxt andans. Jesús talar um að „með því
vegsamast faðir minn, að þér berið mikinn
ávöxt og verðið lærisveinar mínir. Ég hef elsk-
að yður eins og faðirinn hefur elskað mig.
Verið stöðugir í elsku minni“ (Jh. 15.8-9)
Elska Jesú þarf að fá að umvefja okkur, fylla
okkur og fijóta út til annarra. Við getum ekki
elskað aðra nema við leyfum Jesú fyrst að
elska okkur.
Syndin er sá vandi sem iðulega hindrar
verk heilags anda. Þannig er einnig með ávöxt
andans og kærleikann. Til að geta elskað þurf-