Bjarmi - 01.11.1994, Qupperneq 21
um við að láta af stolti og hroka og biðja Guð
um að fyrirgefa okkur og fjarlægja það. Iðrun-
in ryður andanum leið að hjarta okkar. Fyrir-
gefning og kærleikur Jesú streymir til okkar.
Þá myndast þetta sérstaka samband milli okk-
ar og hans. Við getum fundið fyrir því hve
heitt Jesús elskar okkur og hve sérstök og dýr-
mæt við erum í augum hans. Við getum glaðst
sem brúður er gleðst yfir kærleika brúð-
gumans. Við erum heitbundin honum. í himn-
inum verðum við svo eitt með honum. Engin
synd mun þar skilja okkur að né ná að eyði-
leggja það kærleikssamband sem við eigum
við hann.
Þegar við lifum á þennan hátt fær kærleikur
Jesú að streyma frá okkur til annarra. Ávöxtur
andans vex fram í lífi okkar því meir sem
heilagur andi á í okkur. „Biðjið og þér munuð
öðlast, svo að fögnuður yðar verði fullkom-
inn“ (Jh. 16.24). Jesús er í þessum köflum
guðspjallsins (14-16) að tala um brottför sína
og komu andans. Fögnuður okkar verður full-
kominn þegar Jesús verður það dýrmætasta
sem við eigum, en ekki þegar við eignumst
nýtt sófasett, nýjan bíl eða getum skellt okkur
í utanlandsferð.
Biðjum svo við öðlumst. Biðjum um að
heilagur andi nái betri tökum á okkur, að hann
fái meira og meira rými á kostnað syndarinnar
og okkar synduga eðlis. Biðjum hann um að
fylla okkur. Biðjum hann um að láta ávöxtinn
vaxa fram. Verum viðbúin því að greiða
kostnaðinn, svo að fögnuður okkar verði full-
kominn.
Sendið kveðjur
Það er gleður vini op samherja á fjarlægum slóðum að fá
kveðju að heiman. Islensku kristniboðarnir í Eþíópíu og
Kenýu eru þakklátir fyrir kort eða bréf sem þeim berast frá
kristniboðsvinum. Bjarmi vill hvetja lesendur til að minnast
þessa. Nú nálgast jólin og því birtist hér póstfang kristniboð-
anna í Afríku. Stundum eru bréf lengi á leiðinni. Því er hyggi-
legt að skrifa sem fyrst svo að kveðjan komist til skila fyrir há-
tíðina.
Benedikt Jasonarson
Margrét Hróbjartsdóttir
Norwegian Lutheran Mission
P. O. Box 5540
Addis Abeba
Ethiopia, Africa
Bjarni Gíslason
Elísabet Jónsdóttir
Norwegian Lutheran Mission
P. O. Box 5540
Addis Abeba
Ethiopia, Africa
Guðlaugur Gíslason
Birna G. Jónsdóttir
EECMY Station Konso
Arba Minch
Ethiopia, Africa
Guðlaugur Gunnarsson
Valgerður Gísladóttir
SWS/EECMY
P. O. Box 67
Arba Minch
Ethiopia, Africa
Haraldur Ólafsson
Norwegian Lutheran Mission
Resort Place
P. O. Box 43
Awasa
Ethiopia, Africa
Helgi Hróbjartsson
EECMY Station
P. O. Box 2
Neghelle, Borena
Ethiopia, Africa
Jóhannes Ólafsson
Kari B0 Ólafsson
Norwegian Lulheran Mission
Resort Place
P. O. Box 43
Awasa
Ethiopia, Africa
Karl J. Gíslason
Ragnheiður Guðmundsdóttir
NCA
P. O. Box 81
Goba
Ethiopia, Africa
Kjartan Jónsson
Valdís Magnúsdóttir
Chepareria NLM
P. O. Box 240
Kapenguria
Kenya, Africa
Kristín Bjarnadóttir
Norwegian Community School
P. O. Box 24991
Nairobi
Kenya, Africa
BJAPAAI 21