Heima er bezt - 01.06.1951, Qupperneq 2

Heima er bezt - 01.06.1951, Qupperneq 2
98 HEIM'A ER BEIZT Nr. 4 Heima er bezt Kemur út mánaðarlega, 32 síður. Ritstjóri: Vilhj. S. Vilhjálmsson. Utgefandi: Bókaútgáfan Norðri. Sími 3987. Pósthólf 101. Áskriftarverð, 12 blöð, kr. 67.20. Útsöluverð kr. 7,00 eintakið. Prentsmiðjan Edda h.f. L------------------------------ Alit lesenda VIÐ, sem stöndum að þessu blaði getum, enn sem komið er, hrósað happi yfir því, að starf okkar líkar mjög sæmilega. Þetta ætti að vera okkur hvatning til þess að gera enn betur, en sumir fara að slá slöku við þegar þeim er hælt. Annars vantar ekki að við séum gagnrýndir, en öll er gagnrýnin jákvæð. Ótrúlega margir óska eindregið eftir því að við birtum framhaldssögu — og kemur það að minnsta kosti ritstj óranum á óvart, en nú mun verða fullnægt þessari kröfu og birtist í júlíblaðinu upphaf fram- haldssögu, sem mun koma í tveimur eða þremur blöðum. Þetta er góð saga, að dómi rit- stjórans, hver sem dómur les- endanna verður. Sagan er eftir einn af allra fremstu rithöfund- um Svía. Þá hafa nokkrir bréf- ritarar óskað eftir því að breytt verði um miðsíður blaðsins þann- ig að hvorki fyrirsögn né myndir séu í kjölnum. Benda þessir les- endur á það, að menn vilji ein- mitt binda svona blað inn, en það sé erfitt þegar þannig sé gengið frá blaðinu. Um breytingu í þessa átt hefur enn engin á- kvörðun verið tekin, hvað sem síðar verður. Getraun Og svo er það getraunin. Að þessu sinni eru getraunirnar tvær. Verða veitt sömu verðlaun og áður, bækur frá Norðra fyrir 100 krónur. Á öftustu síðu er mynd, sem menn eiga að segja hvar sé tekin og hér á eftir fer gáta. Spurt er um nafn manns- o— Sagt er... SAGT ER, að bóndi nokkur, sem var mikill ákafamaður, hafi eitt sinn farið til lúðuveiða í logni og blíðu með tveimur drengjum. Hann lagði bátnum fyrir stjóra grunnt undan landi, beítti öngul sinn og renndi færinu. Hann settist síðan á borðstokkinn, aftast í skutnum, en fór svo óvarlega, að hann steyptist aftur yfir sig og fór á bólakaf. Drengirnir sátu með öndina í hálsinum, en brátt skaut bónda upp. Hann greip í borðstokkinn, tók andköf og hrópaði: „Ble-ble-blessaðir piltar, dragið þið strax upp stjórann. Hér er ekki nokkurt lif- andi kvikindi, — eintómur skeljasandur!“ ★ SAGT ER, að kerling ein í verstöð á Vesturlandi, hafi verið þannig skapi farin, að hún kærði sig ekki um að fá gefins soðmat, heldur vildi stela sér í soðið. Eitt sinn, þegar árabátur kom af sjó, henti formaðurinn í fjöruna skerjasteinbít, sem hafði haldizt lifandi í austrinu. Skyndilega heyrði formaðurinn óp mikið, þar sem hann stóð við bát sinn. Hann vék sér við og sá þá kerlinguna stelvísu liggja aftur á bak í fjörunni afmyndaða af sársauka og hræðslu. Hún hafði ætlað að stela steinbítnum og stungið honum undir svuntu sína, og nú hékk hann á tönnum í magál kerlingar, sem til allrar hamingju var vel í skinn komið. Myndirnar á forsíðu 1. mynd: Vestmannaeyingar eru frægir bjargmenn, enda hafa þeir öldum saman lifað að meira og minna leyti á fugli og eggjatöku. Sigið er mikil íþrótt og engum heiglum hent. Margir hafa farist af völdum grjóthruns þegar þeir eru að síga. 2. mynd: Kýr þykja ekki miklar vitskepnur, en þó eru til dæmi, er sanna hið gagnstæða. Þær þykja forvitnar og vilja grand- skoða flesta hluti, sem fyrir þeim verða. Leynir forvitn- issvipurinn sér ekki á kusu, þar sem hún stendur á rúst- um Sjöundár, þar sem morðmálin alræmdu gerðust í byrjun 18. aldar. 3. mynd: Reykvíkingar sækjast mjög eftir að eignast snjalla reið- hesta, enda er í höndum þeirra afburða gott úrval góð- hesta víðs vegar af landinu. Flestum þeirra nægir ekki minna en tveir til reiðar eins og myndin sýnir, en þar er á ferðinni Óli M. ísaksson forstjóri með leirljósu gæð- ingana sína, Grana og Gígju. Siðustu 36 ár hefur Óli M. ísaksson stundað útreiðar i Reykjavík af miklum dugnaði og segir það sig sjálft, að slíkur hestamaður hefur átt fjölda góðra gæðinga um dagana. 4. mynd: Tveir heimalningar að fá sopann sinn. Lömb eru mjög elskuleg dýr og eru oft hænd að fólki, ef vel er að þeim farið. En stundum gerast þau líka full heimtufrek og gera sig heimakomin á staði, sem þau eru óvelkomin á. ins, nafn bæjarins, þar sem hann á heima og sveitar hans. Og reynið nú að vinna til verðlaun- anna. Frestur er til 8. júlí. Mitt heiti er: hurðarlamir, eða hárbeitt vopn fyrri tíðar, og nokkuð af auðlegðar nafni, nýgiftra ríkra kvenna. Heimilið: hlíf úr málmi, og hestar, sem vilja ekki ganga. Sveitin: sjóðandi lindir og silfurpeningur gamall.

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.