Heima er bezt - 01.06.1951, Blaðsíða 3

Heima er bezt - 01.06.1951, Blaðsíða 3
Nr. 4 Heima er bezt 99 * Islenzk kvenhetja í Noregi Jónína Björnsdóttir Sæborg og hús þeirra hjóna i Osló. Eftir Einar M. Jónsson í HÖFUÐBORG NOREGS býr íslenzk kona, Jónína að nafni. Hún er fædd í Ólafsfirði 19. júní 1890, en fluttist ung með foreldrum sínum til Grímseyj- ar, er Björn faðir hennar tók þar við hreppstjórastörfum. Þegar hún var 14 ára að aldri, fór henni að finnast litla út- hafseyjan, Grímsey, of smár heimur fyrir sig, og hún flutti til Akureyrar, en þar dvaldist hún til þess tíma, er hún gift- ist Norðmanni einum, Eren Jo- hannesen að nafni. Hann var vélamaður að iðn og setti niður vélar í síldarverksmiðjurnar á Krossanesi og í Siglufirði. Hjú- skaparárum sínum hafa þau hjónin eytt í Noregi, hinum síð- ari í Osló, og eiga þau þrjú börn á lífi: Björn, sem er búsettur í Osló, Lother, sem er bifvélavirki í Reykjavík, og eina dóttur eiga þau búsetta í Osló. Ættarnafnið Sæborg — eða Seborg, eins og Norðmenn bera það fram, tóku þau hjónin sér fyrir allmörgum árum, og er nafnið eyfirzkt. Fyrir þá ferðamenn, sem nú koma til Osló, er það margskon- ar erfiðleikum bundið að fá húsaskjól í borginni. En þær tvær vikur, sem ég dvaldist í Osló fyrir nokkru síðan, var ég svo lánsamur að vera meðal þeirra mörgu íslendinga, sem fengið hafa að búa í húsi þeirra Sæborg-hjónanna á Furuvegi 34 B úti á Höyenhall. Það borg- arhverfi finnst mér eitt af feg- urstu hverfunum í Osló. Það er á útjaðri borgarinnar, stendur á hæð einni og er fagurt útsýni úr hlíðinni yfir borgina og nær- lendi. Húsin eru mörg frekar smá en snotur og standa dreift. Milli þeirrá eru trjágarðar, matjurtagarðar og aldingarðar, klettar og klungur. Frá götun- um liggja gangstígar upp að húsunum og eru sumir þeirra mjög brattir. Ég get ekki stillt mig um að minnast á það, hve yndislega fagurt það er að horfa á ljósadýrð borgarinnar á síð- kvöldum frá Furuvegi 34 B. Og þegar manni berst gegn um op- inn gluggann kliðurinn frá engisprettunum, þegar þær nudda saman afturfótunum úti í döggvotu grasinu, þá er ó- neitanlega líkara því að verið sé í sumarbústað einhversstað- ar úti á guðs grænni jörð en innan landamæra stórrar borg- ar. Þetta hljóð gæti helzt minnt á hljóð frá mörgum vasaúrum, sem væru í gangi, nema hvað það er nokkru óreglulegra, og hefi ég hvergi heyrt það sterk- ara en þarna. Hér er heimili þeirra Sæborg-hjónanna og hér hafa átt og eiga heima margir íslendingar, ekki sízt námsfólk. íslendingar, sem eiga heima úti í borginni, venja mjög komur sínar þangað og fá alltaf hinar ágætustu viðtökur. Þær tvær vikur, sem ég bjó þar, var það kvöld eftir kvöld, að þegar ég kom heim sá ég ný og ný íslenzk andlit. Og eitt kvöldið voru þar 10 íslendingar saman komnir. Jónína Sæborg er myndarleg kona að vallarsýn. Hún er gest- risin, gamansöm og skemmti- leg í viðræðum, hjálpsöm og hollráð, dagfarsgóð og skörung- ur mikill, þegar því er að skipta, eins og ég nú mun koma að. Það var einn morgun nokkru áður en ég fór frá Osló, að við Jónína sátum að morgunverði, tvö ein. Talið barst þá að síð- ustu heimsstyrjöld og ég fór að spyrja hana um hitt og annað viðvíkjandi kjörum fólks í Nor- egi meðan á stríðinu hafði staðið. — „Hvernig varð þér við, þegar þú fréttir, að Þjóðverjar væru komnir inn í landið?“ spurði ég. „Það var gefið hættu- merki kl. 1 um nóttina 9. apríl, og þá vakti ég manninn minn,“ sagði Jónína. „Rétt á eftir var dyrabjöllunni hringt viðstöðu- laust. Ég þaut út,“ sagði Jónína, „hélt að um eldsvoða væri að ræða. Þar voru þá þrír menn og spurðu þeir mig, hver ætti bílinn, sem stæði hér úti. Ég sagði, að sonur minn ætti hann. Þeir spurðu, hvort hann mundi vilja aka með þá niður eftir, því það væri komið stríð í land- inu. Stríð í landinu? Hvað segið þið? Já, skipin eru komin til Dröbak, sögðu þeir. Kl. 5 um morguninn hófst stríðið. Björn, sonur minn, kom heim kl. 8y2. Ég kem að kveðja þig, mamma, ég er að fara í stríðið, sagði hann. Allir þessir óvæntu at-

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.