Heima er bezt - 01.06.1951, Page 7

Heima er bezt - 01.06.1951, Page 7
Nr. 4 Heima er bezt 103 sem oftar. Þegar þeir voru bún- ir að aka lengi, voru þeir stöðv- aðir af þýzkum bíl. Þeir skutu þá tvo Þjóðverja, sem voru í bíln- um. Síðan færðu þeir þá úr föt- unum og köstuðu skrokkunum í fljót, sem rann þar. Þeir fóru síðan sjálfir í föt þeirra, settu sinn farangur á þýzku bifreið- ina og óku í þeirri bifreið til Sví- þjóðar. Skjöl Þjóðverjanna not- uðu þeir á leiðinni, ef á þurfti að halda. Á heimleiðinni skiptu þeir aftur um bíl og settu föt Þjóðverjanna á fljótsbakkann. Nokkrum dögum síðar kom það í blöðunum, að tveir Þjóðverjar hefðu drukknað í baði á þessum stað. — í annað skipti var það, að Jakob flutti píanókassa frá húsi þeirra Sæborg-hjónanna út fyrir Osló. Ólíklegt er, að Þjóð- verjar hefðu viðurkennt hljóð- færið sem fyrsta flokks, ef þeir hefðu litið inn í kassann. Inni í kassanum var Gyðingur, sem var á flótta til Svíþjóðar. — Ég vil nefna enn eitt dæmi þess, hve Jakob þessi var djarfur maður og úrræðagóður. Norð- maður einn hafði verið tekinn til fanga af Þjóðverjum og var í ströngu varðhaldi. Hann var vinur þeirra Jakobs og Björns. Þjóðverjar köstuðu eign sinni á íbúð þessa manns og öll húsgögn hans. Þegar Þjóðverjar voru búnir að læsa íbúðinni ramm- byggilega og farnir þaðan, tóku þeir Jakob og Björn sig til og brutu upp dyrnar. Húsgögnun- um rótuðu þeir út á bifreið Jak- obs. Þegar þeir voru að ljúka þessum starfa, sáu þeir, hvar þýzkir lögregluþjónar komu. Þeir flýttu sér burt gegn um hliðið, en sáu, að Þjóðverjum mundi hafa tekist að ná núm- erinu af bílnum. Húsgögn þessi voru öll flutt til Jónínu Sæborg og voru þau geymd þar til stríðsloka. Skömmu síðar þenn- an sama dag var Jakob kallaður inn á þýzku lögreglustöðina. Hann var þar spurður að því, hvort það númer, sem þeir nefndu, væri á hans bifreið og kvað hann já við því. Því næst var hann spurður, hvort það hafi verið hann, sem flutt hafi burtu húsgögnin, og kvað hann svo verið hafa. „Hvaða heimild höfðuð þér til þess?“ „Eins og þið vitið ef til vill, þá eru flutn- ingar minn starfi, bæði að flytja húsgögn og annað. Ég var beð- inn um að flytja þessi húsgögn burtu og gjörði það.“ Ég vil taka það fram, að út fyrir landa- mæralínu Oslóborgar höfðu Þjóðverjar bannað að íbúar borgarinnar færu, án þeirra leyfis. „Og hvert fóruð þér með húsgögnin?“ spurðu Þjóðverjar. „Ég fór með þau að landamær- um Oslóar. Mér var sagt að aka áfram, en ég þverneitaði því. Ég hafði ekki leyfi til að fara lengra.“ „Hvað varð svo um hús- gögnin?“ „Þeim var rótað á ann- an bíl, sem svo var ekið burtu, ég veit ekki hvert, en ég sneri við.“ „Sáuð þér hvaða númer var á hinum bílnum?“ „Já, ég sá það,“ og Jakob fór í vasa sinn og dró upp blað, sem númer var skrifað á, og fékk þeim. „Hér hafið þið númerið!“ „Já, við verðum tafarlaust að hafa uppi á þessum bíl,“ sögðu þeir. „Vilj- ið þér gera okkur þann greiða að verða með í leitinni?“ „Já, það er alveg sjálfsagt,“ sagði Jakob. Svo var leitað allan dag- inn og fram á nótt á öllum hugs- anlegum stöðum og vegum um- hverfis Osló og einnig inni í borginni. En þessi bifreið fannst hvergi. Ég þykist vita, að ég þurfi ekki að taka það fram, af hvaða ástæðum bifreiðin ekki fannst. — Bifreið með þessu aúmeri var sem sé hvergi til. Björn, sonur Jónínu, komst í nörg æfintýri, og skall hurð oft nærri hælum. Hið leynilega her- lið Noregs gaf út vélritað blað öðru hvoru. Einu sinni, þegar Björn var að koma upplaginu út úr vélritunarstofunni, sá hann að nú var í óvænt efni komið fyrir sér, þvi Þjóðverjar nálguð- ust. Hann brenndi því öllu upp- laginu þegar í stað. Þegar síð- ustu glamparnir flöktuðu um öskuhrúguna, komu Þjóðverjar inn. Þeir leituðu á Birni, en fundu ekki neitt. Dauðarefsing hefði legið við, ef þetta hefði komist upp. Þegar Björn kom heim til móður sinnar og hún spurði frétta, var hann vanur að segja: „Ég slapp í þetta skipti.“ Þó fóru svo leikar, að Björn varð að flýja borgina og gerði hann sér neðanjarðarfylgsni úti í skógi. Jónína, móðir hans, fór daglega til hans á reiðhjóli og færði honum mat. Even Sæborg, maður Jónínu, var ekki heldur aðgerðalaus um þessar mundir. Einu sinni voru t. d. 7 Norðmenn búnir að vera 9 daga í húsi þeirra hjónanna. Þeir flýðu yfir til Svíþjóðar og fóru gangandi alla leið. Even Sæborg fór á reiðhjóli á und- an þeim fram hjá öllum bæki- stöðvum Þjóðverja og gaf þeim merki. í norðvestur af Höyenhall er sléttlendi. Þar standa nú verka- mannabústaðir Oslóborgar, virðu legar byggingar. Á stríðsárunum stóðu þarna fangabúðir, sem Rússar voru geymdir í. Frá húsi þeirra Sæborg-hjónanna er gott útsýni yfir sléttu þessa, og var mér sagt, að margt ófagurt heföi mátt sjá i sjónauka þar niðri á láglendinu þessi árin. Rússnesk- ir fangar voru t. d. oft látnir ganga með þungar byrðar á bakinu í fjölda marga hringi, unz þeir gáfust upp, og voru þá hvað eftir annað barðir á fætur aftur. Einu sinni sá dóttir Jón- ínu, að Þjóðverjar létu 3 Rússa grafa gryfju. Hún staldraði við, til að vita, hvað til stæði. Einn þessara þriggja var skotinn og dysjaður þar. Hann átti að grafa sína eigin gröf meö tveim vin- um sínum. Einu sinni var það, að þessi dóttir Jónínu gaf nokkr- um skinhoruðum og þreytuleg- um rússneskum föngum fiski- bollur — um kjöt var ekki að ræða, það fengu Norðmenn ekki að borða í þann tíð. Þetta hefur sennilega verið í hugsunarleysi gert af henni og af því að hún hefur kennt í brjósti um menn- ina. En þetta hefði orðið henni dýrt og frekar líklegt að fanga- búðavist hefði beðið hennar, ef einn norskur vinur hennar hefði ekki gerst málsvari henn- ar. Hann þekkti háttstandandi Þjóðverja og þeir báðir héldu því fram, konunni til afsökunar, að hún hafi gefið föngunum boll- urnar vegna þess, að þær hafi verið óætar. Af þeim ástæðum slapp hún. Jónína sagði mér, að friðar- dagurinn 8. maí 1945 væri einn hinn allra ógleymanlegasti dag- ur í sínu lífi. Þetta var indæll

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.