Heima er bezt - 01.06.1951, Blaðsíða 8

Heima er bezt - 01.06.1951, Blaðsíða 8
104 HeIM'A ER BE'ZT Nr. 4 Við sumarmál 1951 Eftir Böðvar Magnússon, Laugarvatni NÚ ERU sumarmálin komin einu sinni enn. Þó bólar ekki neitt á virkilegu sumri ennþá. Þessi vetur hefur verið óvana- iega erfiður mörgum. Ekki ein- ungis þeim, sem illa voru undir hann búnir eftir hið erfiða sum- ar í fyrra, eins og allir, eða flest- ir, Austfirðingar og nyrzti hluti Norðurlands, heldur og víða hér á Suðurlandi, þar sem dálítið er eftir af sauðfé. Þótt tíðarfarið hér á Suður- landi hafi sjálfsagt verið all- miklu betra en á Norður- og Austurlandi, var það alls ekki gott. En vothey og all víða súg- þurrkun, og svo hinar almennu yfirbreiðslur, sem nú eru taldar eins nauðsynlegar við heyskap- inn og orfin, hrífurnar og reip- in þóttu sjálfsögð áður, gerðu það að verkum, að hey urðu hér víðast sæmileg. Ég held, að Sunnlendingar séu með þessum aðferðum að sigrast á hinu hræðilega árferði — hinum ó- skaplegu sunnlenzku rigning- um, og þar af leiðandi óhollu og ónýtu heyjum, sem ómögulegt var að fóðra fénað með, ekki sízt í langri innistöðu, nema með aðkeyptum fóðurbæti, sem lengi vel þekktist ekki. Líka hef- ur það haft sín áhrif, að margir hér um slóðir hafa stækkað svo tún sín, að nærri allur heyskap- ur er heyjaður á túnum, og eru það sannarlega mikil og góð um- skipti. Þó er svo komið, að marg- ir bændur eru nú á sumarmál- um búnir að gefa ánni 300 pund eða 150 kg. af töðu eða töðugæfu heyi og fóðurbæti. Er þetta með almestu gjöf, sem hér heíur þekkst, og þó sér ekki út yfir það, hvað gefa þarf enn, því enn er hér frost mikið og snjór, svo engin skepna stendur á högum. Klaki í jörðu er hér 1 meter. Nú er sá góði siður að færast i vöxt hér alstaðar, að allar skepnur eru í haustholdum og sumsstað- ar meira, og eru það þær lang- mestu framfarir af öllum framförum til sveita, ef sá siður helzt, sem nú virðist vera að fara hér hraðfara í vöxt, að fóðra svo hverja skepnu, að hún geri fullt gagn og hordauði vordagur, heiður og hlýr. Kl. 12 heyrði hún sagt frá því í útvarp- inu, að nú væri nokkurn veginn víst um það, að friður væri að komast á. Kl. 3 var friðurinn boðaður. Jónína sagði mér, að sér hafi aldrei fundist neinar klukkustundir jafn lengi að líða eins og þessar 3 stundir, milli 12 og 3, fullar af óvissu og ákafri þrá. Undanfarnar vikur hafði þjóðin búist við því, að til inn- rásar. mundi draga í Noregi og var þess beðið af flestum með óttablandinni eftirvæntingu. Fjöldi fólks hafði lært að binda um sár, þar á meðal Jónína, því búist var við miklum blóðsút- hellingum. Jónína hafði 10 hús, þar sem hún átti að hjálpa, ef þörf gerðist. En svo rann þessi bjarti vordagur upp, ómandi af fuglasöng og þrunginn af ilm hins unga vors og boðaði frið og að allar blóðsúthellingar og of- beldisverk styrjaldarinnar væru á enda. Af þeim ástæðum, sem ég áður hef greint, fóru flestir Norð- menn á mis við útvarpsfréttir. Og þegar Jónína kom út á göt- una og sagði tíðindin, voru það margir, sem ekki vildu trúa henni. Jafnvel eftir að fánarnir voru dregnir að hún kl. 4—5 síð- degis, voru margir, sem spurðu um það, hvað væri að gerast. En skjótlega barst gleðifregnin um alla borgina. Dýflissur naz- istanna voru opnaðar og fagn- aðarfundirnir voru víða miklir þetta kvöld. Nú voru það Norð- mennirnir, sem stóðu vörðinn um herbúðir Þjóðverja, til þess að engin hermdarverk yrðu unnin á þeim, en þeir drógu sig inn í herbúðirnar. Og við getum gert okkur það í hugarlund, hvernig þýzku hermönnunum muni hafa verið innanbrjósts það kvöld, er þeir hafa hugsað til heimkomunnar í föðurlandi sínu, þar sem þjóð þeirra lá í valnum, blóðidrifin, undir rúst- um sinna eigin borga, eftir allt það, sem hún hafði orðið að þola öll hin mörgu stríðsár og allar þær fórnir, sem hún hafði orðið að færa. Og þótt friðurinn vekti gleði um allan heim, jafnvel meðal þeirra, sem voru sigraðir, bar þó skugga á þá gleði í hug um flestra hugsandi manna, jafnvel þeirra, sem sigruðu. Það var, því miður, ekki aðeins her- veldisstefna Hitlers, sem var brotin á bak aftur og hinn stór- þýzki andi, sem hafði fengið sinn dóm. Það var land hinna ódauðlegu meistara í tónlist, skáldskap og fögrum listum, land nútíma tækni og hámenningar, sem lá í rústum, af því hin þýzka þjóð hafði látið blekkjast af brjálæðiskenndum stórveldis- draumum sinna æðstu manna. Það var vagga germanskrar menningar, sem var rúin, vaxt- arbroddi mannkynsins, sem var hnekkt. Jónína Sæborg hafði staðið sig eins og hetja meðan á stríð- inu stóð, en hún hafði gengið fram af sér, ofreynt taugakerfi sitt. Nú komu afleiðingarnar í ljós, þegar baráttunni loks var lokið. Hún tók þá það til bragðs að heimsækja hina kæru fpstur- jörð sína, ísland, og náði hún aftur fullri heilsu og andlegu jafnvægi. Einar M. Jónsson.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.