Heima er bezt - 01.06.1951, Qupperneq 24

Heima er bezt - 01.06.1951, Qupperneq 24
120 HEIM'A ER BEZ'T Nr. 4 á Krím, urðu þeir sífellt hug- fangnari af því, sem þeim barst til eyrna! Ef til vill hafa þeir fyrst í stað látið orðróminn sem vind um eyru þjóta og efast um sennileik þeirra fullyrðinga, að austrið byggi yfir öðrum eins fjársjóðum og sagt var. En full- yrðingarnar komu úr svo mörg- um stöðum og svo oft, að ekki var til lengdar hægt að komast hjá því að hugleiða þær í al- vöru. Dag nokkurn ákveða svo bræður þessir að takast á hend- ur verzlunarferð lengra austur á bóginn en nokkru sinni fyrr. Þeir leggja upp frá Konstan- tínópel, sigla þaðan árið 1260 með fullfermi af dýrmætum varningi til Sudak á Krím, þar sem þeir síðan selja varning sinn hinum volduga fursta Barka-Khan fyrir gott verð. En þegar þeir ætla að leggja af stað aftur til Konstantínó- pel, hefur brotizt út styrjöld milli furstans og Persa. Heim- ferðaráætlunin verður tvísýn, og þeir ákveða því að halda ferðinni áfram enn austar. Þeir leggja land undir fót um Kirgis- steppuna norðanvert við Kasp- iska-hafið, komast yfir Ural- fljót, unz þeir hafna í bænum Bokhara. Hann var austan við fljótið Amu-darja. í Bokhara halda þessir tveir Feneyjakaup- menn svo kyrru fyrir í hvorki meira né minna en þrjú ár. Þeir nema til fullnustu mál tatar- anna og komast í náið samband við lifnaðarhætti þeirra og menningu. Svo kom atvik fyrir einn góð- an veðurdag, — atvik, sem átti eftir að hafa gildi fyrir land- fræðilega þekkingu. Til Bokhara kemur mongólsk- ur aðalsmaður, sem er á leiö til Kublai-Khan í Kína. Kaup- mennirnir tveir fá tækifæri til að ræða við hann. — Mér finnst þið ættuð að slást í för með mér til stór- khansins, segir sendimaðurinn. Ég fullvissa ykkur um það, að húsbóndi minn mun taka vel á móti ykkur. Honum hefur lengi leikið hugur á að sjá menn frá landi yðar, sem geta sagt hon- um frá lifnaðarháttum Vestur- landabúa. — En ferðalagið, allt þetta langa ferðalag, segir Nicolo. — Já, satt er það, að ferðalag- ið er bæði langt og þreytandi, anzar maðurinn. En hugsið ykk- ur allt það dásamlega, sem þið hinsvegar fáið að sjá og lifa. Að lokum ákveða mennirnir að slást í förina. Þeir búa sig undir langferðina í skyndingu og sameinast að því loknu ferða- mannalest aðalsmannsins. För- inni er síðan heitið inn í ókunn- ug lönd um strjála vegi kaup- mannalestanna. Daga og nætur halda þeir áfram yfir endalausa steppuna, sigrast á köldum og straumþungum vatnsföllum jafnt sem hæstu fjöllum, þar sem aldrei leysir snjó. Ferðalagið tók eitt ár, eitt ár sífelldrar hættu, erfiðis, þolin- mæði og viljaþreks til að gef- ast ekki upp, en halda áfram. Og áfram komust þeir, unz þeir höfnuðu loks í bústað stór- khansins, Kambaluk, þar sem nú er Peking. Keisarinn tók mönnunum báðum með miklum fögnuði og efndi til hátíðahalda í heiðursskyni við þá. Aldrei þreyttist hann á því að spyrja þá um heimkynni þeirra, um rómverska keisarann, trúar- brögð þeirra og siðmenningu Vesturlanda. Af dægurlöngum viðræðum við þennan merki- lega mann gafst þeim tækifæri til að kynnast náið hinum vold- uga drottni, er réð yfir milljón- um og aftur milljónum manna. Upphaflega var svo ráð fyrir gert, að heimsóknin stæði að- eins yfir mjög stuttan tíma, en atvikin höguðu því svo til, að hún tók mörg ár. Dag nokkurn gerði keisarinn svo boð fyrir bræðurna og mælti: — Fyrir alllöngu kom mér fyrst til hugar að gera út sendi- mann á fund páfa. Mér þætti æskilegt, að þið tveir tækjuð að ykkur að verða fulltrúar mínir og erindrekar. Biðjið hann um að láta oss í té hundrað mennta- menn, sem geti veitt kínversku þj óðinni undirstöðumenntun í vísindum og kristinni trú. Fari svo, að hægt verði að sanna, að trúarbrögð yðar standi framar trúarbrögðum vorum, skal ég og þjóð mín öll kasta hinni gömlu trú og verða kristnir. Feneyjabúarnir köstuðu sér fyrir fætur keisarans og hétu því með gleði að takast ferðina á hendur sem fulltrúar hans. Heimferðin tók þrjú löng ár, unz þeir lögðu af stað í síðasta áfangann frá einni af höfnun- um á strönd Litlu-Asíu til ít- alíu. Eftir fimmtán ára sam- felldra fjarveru stigu þeir á land í Feneyjum — til þess jafn- framt öðru að heyra tvær sorg- arfréttir. Önnur var sú, að páf- inn, Clemens IV., væri látinn. Hin snerti einkalíf þeirra. Sama árið og þeir höfðu lagt af stað í hina löngu ferð frá Feneyjum, hafði kona Nicolos Polo látizt, eftir að hafa fætt honum son, er nefndur var Marco. Hann var fimmtán vetra, þegar hér var komið sögu. Það var í senn glæsilegt og spennandi ævintýri fyrir Marco Polo hinn yngri að hlýða á frá- sagnir föður síns og föðurbróð- ur af keisaranum í Kína og hinni fjarlægu töfraveröld þar austurfrá. Og ennþá æsilegra varð þetta allt, þegar hann fékk loforð föður síns fyrir því að fá að verða með í förinni aftur til keisarans kínverska. Hinn ný- vígði páfi vildi þó ekki láta af hendi hundrað menn og senda þá til Kína. Hinsvegar sendi hann tvo betlimunka, sem sneru við til Ítalíu aftur strax er fyrstu erfiðleika ferðalagsins bar að höndum. IL Árið 1275 komu þremenning- arnir á fund Kublai keisara eft- ir að hafa verið þrjú og hálft ár á óslitnu ferðalagi, um Armen- íu, framhjá hinni fornu Ninive til Bagdad, um Persíu til Kasch- gar, þaðan til Lop og Satschou, unz komið var til sumarbústaðar keisarans í Kai-peng-fu í Kína. Þó höfðu þeir tafizt um heilt ár, sökum lasleika Marcos, og með- al annars sigrazt á þrjátíu daga baráttu við hina villugjörnu og hættulegu Gobi-eyðimörk. En nú voru þeir loksins komn- ir, og keisarinn fagnar þeim með innileik og vinsemd. Þeir af- henda honum svarbréf páfa, er þeir hafa meðferðis, auk gjafa, sem þeir gefa úr eigin vasa. — Og hver er ungi maðurinn,

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.