Heima er bezt - 01.06.1951, Blaðsíða 29

Heima er bezt - 01.06.1951, Blaðsíða 29
Nr. 4 Heim’a er beizt 125 og á leið þangað úr trúboðsför til Ameríku. Ég er viss um það nú, að hann hlýtur að hafa veitt því athygli, hversu samferðafólk mitt sniðgekk mig við matborð- ið, og setzt hjá mér til þess eins, að mér fyndist ég ekki sjálfur vera útlagi meðal f jöldans. Hann leit út fyrir að geta hugsað þannig; og það var ekki vottur af kirkjulegri yfirborðsmennsku í fari hans. Alla sjóferðina var hann sá eini, sem taiaöi hlýlega til mín, að undanskildum vesal- ings manninum, sem var með mér í klefanum. .... Ekki svo að skilja, að hin- ir farþegarnir hafi ekki ávarp- að mig. — Þetta sama kvöld var ég á gangi um þilfarið og horfði upp í himininn, þegar hávaxinn og hökulangur náungi með Mið- vesturríkja-andlit og Miðvestur- ríkj'a-rödd gengur að mér og klappar á öxlina á mér. „Hafðu mig afsakaðan, en ég var að velta því fyrir mér, hvort það gæti ekki verið, að þú værir Tékki? Eftir útlitinu að dæma, skilurðu . . . .“ „Hvaða máli skiptir það þig, hvort ég er Tékki eða eitthvað annað?“ spurði ég. Hann setti upp móðgunarsvip og virtist hissa. „Sakar ekki, þótt maður spyrji, eða er svo? Það er engin ástæða til að láta eins og óður hundur, þótt maður spyrji al- gengrar spurningar!“ Ég var í slíku skapi, að ég fann til næsta óviðráðanlegrar löngunar til að berja hann. Ég mótmælti harðlega þeirri stað- hæfingu hans, að hann hefði nokkurt leyfi til þess að spyrja mig spurninga eins og þessarar, ókunnugan mann. En varla hef- ur hann grunað, hversu nærri lá, að honum væri gefin vel úti látin ráðning á sama andartaki. Mér tókst sem sagt að stilla mig um að snerta á honum. En þeg- ar, ég gekk þegjandi burtu, heyrði ég hann tauta: „Sem ég er heill og lifandi! Ekki þarf nú mikið til þess að sumir þjóti upp . . . .“ Ég fór undir þiljur og inn í klefann minn. Veiki maðurinn hafði afklæðzt og lá nú fyrir. Hann heilsaði mér með því að kinka kolli vingjarnlega. Ég hugsa, að hann hafi verið all- mjög einmana og þótt vænt um komu mína — enda þótt ég væri auðsjáanlega ekki í góðu skapi. Hann benti með höfðinu í átt- ina að fiðlukassanum mínum, sem hvolfdi þar uppi á vegg. „Hvað ertu með þarna — fiðlu?“ „Já.“ „Geturðu spilað?“ „Ég hef það að atvinnu.“ Hann leit á mig með ákefð, og þó óstyrkur, eins og hann ótt- aðist það, að hann væri að mæl- ast til of mikils. „Gerðu nú okkur eitthvaö til skemmtunar, kunningi. Spilaðu Þú munt minnast mín.“ Ég tók niður fiðluna. „Ég geri ráð fyrir, að þú eigir við Þegar einhver annar, er ekki svo? Það byrjar þannig . . Og ég spilaði upphafið fyrir hann. Hann kinkaði kolli til samþykk- is. Meðan ég spilaði lá hann al- gjörlega hreyfingarlaus með augun lokuð. Þegar ég hafði lok- ið því, kyssti hann á fingur sér eins og maður, sem tekur við eftirlætisréttinum sínum. „Já, þetta er sannkölluð tón- list! “ hrópaði hann. „Miklu betra en óperurnar, er ekki svo? Það er ekkert hljómsveitar- glamur utan um þetta. Sjáðu til, ég er nefnilega þeirrar skoðun- ar, að þetta sé fallegasta lag, sem nokkurn tíma hefur verið búið til.“ Ég sagði honum ekki, að skoð- un mín væri allt önnur hvað lagið snerti — einkum með til- liti til einleiks á fiðlu. Hann hélt áfram að tala um stund, frá sér numinn, þangað til ræðan tók að þreyta hann. En þá lá hann kyrr og orðlaus, og starði upp í rúmbotninn fyrir ofan sig. Augu hans glömpuðu. Á meðan hann talaði, og eins þegar hann tók sér málhvíld, drakk hann vatn án afláts. Ég spilaði áfram fyrir hann, mjög lágt, og innan skamms var hann fallinn í svefn. Ég sat lengi og horfði á hann. Nú vissi ég alla hans sögu. Nafn hans var Arthúr, og eitthvað meira, sem ég mundi ekki. Hann var stein- smiður og hafði dvalizt í Banda- ríkjunum um skeið við betri kjör og uppgrip en hugsanlegt var í Englandi. Þá hafði hann tekið sjúkdóminn. Læknirinn hafði sagt, að sjúkdómurinn væri slæmur, en að öllum lík- indum ekki gefið manninum í skyn, hver endirinn hlyti að verða. Rétt eins og ég, hafði hann fengið skyndilega og óvið- ráðanlega löngun til að fara heim. Hann hafði sagt við sjálf- an sig: „Einhvernveginn er það svo, að manni líður aldrei sem verst, þegar maður er heima. Þér batnar, ef þú ferð heim.“ Hann saknaði þess eins, að hann átti enga ættingja eða skyld- menni til að hverfa til, nema eina systur, sem var gift og bú- sett einhversstaðar í Midland. Veslings maðurinn! Hann virt- ist ekki hafa hugmynd um dauðann, sem var á næstu grös- um . . . Ég hefði getað sagt hon- um, að hann mætti gleðjast yfir því að eiga enga ættingja. Samúð mín með honum virt- ist þoka drjúgum hluta af óá- nægjunni úr mínum eigin huga. Á þeim tímum andlegrar á- reynslu, sem nýlega voru um garð gengnir, hafði ég orðið sí- fellt meira innhverfur og óá- nægður. Ég hafði þess vegna gott af því nú, að einhver annar var í nánd við mig, sem ég gat hugsað um. Ég þóttist vita, hvers vegna þjónninn hafði sett hann í klefann hjá mér. Ég var harla kynlegur farþegi, sannarlega óhæfur til þess að falla í geö hinna virðulegu farþega skips- ins og því ekki nema sjálfsagt að láta mig snúast fyrir dauð- veikan mann, ef hægt væri að nota mig til þess. Það lá í aug- um uppi, að ekki var hægt að hafa hann einan í klefa, eins og ástatt var fyrir honum; og skip- verjum hefur þótt það bæði heppilegt og viðeigandi, að tveir vandræðagripir um borð fengju að stytta hvor öðrum stundirn- ar. Ég er reyndar hissa á því, hvers vegna honum var ekki komið fyrir í sérstökum sjúkra- klefa skipsins. Ég hef grun um, að þjónninn okkar hafi átt ein- hverja sök á þvi, að svo var ekki gert. Ég gekk til hvílu og svaf lengi og fast — sannkölluðum Þyrni- rósu-svefni. Daginn eftir dvald-

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.