Heima er bezt - 01.06.1951, Qupperneq 31

Heima er bezt - 01.06.1951, Qupperneq 31
HEIM'A ER BE'ZT 127 Tröllatrúin er ævagömul og líklega eitt hið elzta í þjóðtrú okk- ar, skáldlegasta, skemmtilegasta og sennilega sá þáttur þjóðtrú- arinnar, sem við fyrst glötuðum trúnni á. Myndin hér að ofan er úr Bláhvammi við norðurenda Bláfjalls. Þar bjó í fyrndinni Kráka iröllskessa, meinvættur hin versta, er stal bæði fé og mönnum. Hún bjó í helli uppi í berginu og var þangað ókleift hverjum manni. Vottar þar enn fyrir tveim hellisskútum. Er erfitt að kom- ast þangað, en þó fært. Nr. 4 Við fórum út úr reyksalnum og gengum um þilfarið. Arthur, sem virtist mjög félagslyndur maður, ávarpaði annan hvern mann, sem á vegi hans varð. Flestir tóku dræmt í kveðjur hans (kannske vegna þess, í hvaða félagsskap hann var!) og hröðuðu sér burtu. Ekki virtist hann taka neitt sérstaklega eft- ir þessari ógeðfelldu framkomu. Vesalings Arthur! Hann hóstaði ákaft af vindlinum og reikaði þar sem hann gekk. Hann var svo valtur á fótum og ósjálf- bjarga, að ég óttaðist jafnvel, að snörp vindhviða eða halli á skipinu gæti þeytt honum út- byrðis. Áður en vindillinn var reyktur til hálfs, varð Arthur að kasta honum fyrir borð. Við settumst, og Arthur tók að anda djúpt, með gleðisvip á andliti — og hósta. Allt í einu sagði hann: „Ég er þreyttur. Ég er að hugsa um að fara niður.“ Við héldum aftur til klefans okkar. Ég vildi ekki eiga á hættu að veikja trú hans á afturbat- anum með því að bjóða honum aðstoð mína, en hvað eftir ann- að var ég að því kominn. Þegar við komum inn í klefann, var Arthur aðframkominn. Ég hjálp aði honum við að afklæðast og komast upp í. „Það var svei mér átak þetta,“ mælti hann. „Þvílíkur dagur í dag!“ Hann svaf mestan part sem eftir var dagsins, og ég fór að hugsa um það, hvort þetta til- tæki hans hefði í rauninni gert honum gott. En hvað sem því leið, ákvað ég áður en ég gekk til hvílu, að daginn eftir skyldi ég fara til skipslæknisins og fá hann til að líta á klefafélaga minn. Varla hafði ég byrjað að af- klæðast, þegar hann vaknaði. „Þvílíkur dagur í dag!“ end- urtók hann. „Endum hann líka eins og við á. Spilaðu fyrir okk- ur Þú munt minnast min!“ Ég spilaði það fyrir hann mjög lágt og hægt. Augu hans lok- uðust, og svo virtist, sem hann væri sofnaður á ný. Ég klifraði upp í bólið mitt. En ekki getur hann hafa verið sofnaður, þvi að skammri stund síðar heyrði ég, að hann var að drekka vatn. Við höfðum lagzt fyrir óvenju snemma. Það hefur verið árla morguns, er ég vaknaði við það, að ég heyrði einhvern spú. Ég hoppaði fram úr kojunni og spurði félaga minn óttasleg- inn, hvort ég gæti nokkuð gert fyrir hann. Hann brosti veiklu- lega. „Mér líður vel. En ég er bú- inn að týna því, sem ég drakk af víninu í gær . . . Mér datt svo sem alltaf í hug, að mér myndi ekki takast að halda því niðri.“ „Ég ætla að sækja lækninn,“ sagði ég. „Nei, bíddu andartak, félagi. Mér líður ágætlega — aðeins orðið svolítið illt, það er allt og sumt. Mig langar miklu fremur til þess, að einhver sé hjá mér, heldur en að sóttur verði lækn- ir. Viltu gera okkur báðum svo- lítinn greiða?“ „Vissulega. Hvað er það?“ „Að spila Þú munt minnast mín, aðeins einu sinni.“ Ég setti fiðluna við 0*1 mér og spilaði. Andlit hans var slappt og veiklulegt, eins og dýrlings- mynd eftir E1 Greco. Ég hætti að spila. Á andlit hans var kominn annarlegur, grænleitur blær, sem virtist breiðast út frá neðanverðum kjálkabeinunum. Ég laut yfir hann og hvíslaði nafn hans. Hann svaraði ekki. Ég hljóp út úr klefanum til þess að leita uppi lækninn. Á leiðinni lenti ég í fanginu á föð- ur Cunningham. „Hvert ert þú að fara, vinur?“ spurði hann alúðlega. „Að sækja lækninn. Það er deyjandi maður í klefanum mínum.“ „Hvaða nr. er á klefanum?“ Ég sagði honum það og flýtti mér að sinna erindinu. Þegar ég kom inn í klefann aftur, ásamt lækninum, var faðir Cunning- ham þar fyrir. Hann lá á hnj án- um við rúmbríkina. Þar sem ljósglampanum brá fyrir á and- liti Arthúrs, sást gljáandi olía á augabrúnum hans og vörum. „Hann er látinn,“ sagði presturinn.

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.