Heima er bezt - 01.02.1954, Side 4

Heima er bezt - 01.02.1954, Side 4
36 Heima er bezt Nr. 2 á okkur í framtíðinni, og frá heimilunum sjálfum þarf að koma sem mest af heilbrigðri gleði í sál unglingsins, til þess að hann, þegar í æsku, sem og á fullorðinsárunum, mótist af því, eigi einungis sjálfs sín vegna, heldur og annarra, sem hann á eftir að umgangast. En er nú ekki æði víða allt öðruvísi ástatt í þessum efnum? Jafnvel á allflestum heimilum? Er ekki of mikið gert að því, að bæla niður saklausa gleði barna og unglinga, að ég nú ekki tali um þau heimili, þar sem glað- vær barnshlátur má varla heyr- ast — þessi mikla guðs gjöf. Það er hæpinn hagnaður það, að gera börnin of snemma að fullorðnum mönnum. Þá er hætt við að glaðlyndið verði drepið í sál þeirra, en gleðin er ein bezta vöggugjöf hvers manns. Æsk- unni þarf að vera samfara hóf- leg ærsl og hlátur, ókúgað af öll- um, en þó innan þeirra véþanda, er sanngjarnt má telja. Þá get- ur hver og einn reynt að við- halda sínum góðu eiginleikum til fullorðinsáranna og jafnvel verið hlæjandi unglingur, þótt öldungur sé. Séu heimilin aftur á móti gróðrarstía ömurlyndis, luntahyggju, og skötuhjú þessi, hornhagldirnar, séu húsbændur þar, með vinnuhjúunum „111- hryssing“ og „Ólund“, þá er ekki víst, nema þið hafið fundið ástæðuna fyrir því, að ungling- arnir vilji fara að heiman og leiti burt úr sveitinni til þess, sem þeir þó ekki þekkja, en vona að sé eitthvað betra en heima. En þó gæti unga fólkið gert annað í stað þess að flýja sveit- ina sína. Það gæti reynt að lífga upp heimilin, ef því finnst þau daufleg, gæti reynt að vera „hrókur alls fagnaðar". Væri vel farið, ef allir ungir menn litu þannig á það. Þeir gætu veitt sólskininu inn á heimilin, tekið með brosi á móti hverjum gesti, og forðast að setja gamalmenna- hælis-svip á umhverfi sitt. Ég hef kallað þessar línur Gleði á heimilunum og ein- drægni í sveitinni. Ég hef bent á, að mörgum þykir það vera mjög tvlsýn lausn, að unglingarnir hverfa úr sveitunum hálfþrosk- aðir. En til þess að við hin eldri höfum rétt á að halda þeim hjá okkur, og meira að segja til þess að við getum búist við, að þeir vilji vera í sveitunum og hugsi sér að ílendast þar fyrir fullt og allt, verða þeir að eiga, eða hafa átt, skemmtileg heimili í æsku, og hafa þaðan sem flestar hug- ljúfar endurminningar, sem haldi tengslunum við æsku- stöðvarnar óslitnum og gefi þeim löngun til að vinna sveitinni sinni af öllum kröftum. En hér þarf meira með en heimilin þótt góð séu. Það er nauðsynlegt, að eindrægni ríki í sveitinni sjálfri. Hún er öll að verki með að þroska unglinginn. Minnstu kröfur til hvers einstaklings er, að hann elski heimili sitt og átt- haga. Geri hann þetta, verður hann ekki liðhlaupi. En hvernig er nú umhorfs á þessu sviði? Er það ekki upp og ofan hjá okkur í sveitunum? Svipað og á heimil- unum sjálfum? Eru ekki sömu ólundarseggirnir og hornhagld- irnar utan heimilanna líka og sami kuldinn og þokan? Jú, því er verr og miður. Því miður hefur margur ungur maður flúið sveit- ina vegna þess, að hann hefur varla getað talað við nokkurn mann. Enginn hefur lagt sig niður við að benda honum á það rétta, eða skýra fyrir hon- um eitthvað af því marga, sem hann þráði að vita. Allt fram til þess tíma er ung- mennafélögin voru stofnuð, mátti heita að fjöldi af ungu fólki þekktist ekki, þótt í sömu sveit væri, en síðan hefur þetta lagast nokkuð og er það vel. í sumum sveitum er góð eining, en í öðrum er eins og mönnum finnist það svo afar háleitt að fjarlægja sig hverir öðrum, og eins og það sé eitthvað skelfilega guðdómlegt, að þekkja ekki sveitunga sína, eða láta þá kynn- ast sér. Menn gá ekki að því, að þetta leiðir til einhvers hins versta, sem til er, sem eðlilegt er, því af þekkingarleysinu hefur sjaldan nokkuð gott komið. Af þessari fjarlægð hefur svo óein- drægnin myndast. Menn eru álitnir aðrir en þeir eru, verk þeirra önnur en þau eru, og af þessu sprettur svo tortryggni, öf- und og jafnvel hatur, en allt þetta gerir andrúmsloftið óþol- andi, og hugsunarháttinn í sveitinni lágkúrulegan og eitr- aðan. Ég nefni sveitina af því að í greinarkorni þessu er rætt um sveitirnar, en ekki af því, að ég viti ekki, að þetta sama er al- gengt í kaupstöðunum, og ef til vill í enn ríkara mæli. Það, sem ég tel að mesta þýð- ingu hafi, er, að menn reyni að kynnast betur hver öðrum, þá er síður hætta á, að menn geri hver öðrum rangt til og geta talað miklu frjálslegar um menn og málefni, og þá er unnið saman í birtu, en ekki skugga, og það er nauðsynlegt fyrir alla, ekki sízt yngstu kynslóðina. Hún þarf að alazt upp við réttsýni og ein- drægni, svo sem framast getur orðið, og umfram allt má kuldi og rangt mat á náunganum aldrei festa rætur í sál unglings- ins. „ Þótt mér hafi einatt fundist, að þeir, sem menntaðir eru og menntamenn kallast, telji sig eina færa um að segja fyrir um það, hvernig eigi að ala upp börn og Unglinga, dirfist ég nú samt að leggja orð í belg og tel mig hafa til þess dálitla reynslu og ofurlítinn rétt. Ég var alinn upp í stórum barnahóp, þar sem ekki var ein- ungis stór systkinahópur, heldur tveir systkinahópar, því að faðir minn átti 9 börn sem upp kom- ust, og fóstra mín 7. Var flest af þeim saman og ólst upp samtím- is að miklu leyti. Samkomulagið var gott á milli okkar og stjúp- systkinanna og sú vinátta, sem þá var stofnað til, hélzt eftir að þau voru fullorðin. Tvennt þeirra giftust saman. En flestum er víst ljóst, að ekki er það vandalaust verk fyrir stjúpforeldra að stýra svo vel í höfn, að hvergi strandi á skeri. Ég minnist þessa æskuheimilis míns ennþá með óblandinni gleði. Þrátt fyrir all-strangan aga til vinnu, sem okkur var snemma haldið til, voru okkur alltaf leyfðir leikir, söngur og alls slags stympingar, sem við höfðum yndi af. Gleymdum við skjótt stritinu, þegar í leikinn kom, enda var vinnan okkur aldrei böl, heldur blessun, eins og jafnan, þegar henni er í hóf stillt. Þessar saklausu, glöðu æskustundir hafa verið mér drýgsta fararnestið á lífsleiðinni Framh. á bls. 61.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.