Heima er bezt - 01.02.1954, Page 6

Heima er bezt - 01.02.1954, Page 6
38 Heima er bezt Nr. 2 verksmiðju, sem framleiddi gos- drykki. Þessi hjón reyndust mér alltaf hin beztu og komu allan tímann mjög vel fram við mig. Þau áttu eina dóttur barna, er var sex eða sjö ára gömul, er hér var komið. Var hún oft inni hjá mér og hafði ég yndi og á- nægju af nærveru hennar, er ég stundum var einn heima og heimþráin sótti að mér. Ég var einnig oft inni hjá hjónunum og þáði ýmsar góðgerðir, og hitti þar þá stundum danska gesti. Nú vorum við kandídatar komnir til Hafnar, en aðalerind- ið var að fullnuma sig í fæðing- arhjálp, því að án þess fékkst ekki héraðslæknisembætti á ís- landi. Því að héraðslæknar vild- um við allir verða, en nokkur embætti höfðu þá nýlega verið stofnuð og okkur stóðu til boða. Heima í Reykjavík höfðu ýmsir eggjað okkur á að setjast þar að sem starfandi læknar, en þá var Reykjavík fámennur bær og nokkrir duglegir læknar þar fyr- ir. Þá bauðst einnig einhverj- um okkar að gerast aðstoðar- læknir í Ameríku hjá íslenzkum lækni, er þar hafði dvalið um nokkur ár og haft mikið að starfa. En ekkert af þessu leizt okkur á. Ekki gátum við kom- izt strax að á Fæðingarstofnun- inni og var þá um að gera að nota tímann þangað til, til að hlusta á fyrirlestra prófessor- anna við háskólann og horfa á rannsóknir og meðferð sjúkl- inga þeirra á sj úkrahúsunum. Um frekari menntun var naum- ast, þá og lengi síðar, að ræða fyrir kandídata frá skólanum í Reykjavík, því að um spítalavist og störf fyrir þá í Danmörku eða öðrum löndum var þá ekki að tala. Fyrstu dagarnir eftir komu okkar til Hafnar fóru í að heim- sækja dönsku prófessorana og fá leyfi þeirra til að hlusta á þá og vera með (dönsku) stúdentunum við rannsóknir og meðferð sjúkl- inga á sjúkrastofum spítalanna. Þessir voru prófessorarnir, sem ég einkum sneri mér til: Próf. Haslund, próf. Bloch, próf. Fab- er, próf. Gram, próf. Frieden- rich og próf. Sörensen. Voru þetta kennarar í læknisfræði við háskólann í Kaupmannahöfn, og fékk ég leyfi þeirra til að fylgjast með stúdentunum og einkum þeim, er lengst voru komnir í náminu eða stóðu næst lokaprófi, í þá þrjá mánuði, er eftir voru af háskólaárinu og kennsla fór fram. Nálega hvern rúmhelgan dag fór ég að hlusta á einn eða fleiri af þessum pró- fessorum. Sá, er ég mest og næstum daglega hlustaði á, var próf. Haslund. Hann var yfir- læknir við fjórðu deild Kom- mune-spítalans, en þar voru sjúklingar með húðsjúkdóma og samræðissjúkdóma. Varð ég að fara snemma á fætur, því að kennsla byrjaði klukkan hálf- átta, en all-löng leið frá bústað mínum til spítalans. Þegar þang- að kom, voru prófessorinn, stúd- entar og einn eða tveir sjúkling- ar saman komnir í einni stórri stofu. Stúdent var þá látinn at- huga sjúklinginn og spyrja hann, segja álit sitt um eðli sjúkdóms- ins og meðferð. Prófessorinn hlustaði á, greip fram í og leið- rétti, sem vanalega ekki var van- þörf á, og hélt síðan stuttan fyr- irlestur um umræddan sjúkdóm og meðferð á sjúklingum. Þessi kennsluaðferð var og er á lækna- máli kölluð „Klinik“. Stóð þetta venjulega yfir eina klukkustund. Síðan fór ég oft með Haslund á stofugang, sem kallað er. Fyrst fórum við inn í stóra stofu, þar sem margar ungar stúlkur voru rúmliggjandi eða við rúm og sumar illa útlítandi. Þaðan var svo farið inn í margar aðrar sjúkrastofur og litið á og lítið eitt rætt um þá sjúklinga, er þar voru. Þetta stóð yfir til klukkan rúmlega tíu. Haslund prófessor var ágætur kennari, en nokkuð óþýður á manninn og óheflaður stundum eða úrillur við stúdent- ana, en var annars bezti karl og minnti mig alltaf á Halldór gamla Friðriksson, heima í Lat- ínuskólanum. Einu sinni kom ég lítið eitt of seint og klinik byrj- uð. Haslund sagði eitthvað óþvegið um óstundvísi. Þegar ég kom nær og hann þekkti, hver syndaselurinn var, sagði hann: „Om Forladelse, det er en Læge, — men en Læge har hell- er ikke Lov til at lave Skan- dale.“ Ég lét mér þetta sem vind um eyrun þjóta og ei varð meira af. Hann var mér alltaf hinn bezti og gerði sér far um, að ég hefði sem mest gagn af kennsl- unni. Hjá próf. Bloch var ég vana- lega kl. 9—10 við klinik og fyrir- lestur. Hann var yfirlæknir á Frederiksspítala og kenndi hand- lækningar og var víst ágætur skurðlæknir. Fyrirlesari var hann einnig ágætur. Talaði skýrt og skilmerkilega og kom það sér vel fyrir mig, sem einkum fram- an af átti nokkuð erfitt með dönskuna. Þar var ég með stúdentum, sem alveg voru komnir að lokaprófi og var þar einn íslendingur, Sigurður Magnússon frá Laufási. Próf. Gram og Faber voru lyf- læknar við Frederiksspítala og kennarar við háskólann. Kom ég oft nokkuð á klinik hjá þeim, en þó ekki eins oft og hjá Bloch og einkum þó Haslund. Próf. Friedenreich var yfir- læknir við sjöttu deild Kom- mune-spítala. Þar voru geðveiki- sjúklingar. Ég kom oft til hans og var klinik klukkan hálfeitt til hálftvö. Ég hafði tiltölulega minnst not af hans kennslu, því að bæði var, að málfar hans var mjög ógreinilegt, og svo virtist, sem hann væri sígeispandi og grútsyfjaður og svæfði áheyr- endur. í maímánuði var ég hjá próf. Sörensen, yfirlækni við Bleg- dams-spítala. Þar voru sjúkling- ar með smitandi sjúkdóma. Spít- alinn var utarlega í bænum og fór ég þangað í sporvagni. Þarna kom ég þrisvar í viku með stúd- entum, allan mánuðinn út. í hvert sinn hittum við fyrst dyravörð, sem vísaði okkur inn í herbergi, þar sem við skildum eftir yfirhafnir okkar, höfuðföt, jakka og buxur. í herbergi þar inn af fór ég í annan jakka og buxnagarma, sem Steingrímur Matthíasson hafði skilið þar eft- ir og eftirlátið mér, en hann var þar mánuðinn fyrir. Nú fórum við í annað hús, eða í hinn eig- inlega spítala, og þar fengum við hvíta sloppa og hvítar húfur. Þar tók prófessorinn á móti okk- ur. Hann var hinn viðkunnan- legasti og margt af honum að læra. Þar var marga sjúklinga að sjá með mislinga, skarlats-

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.