Heima er bezt - 01.02.1954, Qupperneq 8

Heima er bezt - 01.02.1954, Qupperneq 8
40 Heima er bezt Nr. 2 ingahúsi, en um skemmtun var þar ekki að tala, því aS nú var vetur í Danmörku. Gengum við þá upp frá ströndinni upp á Dyrehavsbakken og inn í Dyre- haven. Voru vegir allir blautir og forugir og hvergi mann að sjá. Smáhús voru þar mörg, en öll lokuð og læst og mannlaus. Voru þau á sumrin notuð til veltinga og gleðskapar. Þar var mikill skógur allt í kring og mátti sjá mörg dádýr og krón- hirti. Fylgdum við þarna engum vegum og lá við, að við villt- umst, en af því að skógurinn var skrúðlaus og aflaufgaður, trén ekki heldur mjög þétt, komum við brátt á rétta leið. Annað sinn fór ég út í Klampen- borg. Það var Sct. Hans Aften eða kvöldið fyrir Jónsmessu. Þá var þar meira líf í tuskunum. Ég var þá með Ingólfi og Jónasi og hittum þar brátt tvær stúlk- ur. Var önnur íslenzk en hin dönsk og héldum við hópinn um kvöldið. Var þar kominn mikill fjöldi fólks innan úr borginni. Voru þar meiri ærsl og ólæti en ég áður hafði þekkt til eða gert mér í hugarlund. Þar voru marg- ir veitingastaðir, drukkið óspart, blásið í lúðra og flautur, dansað og duflað úti og inni. Ekki sá ég þó marga menn ölvaða, þótt glaðværðin væri svona úr hófi. Þrengslin voru svo mikil í mann- þyrpingunni, að við íslenzka stúlkan urðum um tíma fráskil- in við hin, en allt kom þó til skila að lokum og urðum við piltarnir samferða stúlkunum inn í Charlottenlund, en þar áttu þær heima. Við hinir fórum hver heim til sín og var þá langt liðið á vornóttina, sem bæði var björt og blíð. Fáum dögum síðar fórum við Jónas og Ingólfur til Roskilde. Veður var fremur svalt og dimmt yfir, en úrkomulaust. Gekk ferð- in fljótt og vel með járnbrautar- lest. Er til borgarinnar kom, fór- um við fyrst inn á hótel og feng- um okkur þar hressingu. Geng- um síðan út í bæinn og skoðuð- um hina víðfrægu dómkirkju og vorum þar í tvær klukkustund- ir að skoða margt, sem þar er merkilegt og víðfrægt, svo sem líkkistur og minnismerki Dana- konunga og drottninga þeirra, altaristöflu og merk málverk. Þaðan héldum við aftur til hót- elsins og snæddum miðdegisverð, buff og spælegg og jarðarber með rjóma. Þá var eftir að ljúka aðalerindi okkar til borgarinn- ar, en það var að heimsækja og skoða Bistrup, mikið og frægt geðveikrahæli. Var ekki vanda- laust að koma því í verk. Jónas mundi þá eftir því, að lækna- stúdent, Frederiksen að nafni, er árið áður hafði komið í heim- sókn til Reykjavíkur ásamt mörgum öðrum dönskum stúd- entum, átti heima einhversstað- ar í Roskilde. Spurðum við hann uppi. Var okkur tekið vel hjá foreldrum hans og sátum þar um hríð yfir kaffidrykkju og vín- staupi. Gekk systir piltsins, Fanney, um beina. Stúdentinn fylgdi okkur svo til Bistrup og kom okkur þar á framfæri, en sneri sjálfur heimleiðis. Aðstoð- arlæknir, Kranse að nafni, gekk með okkur um spítalann og sýndi okkur allt hátt og lágt og marga sjúklinganna. Við dvöldum þarna nálega þrjár stundir, en að svo búnu snerum við aftur til hótelsins. Eftir beiðni okkar hitti Frederiksen okkur þar aft- ur og drakk með okkur kaffi með koníaki. Til Hafnar komum við, er langt var liðið á kvöldið. Síðasta dag júnímánaðar fór- um við sjö landar til Hilleröd og Fredensborg, norðarlega á Sjá- landi. Það voru þrjár ungar stúlkur, Oddný Vigfúsdóttir frá Akureyri, Margrét Guðmunds- dóttir frá Deild á Akranesi og stúlka, er með henni bjó, Guð- rún að nafni. Piltarnir voru Jón- as Kristjánsson, Ingólfur Gísla- son, Guðmundur Björnsson frá Svarfhóli og sá, er þetta ritar. Við lögðum af stað frá Norður- brautarstöðinni um dagmálabil og héldum til Hilleröd. Á þeirri leið var það okkur til skemmt- unar, að með okkur í vagninum var gamall, danskur karlfauskur, sem lét eins og hann væri ekki með öllum mjalla, var síblaðr- andi, einkum við stúlkurnar, en þó mjög góðlátlega og tók það ekki illa upp, þótt við hentum dálítið gaman af honum. í Hille- röd skoðuðum við Frederiksborg með merku safni, sem þar er. Það var nokkurskonar forn- minjasafn með málverkum og öðrum myndum úr sögu Dan- merkur. Þar voru m. a. mynda- styttur Snorra Sturlusonar, Saxo Grammaticusar, allskonar vopn og málverk af Reykjavík, höfninni og norðurfjöllunum, er þaðan má sjá. Þaðan fórum við gangandi til Fredensborg, sem er merk höll við Esromvatn. Við fórum okkur hægt og ýmist eft- ir aðalgötum eða hliðarstígum í miklum skógi og þéttum, en veðrið var indælt, logn og sól- skin. Við hvíldum okkur í rjóðri, skammt frá bóndabæ. Við Guð- mundur vorum sendir heim á bæinn til að fala þar mjólk eða að minnsta kosti vatn til að svala þorstanum, því að öll vor- um við þreytt og þyrst af göng- unni. Heima hittum við stúlku eina, og er við bárum upp er- indið, var þar engin fyrirstaða. Við Guðmundur vorum báðir á sama máli um, að stúlkan væri lagleg og hugþekk, en kom þó saman um, að hann skyldi flytja mjólkina út í rjóðrið til sam- ferðafólksins, en ég yrði eftir sem gísl, því að við fengum lán- uð ýms ílát undir mjólkina. Sat ég svo um hríð hjá stúlkunni, spjallaði við hana og drakk mjólk. Ekki sá ég þar annað fólk. Áður en varði kom Ingólfur með ílátin og ég varð þá að kveðja og borga greiðann. Er til Fred- ensborg kom fórum við inn á veitingastað og keyptum okkur máltið, súpu, kola, kjúklinga með tilheyrandi kryddi og í ábæti jajrðarber í rjóma. Við vorum þarna allan seinni hluta dagsins að skoða umhverfið og höllina. Þar bjuggu oft erlendir frændur og sifjalið dönsku kon- ungsfjölskyldunnar, er þeir dvöldu í Danmörku á sumrum. Við karlmennirnir fengum okkur bað í Esromvatni. Það var hið þægilegasta bað, enda synti ég lengst út á vatnið, sem var lygnt, hálfvolgt og tært. Heim til Hafnar fórum við ekki fyrr en með seinustu lest klukkan 10. Við vorum öll kát og sungum og trölluðum óspart á leiðinni, þótt suma væri farið að syfja. Á brautarenda skildu leiðir, við Guðmundur fylgdum Oddnýju heim til hennar, því að mjög var orðið framorðið. Þó komum

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.