Heima er bezt - 01.02.1954, Page 10

Heima er bezt - 01.02.1954, Page 10
42 Heima er bezt Nr. 2 Astrid Stefánsson: VARÐHUNDURINN Dýrasaga Hann hafði ekki verið á marga fiska, þegar hann var tek- inn frá mömmu sinni, ásamt systkinum sínum, og settur í kassa og sendur af stað á skrölt- andi mjólkurvagni húsbóndans. Það byrjaði með því að ókunn- ugur maður kom dag nokkurn heim á bæinn. Hann fylgdist með húsbóndanum út í skúrinn, þar sem hvolparnir voru að sjúga mömmu sína og höfðu það þægi- legt. „Fallegir hvolpar," sagði hús- bóndinn. „Kynblendingar,“ sagði ókunni maðurinn fyrirlitlega. „Já, víst eru það kynblending- ar,“ svaraði húsbóndinn ólund- arlega. „Haldið þér að ég mundi selja yður þá, ef þeir væru ó- blandaðir?“ Hvolparnir höfðu kropið þétt- ara að móðurinni, er reyndi að skýla þeim með sjálfri sér, um leið og hún urraði aðvarandi að ókunna manninum. „Fimm krónur,“ stakk hann upp á. „Eruð þér með öllum mjalla, maður! Þeir eru átta. Það er ekki einu sinni króna fyrir hvem.“ „Þér megið vera ánægður með, að nokkur skuli bjóða yður pen- inga fyrir þetta rusl,“ sagði kaupandinn væntanlegi. „Mun- ið, að við verðum að kosta flutn- ing á þeim til Kaupmannahafn- ar, og auk þess verðum við að taka með í reikninginn, að helm- ingurinn drepist, áður en við getum selt þá. Það er engin gull- náma, að verzla með hunda. Það er allt of mikil rýrnun á vör- unni.“ „Átta krónur,“ var uppástunga húsbóndans. „Átta krónur fyrir þetta þarna?“ Hundakaupmaðurinn stjakaði við einum hvolpinum með fætinum. „Kemur ekki til mála! Þá megið þér gjarna drekkja þeim í mógröfinni." Hann myndaði sig til að fara. „Nú, jæja, takið þér þá fyrir fimm krónur,“ sagði húsbóndinn gremjulega. Móðirin hafði andæft hástöf- um, þegar þeir tóku hvolpana frá henni. Henni hafði verið það allt of Ijóst, að hún mundi aldrei fá að sjá þá framar. Þeir höfðu líka af veikum mætti sýnt mót- spyrnu; höfðu ýlfrað og spark- að. En það var allt gagnslaust. Ferðin hafði verið allt annað en skemmtileg, og þegar kassinn loks var kominn til hundasal- ans, hafði hann sagt mörg ljót orð. „Skárra er það nú óþverra draslið! Og einn er ofan í kaup- ið steindauður.“ Það var rétt. í angist sinni höfðu hvolparnir þrýst sér svo fast hver að öðrum, að ein litla systirin hafði kafnað í þrengsl- unum. Hann mundi fátt annað frá þessum tíma, en að hann hafði verið soltinn. Þeir höfðu verið settir hjá hvolpum, sem voru eldri en þeir sjálfir, og börðust alltaf um matinn. Eitt systkina hans hafði verið bitið, svo að það varð að lóga því; annar hvolpur varð veikur í maganum og dó. Nú voru þeir aðeins fimm. Þeir lágu í þéttum hóp á nóttunni, til þess að hafa hlýju hver af öðr- um; það var kalt í skúrnum um nætur. Stundum komu viðskiptavinir í búðina. Flestir létu sér nægja að líta rétt aðeins á hvolpana og fara síðan. En einn góðan veðurdag komu hjón með litla telpu. „Ó, sjáðu litlu hvolpana, mamma!“ sagði telpan. Hvolpurinn hljóp út að netinu, reis upp á afturfæturna og sleikti hönd telpunnar. „Sjáðu mamma! Er hann ekki yndislegur? Má ég ekki eiga hann?“ sagði barnið glaðlega. „Hann er af blönduðu kyni,“ sagði faðir hennar. „Við skulum heldur líta á einhvern, sem er hreinræktaður.“ „Nei,“ sagði telpan og stappaði í gólfið, „ég vil fá þennan.“ „Fyrsta floJcks hundur verður líka miklu dýrari,“ sagði hunda- kaupmaðurinn. „Hvað kostar litla tötrið?“ spurði faðirinn. „Þér skuluð fá hann fyrir tíu krónur, því að ég vil gjarnan verða af með hann. Ég býst við nýrri sendingu þessa dagana, og verð að rýma,“ sagði kaupmað- urinn. „En ég vil heldur borga meira og fá hund, sem er af góðu kyni,“ sagði faðirinn. Litla stúlkan fór að gráta. „En úr því að Ingu lízt nú svona vel á hann?“ sagði móðir- in. „Nú, jæja þá!“ „Hann líkist litlu björnunum í dýragarðinum,“ sagði Inga him- inglöð, þegar hún hafði fengið Frú Astrid Stefánsson, höfundur þessar smásögu, er norsk að œtt, og hefur átt heima í Kauymannahöfn um margra ára skeið. Hún er gift Þorsteini Stefánssyni rit- höfundi. Astrid Stefánsson hefur skrifað eina skáldsögu, „Paa egne Ben.“ Kom hún út í Kaupmannahöfn, en hefur einnig kom- ið út á íslenzku fyrir tveimur árum, og heit- ir í ísl. þýðingunni „Ungfrú SólbergAuk þess hefur hún skrifað fjölda smásagna. Eins og saga þessi ber með sér, er Astrid Stefánsson mikill dýravinur, og hefur starfað mikið að þeim málum í Dan- mörku, verið ritstj. dýraverndunarblaðs og ferðast viða um lönd sem fulltrúi fyrir dýraverndunarfélög í Danmörku. Astrid Stefánsson var nokkurn tíma hér á landi síðastliðið sumar.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.