Heima er bezt - 01.02.1954, Page 11

Heima er bezt - 01.02.1954, Page 11
Nr. 2 Heima er bezt 43 hvolpinn heim og sat og strauk hann allan. Hann á að heita Bangsi, og það er hundurinn minn.“ Og Bangsi horfði á hana með tryggu hvolpsaugunum sínum og sleikti hönd hennar. Þegar nokkrir dagar voru liðn- ir, varð Bangsi sjúkur. Honum var illt í maganum. „Sóðaskapur!“ sagði faðirinn og mamman andvarpaði og þurrkaði og þvoði gólfið þar sem hvolpurinn var. „Við verðum að skila honum og fá góðan hund í staðinn,“ sagði faðirinn. „Það borgar sig ekki að borga dýralækninum fyrir að líta á þetta ræksni.“ „Þetta er hundurinn minn, og hann skal ekki verða sendur til hundakaupmannsins aftur,“ sagði Inga og hélt fast á hund- inum sínum litla. Og eins og vant er að vera: Einkabarnið fékk vilja sinn. Um tíma leit út fyrir að tíu krónunum hefði verið eytt til ónýtis, en Bangsi var auðsjáan- lega hraustur, þrátt fyrir allt; honum batnaði. Og þegar hann hafði unnið bug á sjúkdóminum, varð hann stærri og sterkari með hverjum deginum sem leið. Inga litla og Bangsi voru óað- skiljanleg. Hún kærði sig ekki lengur um brúðurnar sínar; hún brást leikfélögum sínum. Hvar sem hún fór, var þessi stóri, luralegi hundur á hælum henn- ar. Á nóttunni svaf hann á mottu við rúmið hennar. Fyrir kom það, að Ingu dreymdi illa, svo að hún vaknaði hrædd. Þá rétti hún út höndina og strauk hund- inum. Strax var Bangsi glað- vakandi; hann barði skottinu í gólfið, og mjúka tungan hans sleikti hönd hennar og gerði hana rólega. Og árin liðu. Stríðið skall á. Inga var bráðum orðin fullorðin stúlka og átti að fermast um vorið. Áhugamál hennar voru orðin önnur. Hún fór í bíó með vinkonum sínum og stóð á götu- hornum með drengjunum úr skólunum og rabbaði við þá. „Hvert ætlarðu?“ spurði móð- irin. „Út,“ svaraði Inga eins og út í hött. „Á Bangsi ekki að fara með?“ „Ó, mamma, ég get ekki alltaf verið að dragast með þennan hund,“ sagði Inga gremjulega, og þegar Bangsi kom hlaupandi á eftir henni og dinglaði ákaft skottinu, sneri hún sér við; reiði- lega: „Svei, þér seppi! Leggstu í körfuna þína!“ „Það er hræðilegt, hvað þessi hundur getur étið,“ sagði móðir- in. „Skömmtunarseðlarnir okkar nægja ekki.“ Dag einn sá faðirinn auglýs- ingu í blaðinu: „Stór varðhund- ur óskast,“ stóð þar. Hann hringdi í símanúmerið og mað- urinn kom og bauð 100 krónur 1 Bangsa. Því að nú var stríð og allar óskammtaðar vörur höfðu hækkað í verði. „Hvað segir þú við þessu, Inga?“ spurði faðirinn. „Mér er sama,“ svaraði stúlku- barnið. Hún var orðin leið á því, að hundurinn elti hana hvert sem hún fór. Daginn eftir kom nýi eigand- inn til þess að sækja Bangsa. Inga stóð úti á götu ásamt Evu, Kaj og Óla. „Ætlarðu ekki að koma upp og kveðja Bangsa?“ spurði móðirin út um gluggann. Inga ætlaði að fara, en þá tók hún eftir því að Óli brosti stríðnislega. „Ég hef ekki tíma til þess,“ sagði hún, „gefðu honum sykur- mola frá mér.“ Bangsi fylgdist fúslega með manninum niður tröppurnar. En þegar þeir komu út á götu, og hann kom auga á Ingu á horn- inu, fór hann að gelta og togaði í snúruna. „Geturðu gegnt, bölvað kvik- indið þitt!“ sagði maðurinn og sló Bangsa með svipunni. Hundurinn urraði, og það er ekki gott að vita, hver endirinn hefði orðið, ef Inga hefði ekki komið hlaupandi. Hundurinn varð ofsakátur og flaðraði upp um hana. „Svona, svona, þú óhreinkar kápuna mína,“ sagði hún ávít- andi og sneri sér svo að mann- inum: „Þér megið ekki berja Bangsa. Hann hefur aldrei verið barinn.“ Hún strauk loðið höfuð hunds- ins og sagði vingj arnlega, eins og forðum daga: „Svona, vertu nú góður hundur og farðu með manninum.“ Bangsi leit sorgbitnu augna- ráði á hana og virtist verða for- viða. Svo labbaði hann á stað með hinum nýja eiganda sínum. Einhversstaðar úti á Norður- brú er stórt svæði, sem notað er fyrir geymslu á vörum. Há fjala- girðing er allt í kring, og yfir innganginum er málað með stór- um bókstöfum: „HUNDURINN ER LAUS.“ Og sannarlega leit út fyrir, að fólk væri hrætt við að ganga þarna framhjá. Milli fjalanna er stór rifa á einum stað, og þar hefur fólk stundum séð loðnum hundshaus bregða fyrir. Já, það væri líklegast betra að koma þar ekki of nálægt; og margir ganga í boga framhjá þessu svæði. En dag einn kemur Lísa litla framhjá. Hún er fimm ára. Mamma hennar hefur sent hana eftir brauði með kaffinu. Lísa er ekki læs, og þessvegna hefur hún enga hugmynd um, að grimmur hundur sé bak við plankagirð- inguna. Hún gægist inn um rif- una og sjá, þarna kemur stórt, loðið dýr á móti henni. „Seppi, seppi!“ kallar Lísa glaðlega. Og hundurinn kemur nær, með löngu, rauðu tunguna lafandi út úr sér. Nú er hann nærri kominn að rifunni, og þeg- ar bláu, barnslegu augun henn- ar Lísu mæta dapurlegu augna- ráði hundsins, teygir stúlkan allt í einu höndina inn gegnum rif- una og klappar hundinum á höfuðið. „Aumingja seppi!“ segir hún, „en hvað það er leiðinlegt, að þú skulir híma þarna aleinn. Er það ekki afskaplega leiðinlegt fyrir þig?“ Hundurinn dinglar vinalega skottinu og sleikir hönd barnsins. „Þú hlýtur að vera voðalega svangur, aumingja hvuti minn! Villtu ekki fá eina köku?“ Hundurinn tekur sælgætið úr lófa telpunnar. „Hvað er að þér?“ segir mamma Lísu, þegar hún kemur heim. „Hefurðu borðað af kök- unum?“ Lísa þegir og veit sökina á sig. Hún ætlar ekki að láta fullorðna fólkið komast að leyndardómin- um.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.