Heima er bezt - 01.02.1954, Qupperneq 24

Heima er bezt - 01.02.1954, Qupperneq 24
56 Heima er bezt Nr. 2 Magnús Jóhannsson, Hafnarnesi: Svona fór um sjóferð þá því í stúku. Sú ráðabreytni varð mér happasæl. Átti ég margar góðar stundir með stúkufélögun- um. íslendingar höfðu þrjár stúkur í Winnipeg. VaE það föst regla að þær gengjust fyrir einni skemmtiferð á sumri hverju, og var oftast farið til Nýja íslands. Til Nýja íslands var farið með járnbraut um 20 mílna leið til Selkirk. Þaðan var farið með gufubát á Winnipegvatni tveggja stunda ferð til Gimli. Skemmt- unin var vanalega haldin í skógi undir berum himni, en veitingar voru í tjöldum. Við vorum alltaf mjög heppin með veður. Stund- um var þó all hvasst á vatninu og urðu sumir sjóveikir. — Til skemmtunar voru ræðuhöld, í- þróttir, hlaup, stökk, reiptog o. s. frv. Dansað var í tvo tíma áð- ur, auk þessa var alltaf söngur og hljóðfærasláttur, en þegar dimmt var orðið var skemmtun- inni slitið og lagt af stað heim- leiðis. Tók ferð þessi allan dag- inn og fram á nótt. Stúkan í Gimli tók á móti okkur og sá fyrir öllum veitingunum. Tvær systur íslenzkar þekkti ég. Voru þær búsettar í Winni- peg. Það kom eitt sinn fyrir, að önnur þeirra hvarf og fannst ekki í nokkra daga. Systir henn- ar var mjög armædd yfir að vita ekki, hvar hún var niður komin. Svo vitnaðist, að hún væri á matsöluhúsi niðri í bæ. Stúlkan bað mig að sækja systur sína sunnudagsmorgun einn, og varð ég við bón hennar. Mun systirin hafa verið mjög óánægð þar sem hún hafði unnið þennan tíma. Hún fylgdist með mér heim til systur sinnar, en þar talaðist svo til, að hún yrði þar ekki fram- vegis. Var hún því aðeins nótt- ina hjá systur sinni, en þessa sömu nótt brann stórt hús áfast við hús það, þar sem hún hafði unnið áður. Húsið var byggt úr múrsteini og er veggirnir féllu niður, hrundu tveir veggir á húsi því, sem hún hafði verið í þessa daga og urðu tuttugu manns undir er húsið hrundi. Bjargaði það lífi hennar, að hún var hjá systur sinni þessa nótt. Af barnaskap hafði hún ekki látið systur sína vita, hvar hún var niðurkomin, en hún réðst þang- að án þess að ráðfæra sig við Framh. á bls. 61. Sú mesta aflakló, sem ég hef róið með, er Brandur gamli Snjólfsson. Það var sama hvar við lögðum, hvort það var grunnt eða djúpt, alltaf fengum við í kjaftfulla kænuna. En hvinskur var hann, karl- sauðurinn, hreinasti djöfull í veiðarfærum, enda kvörtuðu margir undan hnífnum hans. Ég reri með honum eitt sumar, varð guðsfeginn haustinu, féll ekki við fingralengd hans. Við lágum við í Víkinni. Þaðan var stutt að sækja út á hin á- gætustu mið. Við sóttum mest á svokallaðar Glöggvur, en það eru nákvæm mið, örmjóar sand- lænur, en hraunkargar á bæði skaut. Þarna var fiskur svo gráð- ugur ef lagt var á hægindum, að enginn öngull var auður. Við beittum mest með kræklingi, höfðum ljósabeitu til drýginda. Yfir tíu bátar lágu þá við í Víkinni, mest skektur og tveir á. Flestir voru formennirnir mið- aldra með syni sína nýfermda. Kapp mikið var milli karlanna. Allir vildu verða hæstir. En aðalbaráttan var um, hver fyrst- ur varð á Glöggvuna. Var sá vissastur með afla. Venjulega bárum við sigur úr býtum í þeirri baráttu. Ekki var það vegna þess, að við værum það duglegri en hinir. Karlinn átti það til að læðast á sjóinn, oft á byrjuðu falli, beið þolinmóður á Glöggvunni þar til linaði. Og þegar hinir réru fram- hjá okkur, bullsveittir, hlakkaði í skömminni eins og hrafni, sem kroppað hefur auga úr kind. Þá átti hann það til að segja, djöf- ullega hlakkandi röddu: „Þeir blessa mig trúlega ekki núna, innfirðingarnir.“ En svo kom að því, að honum hefndist fyrir illgirni sína. Hann svaf yfir sig, karlálftin. Þeir voru allir rónir, þegar við komum til sjávar. Hann varð ófrýnilegur, er hann leit auða vörina^ blótaði eins og tarfur og hafði allt á hornum sér. Lágsjávað var og glerhált í fjörunni. Fyrst settum við fram, bárum síðan bjóðin í bátinn. í síðustu ferðinni henti karl- inn það óhapp, að endasendast á hálkunni og hvolfa úr bjóðinu ofan á sig. Kræktust önglarnir víðsvegar í peysuna hans, en haugurinn hélt honum niðri, svo hann mátti sig hvergi hræra. „Hníf, hníf!“ öskraði hann ær af bræði. Ég þaut til dauðskelkaður, hélt fyrst að karlinn lægi þarna stór- slasaður, en er ég leit þessa hlá- legu sjón, gat ég ekki á mér set- ið, skellti uppúr. „Hlærðu helvítis fíflið þitt?“ hvæsti hann. Ég þorði ekki annað en að hætta, en bágt átti ég með mig. „Ertu með kutann?“ „Það er kannske hægt að losa taumana, án þess að skera,“ sagði ég. „Helvítis bölvaður grasasni geturðu verið. Skerðu peysuna segi ég, eða þú skalt eiga mig á fæti!“ grenjaði hann rammhás af heift. Svo risti ég utan af honum peysuna, þessa forláta flík, steingráa að lit, flúraða bæði bak og fyrir. Þegar ég hafði lokið verki mínu, sprakk blaðran. Hláturinn gaus fram á varir mér, taumlaus og óstýrilátur. „Þú flissar!“ öskraði hann hamslaus af bræði og rétti mér svo vel útilátinn snoppung, að ég riðaði við. „Flissaðu nú!“ Engan áverka hlaut ég, en heitur var mér vanginn, en þó heitara innanbrjósts. Ég skalf á beinunum og heiftin svall mér fyrir brjósti, logheit og kraum- andi. Ég stillti mig þó, en hugs- aði honum þegandi þörfina síð- ar. Svo ýttum við úr vör og rér- um af stað. Svarta þoka var skollin á, sjóndeildarhringurinn aðeins of- urlítil kringla umhverfis bátinn. „Nú er hún gæfuleg,“ þaut

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.