Heima er bezt - 01.02.1954, Síða 29

Heima er bezt - 01.02.1954, Síða 29
Nr. 2 Heima er bezt 61 Frá Fornahvammi til Ameríku Framh. af bls. 56. systur sína, og varð svo strax óánægð í vistinni. Voru systur þessar nýlega komnar vestur, er þetta gerðist. Næstu fjögur árin voru fremur viðburðalítil. Ég vann við ýmis störf í Winnipeg. Á vetrum fór ég oft til Manitobavatns og Winnipegvatns. Ég ferðaðist þá talsvert um og kynnti mér land og lýð. Gisti ég þá oft hjá Indí- ánum í kofum þeirra. Indíán- arnir bjuggu á tíu fermílna svæði innan um hérað hvítra manna. Indíánar voru gestrisn- ir. Á þeim árum voru þeir farnir að læra lestur og skrift. Þótti mér einna skemmtilegast að aka með hundasleðum. Hundasleðar voru hafðir til fiskflutninga á ísnum á vötnunum. Eitt sinn, er ég var á ferð þarna norðurfrá, hitti ég Hall Ólafsson, bróður Sigurðar Ólafssonar, er ég var hjá á Hvalsnesi. Átti hann heima norðarlega við Manitobavatn. Var hann kvæntur og átti son og fósturdóttur. Ætluðu þau öll að skreppa heim til íslands vor- ið sem nú fór í hönd (1908). Við sömdum svo, að ég yrði með í þeirri ferð. Árin 1906 og 07 var atvinnulíf með mestum blóma þau árin, sem ég var vestra, og hafði ég jafnan ágæta atvinnu við húsasmíði. Þá tók ég að mér umsjón með verkum. Ég hafði því allgóðar tekjur og afgangur var nokkur, þótt dýrt væri að lifa. Ég hafði ákveðið að taka litlu dóttur mína með mér, þeg- ar ég færi heim til íslands. En hjónin, sem tóku hana, vildu ekki að ég færi og vildu gifta mér gjafvaxta dóttur sína, sem ég hafði grun um, að ekki væri þvi mótfallin. Vildu þau alls ekki missa litlu stúlkuna mína. For- Svona fór um sjóferð þá Framh. af bls. 57. Það sem eftir var sumarsins, lét karlinn annarra veiðarfæri kyrr liggja, enda kom það ekki oftar fyrir að hann svæfi yfir sig. lögin ætluðu víst eitthvað annað með mig, en að ég staðfesti ráð mitt þarna vestra, en árið áður en eg fór, var dóttir hjónanna orðin trúlofuð og þótti mér það alls ekki miður, því að nú losnaði ég úr öllum vanda. Það, sem einkum dró mig til íslandsfarar, var, að móðir mín var orðin heilsutæp og skrifaði mér og óskaði eftir að sjá mig áður en hún dæi. Það herti og á mér, að þetta ár var atvinnuleysi mikið í Winnipeg. Við lögðum svo af stað heim- leiðis um miðjan júnímánuð. Fyrir mér vakti að fara aðeins snögga ferð, en það fór á annan veg. Við vorum átta íslendingar samferða heim, fjölskylda sú er áður getur og tveir karlmenn að auki. Ferðin heim gekk ágæt- lega og var skemmtileg. Vorum við 23 sólarhringa frá Winnipeg til Reykjavíkur. Komið var við í Englandi og skipt þar um' skip. Við komum upp undir strönd ís- lands að Austfjörðum. Hrifningu okkar verður ekki með orðum lýst þegar við sáum gamla land- ið rísa úr sæ. Siglt var skammt undan landi til Reykjavíkur. Okkur fannst ekki verulega sumarlegt þegar við komum til höfuðstaðarins. Þoka var á og fremur kalt. Þetta vor var kalt heima. Allur gróður stóð í full- um blóma í Ameríku þegar við fórum þaðan. Ég skildi við samferðafólk mitt í Reykjavík og fór norður í Hrútafjörð til foreldra minna. Gunnar bróðir minn sótti mig til Borgarness. Móðir mín lifði tæpan mánuð eftir að ég kom heim, svo að ég mátti varla koma síðar til þess að fá að sjá hana á lífi. Gleði á heimilinu . . . Framh. af bls. 36. og að þeim bjó ég bezt, þegar ég fór sjálfur að stíga sömu sporin, að stofna heimili og ala upp börn. Það varð hlutskipti mitt að ala upp 12 börn okkar hjónanna og eina fósturdóttur að auki, fyrir utan nokkur börn önnur og unglinga, sem hjá okkur hafa dvalið um lengri og skemmri tíma, sum svo árum skipti. Ég þykist því með nokkrum rétti og reynslu af barnauppeldi geta lagt nokkuð til þessara mála. Við hjónin urðum að láta börnin vinna, eigi síður en foreldrar okkar. Hjá slíku verður ekki komizt með stóran barnahóp, ef ekki á allt að sigla í strand, og það verður líka hverju barni til góðs. Detta og fáir í þann „lukkupott“, að þurfa aldrei að gera neitt, eða eins og sagt var, „að dýfa hendi sinni í kalt vatn“, enda er það hæpin hamingjuósk barni sínu til handa, þó hún kynni að rætast. Að hinu vona ég að unglingarnir búi lengur, og eins því, að eignast glaðar og frjálsar ánægjustundir með sjálfum sér og glöðum gestum. Það, sem nauðsynlegast er hverj- um unglingi, er, að heimilin séu hlý og vingjarnleg, og viðmót hinna fullorðnu gagnvart börn- unum sé sem ákjósanlegast, hvað sem efnahag líður, sem hefur minni þýðingu í þessu sambandi. Lífsgleði barnanna sé örfuð, en ekki niðurbæld. í æskusveit þeirra á að vera friður og vel- vilji, sem veitir þeim skilyrði til að eignazt eftirminnilegar á- nægjustundir. Þá verður hinni uppvaxandi æsku alltaf hlýtt til æskuheimilisins og æskustöðv- anna, en það er skilyrðið til þess að geta orðið góðir og sannir íslendingar. En það viljum við allir vera. — Skrítlur „Mér fellur það ágætlega að hann Bjarni skuli hafa svona marga galla,“ sagði ung kona við stallsystur sína. „Það er nefni- lega svona með mig, að ég elska að geta skammað einhvern." —o— „Þegar ég vaknaði í morgun var ég með eyrnaverk, maga- verk, tannpínu og höfuðverk,“ sagði skóladrengur við félaga sinn þar sem þeir voru úti í frí- mínútunum, „en ekkert af því hjálpaði.“ „Elskan mín,“ sagði unga stúlkan við unnusta sinn, „ef einhverjum skyldi nú detta í hug að spyrja mig að því, hvað ég sjái við þig — hverju á ég þá að svara?“

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.