Heima er bezt - 01.05.1954, Qupperneq 10

Heima er bezt - 01.05.1954, Qupperneq 10
138 Nr. 5 í Kollamúla nótt og dag nema rétt um svartasta lágnættið því þá hélt féð kyrru fyrir. Hlífðar- föt voru ekki eins fullkomin þá og nú enda vorum við bjórvotir alla daga en nærbuxurnar geymdum við inni í kofa til þess að hafa eitthvað þurrt að fara í meðan við héldum kyrru fyrir. Á morgnanna urðum við svo að fara í blautar utanyfirbuxur og blauta sokka næst okkur. Matur gekk til þurrðar í þess- ari löngu útivist, en við slátruð- um fé okkur til matar og suðum súpu af kjötinu og fjallagrösum. Þegar þrjár vikur voru liðnar hafði ég sent tvo menn til byggða. Þá sjatnaði svo mikið í Víðidalsá, að við ákváðum að reka féð þá leið fram, því Jökuls- á var ófær. Smöluðum við þá fénu saman og ákváðum að fara yfir ána og upp Sviftungur. Ekki gekk þetta ferðalag samt sem bezt því þá gekk í ausandi stór- rigningu á ný og vorum við 6 klukkustundir að hnoða fénu yf- ir ána, urðum þá að hafa hönd á svo að segja hverri skepnu. Úr Sviftungum komum við fénu í Hnappadal en þá var óveðrið orðið svo mikið, að við urðum að skilja það eftir og fara til byggða, komum við að Stafafelli klukkan 3 um nótt heldur illa til reika.“ „Er þetta erfiðasta fjallganga, sem þú manst eftir?" „Það er eftir því hvernig á það er litið. Við vorum aldrei í neinni beinni hættu í þetta skipti en það vorum við hins vegar í eftir- leit um áramótin 1923—24. Það mun hafa verið upp úr áramót- unum, að við fórum i eftirleit inn í Kollumúla þrír saman. Þorleif- ur Halldórsson, sem nú er bóndi í Syðra-Firði, Sigurður heitinn Högnason,sem þá var vinnumað- ur á Stafafelli og ég. Snjór var yfir öllu og hjarn í fjöllum. Fyrsta daginn fór Sigurður Högnason inn í Tröllakróka og Axafell, en við Þorleifur eða Leifi eins og hann er jafnan kallaður upp á Kollumúlann og þaðan inn í Víðidal. Um fjögurleytið eða með dimmunni fann ég tvær kindur á Kollamúlaflögum. Okk- ur gekk ekki sem bezt að hand- sama kindurnar, en þegar því var lokið leið ekki á löngu unz þær þreyttust og samtímis skall Heima er bezt á blindbylur. Við þvældumst með kindurnar góða stund ýmist dragandi eða berandi unz veðrið var orðið svo vont að við urðum að láta þær eiga sig. Skildum við kindurnar þá eftir á Flánum hjá stórri reyniviðarhríslu. Við treystum okkur ekki til þess að rata beinustu leið vegna óveðurs og myrkurs því á þeirri leið voru hengigljúfur. Tókum við það til bragðs að reyna að hitta á Jökulsá því henni áttum við að geta fylgt að kofanum. Leiðin lá um klettabelti, skóga og rjóður á víxl, ultum við stund- um dálítið en hlutum ekki meiðsli að neinu ráði. Loks kom- um við að Jökulsá, sem var fros- in nema mestu hávaðar. Við námum staðar við ána og geng- um úr skugga um hvernig hún rynni, síðan gengum við móti straumi eftir gljúfrinu. Leiðin var ekki greiðfær, urðum við að tylla okkur á skarir undir klett- um og snögum en öðru hverju að vaða grunnstingul. Ógerlegt var að fara upp úr gljúfrinu fyr- ir harðfenni og óveðri. Til allrar hamingju urðum við ekki varir við snjóflóð. Ekki sáum við á úrin okkar fyrir náttmyrkri. Skógarhríslur, sem stóðu út úr árbakkanum leiddu okkur á rétta leið til kof- ans en þær gáfu til kynna að gljúfrinu hefði sleppt. Þá var að sækja upp á ölduna, sem kofinn stóð á. Kofinn var byggður úr grjóti og torfi, þakið úr bárujárni en þakið með torfi. Þannig byggðir kofar líkjast landslaginu mjög á koldimmri skammdegisnótt. Einhvernveg- inn römbuðum við samt að kof- anum og barði ég þegar að dyr- um og spurði hvort nokkur væri inni. Sterk karlmannsrödd svar- aði. „Fari nú allt í Andskotann“. Ég þekkti karlmannlegan róm Sigurðar Högnasonar, en ekki veit ég hvort hann átti þá von á okkur lifandi eða dauðum því klukkan var tvö um nótt, og höfðum við því barizt við bylinn í tíu klukkustundir. Daginn eftir var bærilegt veð- ur og komum við þá kindunum út í Austurskóga en sjálfir fór- um við að Stafafelli.“ „Var ekki erfitt að fá sömu mennina til þess að fara í þess- ar göngur?“ „Ekki svo mjög. Eins og þú veizt fór ég í Eskifellsfjöll í um það bil 20 ár lengst af sem gangnastjóri. Bæði ég og aðrir sem þá gengu Eskifellsfj öll átt- um kindur þar sjálfir. Vinnu- mannskaup á Stafafelli var í þá daga 50—60 kindafóður. Þessar kindur tengdu okkur við fjöllin og raunar öll störf sem vinna varð á heimilinu. Nú til dags vinna menn frekar fyrir viku- kaupi en ekki tengir það greiðslufyrirkomulag menn við landbúnaðinn á sama hátt og kindaeignin gerði áður. Ég hef margan daginn þrammað blaut- ur og illa til reika í Eskifells- fjöllum en samt fannst mér allt- af heilsusamlegt að fara þangað og oftast bötnuðu mér umgangs- kvillar þegar þangað kom. Og það segi ég satt að heldur vildi ég vaða ófærð í Eskifellsfjöllum í misjöfnu veðri en bíða aðgerða á sjúkrahúsi." „Er ekki aðstaðan orðin betri nú?“ „Hún er orðin gerbreytt. Milli Þóris-Dals og Stafafells er komin brú á Jökulsá og þar sem drátt- urinn var áður er nú komin göngubrú, geta menn því sloppið við að vaða þessa vondu á eins og áður var.“ Samtalinu er lokið en ekki væri ótilhlýðilegt að ljúka því með því að þakka Jóni Guð- mundssyni þann skerf, er hann hefur lagt til fræðslu um fjall- göngur með þessari frásögn. Ólafur Gunnarsson frá Vík í Lóni. Smælki Ungur ótrúlofaður maður ræddi um hjóna- bandið af fjálgleik og skáldlegri andagift: — Hjónabandið er eins og höfn, þar sem tvö skip mætast og leggja sfðan af stað til ævilangrar fylgdar um útsæ mannlífsins. — Jæja, sagði kunningi hans, sem var kvæntur, þá hef ég líklega mætt þerskipi. * Vikadrengurinn kemur inn til ritstjórans og segir: — Það er komin stúlka, sem vill fá að tala við ritstjórann. Ritstjórinn: Er hún lagleg? Vikadrengurinn: Já, mjög lagleg, ef hún væri það ekki, mundi hún ekki koma sjálf með handritið sitt, heldur senda það í pósti.

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.