Heima er bezt - 01.05.1954, Blaðsíða 12

Heima er bezt - 01.05.1954, Blaðsíða 12
140 Heimá er bezt Nr. 5 hvað tímanum leið, því á þeim dögum var ekki úr í hvers manns vasa. Honum leiddist biðin eftir hvíld lambsins og það hvarflaði að honum, að skilja lambið eftir og reyna að bjarga sjálfum sér. En þegar á átti að herða, gat hann ekki hugsað til þess að skilja lambið eftir. Hann hafði lagt sig í hættu til að bjarga því, og nú var hann og það orðnir félagar í þessari myrku gröf, sem þeir voru staddir í. Og þar að auki fann hann, að honum leið betur í fylgd með lambinu en vera þarna einn á ferð í dimm- unni. Hann hafði lagzt út af þarna á aurana og sofnað, en ætlaði sér þá alls ekki að sofna. En nú hrökk hann upp við það, að hann heyrði jarm. Hann spratt upp og sá þá, að lambið hafði staðið upp og var tilbúið til ferðar, en þó ekki lagt af stað. Eyjólfur kvaðst ekki vera í neinum vafa um það, að lambið hefði jarmað til þess að gera sér við vart og vekja sig. Jafnskjótt og hann var staðinn upp, tók það á rás eftir sprungunni í sömu átt og áður. Hann elti nú lambið, eins og fyrr og lét það alveg ráða ferð- inni, bæði stefnunni og hraðan- um. Það var óljós von í huga hans um það, að lambið mundi finna útgöngudyr úr þessu myrkraríki. Og að því kom, að honum virtist hann sjá ljósskímu langt fram undan. Lambið virt- ist líka sjá þetta og herti nú á ferðinni. Á svipstundu snerist allur hugur Eyjólfs um þessa blessuðu ljósskímu, sem var að vísu dauf og virtist í mikilli fjar- lægð. En smám saman varð hún bjartari og færðist nær og varð seinast að þröngum útgöngudyr- um úr þessari miklu og dimmu jökulsprungu. Ekki verður hér lýst fögnuði Eyjólfs. En lambið faðmaði hann að sér, kyssti á snoppu þess og taldi það lífgjafa sinn. Útgöngudyrnar voru fast nið- ur við Jökulsá á Sólheimasandi, þar sem hún ryðst fram í gilinu, undan jökultanganum og skáld- ið segir, að „jökullinn í hafið gægist niður.“ — Það fyrsta, sem Eyjólfur hafðist að, eftir að hann kom úr sprungunni, var að leita að haglendi handa lambinu til að seðja hungur þess. Var hann svo heppinn að finna þarna í auðninni grastopp handa lamb- inu. Hófst nú erfið og torsótt leið með lambið heim að Sólheimum, en þangað var komið um það leyti daginn eftir, er fólk var að koma á fætur. Hafði því barátt- ann við jökulssprunguna og myrkrið, ásamt leiðinni frá henni heim að bænum, tekið tæpan sólarhring. Allir höfðu talið Eyjólf af og engum til hug- arkomið, að hann mundi komast lifandi úr sprungunni. Töldu menn líklegast, að hann hefði marizt sundur, er sprungan seig saman. Var talið alveg tilgangs- laust að reyna að bjarga hon- um. Til þess hefði þurft að höggva upp skriðjökul, sem sí- fellt var á hreyfingu og svo mikl- um breytingum háður, að hlutir, sem lentu ofan í djúpar sprung- ur, lágu stundum ofan á jökl- inum eftir nokkra mánuði. Heimilisfólkið varð Eyjólfi mjög fegið og fagnaði því, að hafa heimt hann úr helju. Að öðru leyti var það undrandi á því, að hann skyldi bjargast úr jökulsprungunni og þurfti hann oft að segja söguna um björgun sína heimilisfólkinu og ná- grönnunum. En sagan varð ekki véfengd, því björgun hans úr lífshættunni var næg sönnun eins og þarna stóð á. Er Eyjólf- ur var að því spurður, hvort hann hefði ekki verið forsjón- inni þakklátur fyrir lífgjöfina, sneiddi hann hjá að svara því, en varð tíðrætt um það, að hann hefði átt lambinu lífgjöfina að þakka. Það hefði algerlega tekið af sér ráðin og stýrt ferðinni þarna frá myrkri til ljóss og frá dauðanum til lífsins. Bjarni Sigurðsson frá Þykkvabæjarklaustri. Smælki Ungur veðurfræðingur: — Anna, elskan mín, þú ert sól lífs míns, bros þitt er eins og morgunroðinn, augu þín blá sem himinninn, hár þitt er eins og leiftrandi norðurljós. Ef við giftumst skiptir engu, þótt stormurinn hvíni,, stórhríðin bjdji eða regnið lemji. Þá mundum við standa saman af okkur öll hretviðri lífsins. Anna: heyrðu góði minn, ertu að tala við mig, eða varstu aðeins að lesa veður- skeytin frá veðurstofunni? Æskan Hve glöð er æskan okkar með yndisbros á vörum, svo hispurslaus og hugrökk og hrein í öllum svörum. Við ærsl og leiki unir úti á götu lengi. Ég sé þar horskar hnátur og hrausta, glaða drengi. Sem fugl á vori flýgur fram um sveitardah, þá glóir sól á grundum og grænkar laut og bali. Og störfin styrkja hana. Nú streymir blóð um æðar. Svo sprettir hún úr spori spöl til efstu hæðar. Er haustar að og húmar og hrímið sést á fjöllum. Hún lætur ei að leikjum, en lýtur skólarjs köllum. Við námið keik hún keppist. og kemur snemma á fæturf Svona á Island syni og sannar, góðar dætur. Ferð Eg fór yfir heiði einn hrollkaldan dag þá var hríðin mér grimm. Og hún söng mér í eyru ógnþrungið lag svo áköf og dimm. Eg barðist mót frosti og fannkomu þá, yfir frera og grjót, unz niður í dalinn leiðin mín lá svo ljósinu mót. Svo kom ég til bæjar og barði á dyr. Mér boðið var inn. Dável mér undi að dúsa þar kyr og dvaldi um sinn. Brátt fór að iíða að lágnætti þá og ljósið það deyr. En dóttirin síðhærða settist mér hjá. Eg segi ekki meir. 26.2. 1954. Steinþór B. Kristjánsscm, frá Hjarðardal.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.