Heima er bezt - 01.05.1954, Side 18

Heima er bezt - 01.05.1954, Side 18
146 Heima er bezt Nr. 5 Kirkjuklettur Þegar foreldrar mínir fluttust hingað að Helgastöðum í Bisk- upstungum, fyrir rúmum þrem áratugum, var þeim sagt, aó skammt frá bænum væri laut ein, sem væri gædd þeirri nátt- úru, að í henni hrektist aldrei hey, sem þar væri sprottið. Það kæmi alltaf þurrkur innan skamms tíma, þegar búið væri að slá lautina, hversu sem tíð- arfari annars væri háttað, og því næðist heyið úr henni jafnan grænt. En varast yrði að setja það hey til síðu á nokkurn hátt, þegar þurrkurinn kæmi, því að þá missti lautin áhrifamátt sinn í það skiptið, og heyið í henni gæti þá hrakist eins og hvert annað hey. Laut þessi er að engu leyti sér- kennileg að ytra útliti. Hún er allmikil ummáls, en fremur grunn og vaxin smágerðu grasi. Örskammt frá lautinni er klettur einn úr gráleitu basalti, sem nefnist Kirkjuklettur. Er lautin við hann kennd og kölluð Kirkjulaut. Var það trú manna, að klettur þessi væri kirkja þess huldufólks, sem byggi í nálæg- um klettum. Og enginn vafi var talinn leika á því, að dularmátt- ur lautarinnar stæði í nánu sam- bandi við tilveru huldufólksins. Kirkjuklettur er fáum klettum líkur. Hann er einkar fagurlega mótaður, stendur hátt og sést langt að. Öll börn höfðu beyg af þessum kletti og vildu ógjarnan koma nálægt honum eftir að skyggja tók. Var svo enn á upp- vaxtarárum mínum. Það fóru ýmsar sögur af klettinum, sem voru þess eðlis, að þær hlutu að vekja ugg í hugarfylgsnum barna og unglinga -— og jafnvel þeirra fullorðnu líka. Kona ein, sem ól allan sinn aldur hér á Helgastöð- um, kvaðst hafa heyrt söng og messugerð í klettinum. Og fleiri töldu sig hafa heyrt þaðan ókennileg hljóð. — Eitt sinn er ég var staddur við klettinn, á sólfögrum sumardegi, heyrði ég undarlegan dynk, sem mér virt- ist koma úr klettinum. Var eins og skellt væri þungri hurð að stöfum. Öðru sinni heyrði og kirkjulaut frænka mín, sem var hér gest- komandi, sams konar hljóð í klettinum. Og fleira mætti til- greina af svipuðu tagi. Ekki höfðu foreldrar mínir lengi búið hér á Helgastöðum, þegar reynt var á áhrifamátt Kirkjulautar í fyrsta skipti af þeim. Þá hafði, að undanförnu, verið votviðrasamt drjúglangan tíma. Þetta var á túnaslætti og þvi mikil þörf fyrir þurrk. Og lautin brást sannarlega ekki því trausti, sem til hennar var bor- ið. Þurrkurinn kom fljótlega, og heyið úr henni náðist grænt og ilmandi. — Síðan hefur lautin verið slegin á hverju sumri, þeg- ar þörfin hefur verið einna mest fyrir þurrk, og aldrei hefur það brugðizt, á þessu þrjátíu ára tímabili, að þurrkurinn kæmi áður en lautarheyið væri tekið að fölna og spillast. Það hefur því jafnan náðst grænt og í góðu ásigkomulagi, þótt mikið af öðru heyi hrektist oft og einatt, að meira eða minna leyti. — Aðeins einu sinni á þessu umrædda tímabili hraktist heyið í laút- inni, og var það einungis vegna þess, að ekki var fylgt settum reglum. í þetta skipti var lautin slegin, sem oftar, í þrálátri vætu- tíð. Kom þá þurrkur að venju, en þar eð mikið var úti af töðu, sem lá undir skemmdum, var lautar- heyinu eigi sinnt sem skyldi. Þurrkurinn stóð í skemmra lagi og urðu af honum minni not en vonir stóðu til. Þó varð einhverj u af töðunni komið und- ir þak. En lautarheyið rigndi þurrt og flatt, aldrei þessu vant, og fölnaði von bráðar. Að fenginni framangreindri reynslu, tel ég það augljósa stað- reynd, að ummæli gamla fólks- ins um laut þessa hafi ekki ver- ið á neinum hugarburði byggð, heldur öruggri vissu. Og vel væri ef sú staðreynd gæti orðið ein- hverjum ábending um að var- ast að fella niðrandi dóma um önnur skyld málefni, sem við menn hljótum ávallt að hafa mjög takmarkaðan skilning á. Helgastöðum, 26. marz 1954. Eyþór Erlendsson. Til dalsins Ennþá finn ég fagran dal, fækka kynningarnar. Hugans inn í hljóðan sal hreyfast minningarnar. Hér ánægja lífs var léð, lækurinn hægir sönginn. Aldrei fæ ég framar séð fornu bæjargöngin. Eyðing hylur úfinn svörð, aftur skilar fáu. Feigðarbylur beygði að jörð bæjarþilin háu. Tízkuvöldin vekja hryggð, verða útgjöld að meini. Nýja öldin öll er byggð upp af köldum steini. Gömlu þreyðu göturnar glumdu á reiðarfundum. Á vegagreiðum grundum var gripið skeiðið stundum. Gæðings kynið hugann hreif hófadynur steininn. Um þessa vini á víð og dreif vitna skinin beinin. Gæfu valið var hér dreymt, vaknar halur sofinn. Lækjahjal í hlíðum gleymt, horfinn smalakofinn. Minnkar hól um hófagand, á hann ei stólað frekar. Þjóta og spóla um þetta land þúsund hjóla drekar. Breyting skjót sem orðin er öll til bóta standi. Á æskumót ei oftar fer, orðinn fótgangandi. Dagsins glóðin dvína fer, dimma óðum tekur. Föður og móður minning hér moldin hljóða vekur. Minning hlý sem hulin er, hjartans drýgir sjóðinn. Gegnum skýin greini ég hér gamla og nýja móðinn. Gisli Ólafsson frá Eiríksstöðum.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.