Heima er bezt - 01.05.1954, Blaðsíða 22

Heima er bezt - 01.05.1954, Blaðsíða 22
150 Heima er bezt Nr. 5 Kristmundur Bjarnason: Fyrsti íslenzki kvenlæknirinn Efni þessarar greinar er sótt víða að. — Það hafði orðið að samningum með okkur Hrefnu lækni, að ég ritaði um hana all- ítarlega grein, en hún greiddi úr þeim spurningum, er ég kynni að leggja fyrir hana. Sendi hún mér úrklippur úr fjölmörgum blöðum og tímaritum, er höfðu birt viðtöl við hana eða rita lát- ið um hana. Stóðu bréfaskipti okkar sem hæst, er hún lézt, og varð því fjölmörgum spurning- um mínum aldrei svarað. Hér get ég nokkurra þeirra heimilda, er ég hef notað, allra get ég ekki getið, þar eð eigi var hægt að sj á á sumum úrklippun- um, úr hvaða blaði eða tíma- riti þær voru teknar: Medical Women’s Journal, sept. 1944; Upplýsingar í plaggi, er Office of War Information í Bendaríkjun- um sendi til íslands, 26. maí 1943 og 2. júlí sama ár; Sun- Telegram (San Bernadino) 18. maí 1947; American Magazine, marzhefti 1928; Who is Who in America, út g. 1944; Women in Medicine, júlí 1944; Brautin (tímarit í Winnipeg), 4. árg. 1947; Árdís (tímarit Wpeg), 7. h. 1940; bréf (til mín) frá Bank of America, San Bernadino, Kal.; bréf (til mín) frá Benedikt Lín- dal, Efra-Núpi, Hún.; Sögur ísa- foldar I. (Rvík 1947); Bjarni Thorarensen: Ljóðmæli I., II.; Safn Fræðafélagsins um ísland og íslending'a IV. og XIII.: ísl. æviskrár; Sýslumannaævir; Annáll 19. alddar. — Fleiri heim- ildir hirði ég ekki um að tína til, en sumra er getið í greininni. Kristmundur Bjarnason. Á 19. öld ofanverðri bjuggu hjónin Finnbogi (f. 2.5. 1841) Guðmundsson smiður og kona hans, Mildríður Margrét (f. 16.6. 1848, d. 30.5. 1936) Benedikts- dóttir, að Tindum í Geiradal í Austur-Barðastrandarsýslu. en áður höfðu hjón þessi búið að Verður hér rakin ætt þessara Skárastöðum 1 Miðfirði. hjóna að nokkru, þar eð hún kann að varpa nokkru ljósi á það, sem grein þessi fjallar að- allega um. Finnbogi var sonur séra Guð- mundar (f. 22. des. 1810, d. 31. okt. 1870) prófasts Vigfússonar, er síðast var að Mel, og konu hans, Guðrúnar yngri (f. 29. marz 1810, d. 23. maí 1900) Finn- bogadóttur, verzlunarmanns í Reykjavík, Björnssonar. Séra Guðmundur var framkvæmda- og hirðumaður, svo að af þótti bera, mannkostmaður ínikill, höfðingi í lund, enda fjáður vel. Foreldrar séra Guðmundar voru Vigfús á Signýjarstöðum Guðmundsson, ökonomuss Vig- fússonar, og kona hans, Guðrún Jónsdóttir prests og skálds Hjaltalíns. Var Jón prestur tal- inn glæsilegur gáfumaður, klerkur góður og einstaklega vinsæll. Búmaður var hann mik- ill og hlaut verðlaun fyrir afköst í þeirri grein. Skáld var hann og talinn allgott á þeirrar tíðar mælikvarða, og er enn mikið varðveitt af skáldskap hans. Séra Jón Hjaltalín var tví- kvæntur. Meðal barna hans af fyrra hjónabandi var Oddur læknir Hjaltalín, albróðir Guð- rúnar, stórbrotinn gáfumaður, þótt ekki færi saman hjá honum gæfa og gjörvileiki. Bjarni amtmaður Thorarensen, sem var vildarvinur hans, telur hann ein- hvern bezta og heppnasta lækni á landinu á sinni tíð. — Meðal barna Jóns prests af síðara hjónabandi var Jón landlæknir Hjaltalín, merkur gáfu- og hug- sjónamaður. Báðir fengu þeir bræður hagmælskuna að arfi. Um föðurætt Finnboga á Tind- um má því segja, að þar væri mann val að gáfum og drengi- leik, og ekki mun þá þar lægst bera ömmubræður hans tvo, læknana Jón og Odd, því að ekki getur vínhneigð og annáluð hvefsni Odds breitt blæju gleymsku yfir mannkosti hans mikla og góða, og fer því hér sem oft, að ekki skýlir skugg- inn, þá skinið er bjart. Móðurætt Finnboga rek ég ekki hér, get þess aðeins, að madaama Guðrún var systir séra Jakobs á Staðarbakka og Ásgeirs á Lundum og eru styrkir stofnar þeirrar ættar. Mildríður Margrét (en hún var jafnan nefnd síðara nafninu), kona Finnboga, var dóttir Bene- dikts (f. 25. des. 1796, d. 26. des. 1859) smiðs og „læknis“ í Hnausakoti í Miðfirði. Benedikt var leikmaður í læknislist, en varð nafnfrægur fyrir lækninga- tilraunir sínar, enda þótti hann farsæll læknir. Smiður var Bene- dikt góður og hagorður. (Eftir hann eru prentaðar Rímur af Gesti Bárðarsyni, Bessast. 1908). í Annál 19. aldar segir séra Pétur Guðmundsson meðal annars svo um Benedikt: „Hann mátti að mörgu leyti telja meðal hinna fremstu leikmanna." Benedikt var tvíkvæntur. Síð- ari kona hans var Sólrún Sæ- mundsdóttir, Brynjólfssonar að Gafli, Hálfdanarsonar. Við henni átti hann tvö börn; var annað Mildríður Margrét, sem áður er getið, hitt Hjörtur Líndal að Efra-Núpi, landskunnur búhöld- ur og „bjargvættur í sveit sinni.“ Sólrún Sæmundsdóttir var tal- in kona fluggáfuð, bráðdugleg og stjórnsöm húsfreyja. Læknislist stundaði hún a.m.k. síðari ár sín, svo og Hjörtur sonur hennar, sem áður er getið, á yngri árum sín- um. Sólrún var þrígift, og var Benedikt fyrsti maður hennar. Til þess að sýna, hver töggur var í Sólrúnu húsfreyju get ég ekki stillt mig um að taka hér upp kafla úr hinni ágætu bók Magn- úsar F. Jónssonar, Skammdegis- gestir, en þar er hennar getið. Skömmu eftir að Björn Ólafs- son, 2. maður Sólrúnar, kom að Hnausakoti, keypti hann Skára- staði, sem er næsti bær við Að- alból, og liggja lönd saman. Um þessar mundir bjó á Aðalbóli

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.