Heima er bezt - 01.04.1955, Side 30
126
Heima er bezt
Nr. 4
SMÁSAGNA
SAMKEPPNI
SAMVINNAN efnir hérmeð til smásagnakeppni og mun veita þrenn verð-
laun fyrir beztu sögurnar, sem ritinu berast fyrir 15. apríl næstkomandi.
Mun þriggja manna dómnefnd velja verðlaunasögurnar, en í henni eiga
sæti Andrés Björnsson, magister, Andrés Kristj ánsson, blaðamaður og Bene-
dikt Gröndal, ritstjóri. Verðlaunin verða sem hér segir:
1. Ferð með Dísarfelli til meginlandshafnar og heim aft-
ur og 2000 krónur að auki.
2. 1000 krónur.
3. 500 krónur.
Sá, sem fyrstu verðlaun hlýtur, skal fara verðlaunaferðina fyrir lok þessa
árs og getur hagað báðum ferðunum eftir samkomulagi við Samvinnuna og
skipadeild SÍS. Hann skal skrifa fyrir Samvinnuna a.m.k. eina grein úr ferð-
inni án frekari ritlauna. Getur verðlaunahöfundurinn farið hvert, sem
hann vill, frá hafnarborginni milli siglingar og heimferðar sinnar.
í smásagnakeppni þessari mega taka þátt allir íslenzkir borgarar, ungir og
gamlir, hvort sem þeir hafa áður birt eftir sig sögur eða ekki. Sögurnar verða
að sjálfsögðu að vera frumsamdar, 1000—3000 orð að lengd. Handrit skal
senda til Samvinnunnar, Sambandshúsinu, Reykjavík. Skal fylgja því nafn
og heimilisfang höfundar í lokuðu umslagi, en það og handritið skal auð-
kennt á sama hátt. Samvinnan eignast birtingarrétt verðlaunasagnanna
án frekari greiðslu, en skal hafa forkaupsrétt að öðrum sögum, sem sendar
verða, fyrir venjuleg ritlaun.
Freistiö gæfunnar!
Sendið Samvinnunni smásögur fyrir 15. apríl
SAMVINNAN