Heima er bezt - 01.12.1963, Blaðsíða 10

Heima er bezt - 01.12.1963, Blaðsíða 10
BERNHARÐ STEFANSSON: Jónsson, Iþi aiDingismaour & Iinn 17. júní, afmælisdagur Jóns Sigurðssonar forseta, er þjóðhátíðardagur okkar Islendinga. Sá dagur var og valinn til lýðveldisstofnunar- innar árið 1944, beinlínis með tilliti til þess að það var afmælisdagur Jóns. Engan mann tignum við ís- lendingar eins og Jón Sigurðsson. Hann var hinn mikli foringi, sem vísaði veginn fram á við til fulls sjálfstæðis, þó hann hafi sennilega aldrei hugsað sér að landið yrði lýðveldi í fyrirsjáanlegri framtíð. „Aumur er höfuð- laus her“ segir gamalt máltæki með réttu, en hinu má heldur ekki gleyma, að liðlaus foringi getur ekki kom- ið miklu til leiðar, hversu ágætur sem hann kann að vera. Jón Sigurðsson hafði góða liðsmenn. Þjóðin fylgdi honum og kaus yfirleitt fylgismenn hans á þing. Þeir þjóðkjörnu þingmenn, sem brugðust í því efni, féllu oftast í næstu kosningum. Það er eftirtektarvert, að þeir þingmenn, sem oftast stóðu fastast með Jóni Sig- urðssyni í frelsisbaráttunni, voru aðallega úr tveim stétt- um manna, sem þó var að nokkru sama stéttin, en það voru prestar og bændur. Þó Jóns Sigurðssonar hafi ver- ið allrækilega minnzt að maklegleikum, og svo muni enn verða gert á hverju ári, þá hefur margra þessara ágætu liðsmanna hans að litlu eða engu verið getið. Sjálft tímarit Þjóðvinafélagsins, Andvari, hefur birt margar ævisögur þingmanna frá dögum Jóns, sem voru honum og stefnu hans andvígir um lengri eða skemmri tíma, en tæplega nema eins bónda, sem jafnan var fylg- ismaður hans á þingi, svo og tveggja presta. Hér verður nú sagt nokkuð frá eyfirzkum bónda, sem sat á Alþingi í 30 ár, samtímis Jóni Sigurðssyni og stóð jafnan við hlið hans í frelsisbaráttunni. Þessi maður var Stefán Jónsson á Steinsstöðum í Öxnadal. Hann var fæddur 30. september (í Alþingismannatali stendur 24. september) árið 1802 á Hlöðum á Þelamörk í Evja- fjarðarsýslu. Þar bjuggu þá foreldrar hans, Jón Jóns- son hreppstjóri og kona hans Þórey Stefánsdóttir frá Litlahóli í Eyjafirði. Stefán fluttist með foreldrum sín- um að Espihóli (Stórhóli) 7 ára gamall og síðan að Lög- mannshlíð í Glæsibæjarhreppi 10 ára. Þar ólst hann síðan upp og var með foreldrum sínum til fullorðins- ára. Ekki hef ég neinar teljandi heimildir um æskuár Stef- áns, enda munu yfirleitt fara litlar sögur af unglingum frá þeim tíma. Fullar líkur eru þó til og jafnvel vissa, að hann hefur notið meiri tilsagnar í æsku, heldur en þá var títt um bændasyni, sem ekki voru beinlínis settir til mennta. Hins vegar hefur Stefán sjálfur skrifað minningar frá æskuárunum. Ekki þó um sjálfan sig, heldur um hið almenna ástand sem þá ríkti í sveit hans og án efa víða um land. Þessi frásögn hans birtist í blaðinu Norðlingi á Akureyri árið 1879. Samkvæmt henni hefur ástandið verið mjög bágborið á æskuárum hans. Fólkið svalt og vanhagaði um flestar nauðsynjar. Orsakir þess hallæris virðast hafa verið tvenns konar: Hart tíðarfar með hafísum o. s. frv. Af því leiddi gras- leysi og lítinn heyfeng, en kunnátta lítil til jarðræktar og verkfæri léleg. Sjávarafli var og lítill, að nokkru vegna hafísa, og svo vantaði sæmileg skip og veiðar- færi til sjósóknar. I öðru lagi má með fullum rétti segja, að þá hafi verið eins konar „móðuharðindi af manna- völdum“, það er að segja af völdum Dana. Þeir höfðu verið bandamenn Napoleons í styrjöldum hans, að vísu að nokkru tilneyddir vegna ofbeldis Breta við þá. Af því leiddi svo m. a. siglingabann til Islands um tíma og gífurleg verðhækkun erlendra vara hér. Þegar svo veldi Napoleons hrundi, varð danska ríkið gjaldþrota og því fylgdi gífurlegt gengisfall á dönskum seðlum, en þeir voru einnig gjaldmiðill hér og helzt í höndum almenn- ings af peningum. Þá keyrði um þverbak með verzlun- ina, sem var svo til öll í höndum Dana. Utlendar vörur hækkuðu í samræmi við gengisfallið, en afurðir lands- manna ekki að sama skapi. Fólkið gat því ekki keypt nauðsynjar sínar og hreint og beint hungur og vöntun á öllu, sem hafa þurfti, fylgdi í kjölfarið. Sem dæmi um ástandið segir Stefán, að hann hafi séð „eitt lík jarðað kistulaust“. I annað sinn sá hann að „skíðagarm- ar voru notaðir til viðbótar líkkistu. Og einn hrepp- stjóri tók það til ráða, að hann lét slá rimla á gafl- myndir langsum og strengdi svo skinn um, en botn- fjölin var heil.“ Auðvitað var í bæði skiptin verið að jarða þurfamenn, en þetta sýnir þó trjáviðarskortinn, sem þá var. Horfellir á búfé var algengur, enda gekk heyskapur illa, m. a. sökum þess, að varla fékkst jám í Ijái né brýni til að hvetja þá með. Matarskortur var mikill og leið fátækara fólk — en það var margt — hreint og beint hungur, eða svo hlýtur að hafa verið með þann matarskammt, sem Stefán segir að hafi ver- ið algengur meðal þess. Jafnvel á hinum efnaðri heim- ilum, eins og hjá foreldrum Stefáns, varð að gæta hinn- 414 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.