Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1985, Blaðsíða 12

Heima er bezt - 01.04.1985, Blaðsíða 12
fatnaði og plöggum og hvarf með það á brott. Nokkru síðar kom hún aftur, ásamt Steina litla, og höfðu þau þá meðferðis bakka með smurðu brauði og heitu tevetni, ásamt laki og verum í rúmið, sem konan bjó um mér til næturhvíldar. Ég gerði því, sem fram var reitt, góð skil, því svangur var ég orðinn og kom vel heitur drykkurinn. Stakk ég mér síðan í hvíluna, en þau hurfu út úr herberginu með sitt dót. Mér þótti nú furðu vel hafa skipast um minn hag, hvað sem morgundag- urinn bæri í skauti sínu, en mér leið þarna vel eins og á stóð, sofnaði fljót- lega og svaf vært og draumalaust til morguns. 9 Botníu seinkar um 10 daga. Hugmyndin að stofnun Framsóknar- flokksins í fæðingu? Ég var rétt nývaknaður, og skíma sást í glugga, þegar Steini litli kom inn til mín með ytri fötin mín, alveg þurr, og klæddist ég þeim hið skjótasta. Eftir litla stund kom hann aftur og hafði þá meðferðis kaffi og brauð mér til morgunverðar, sem ég neytti með góðri lyst. Ég hafði kvöldið áður á ferðalagi okkar Steina um Seyðis- fjarðarbæ sagt honum, að ég ætti þar á afgreiðslu e/s Sterlings farangur minn, þar með rúmfatnað. Hann sagði bezt að ná í þetta, því ég gæti fengið að vera í þessu herbergi, með- an ég biði eftir Botníu, en betur kæmi sér, að ég notaði mín rúmföt, úr því ég hefði þau handbær. Einnig sagði hann, að óskað væri eftir, að ég gæti fengið mér fæði annars staðar, og mundi ekki ómögulegt, að það væri fáanlegt á gistihúsinu, þó gistirúm væri þar allt upptekið. Steini litli náði nú einhvers staðar í handkerru, og með hana héldum við suður á Búðareyri að sækja farangur minn, sem var koffort og rúmfatapoki og gekk það fyrirstöðulaust, en búið var að nema burt úr rúmstæðinu rúmfötin, sem ég svaf við um nóttina, svo ég gat strax gengið frá mínum þar. Hafði ég svo herbergið fyrir mig þá tíu daga, sem ég beið þarna eftir Botníu. Ég fékk að vita það síðar hjá Steina litla, að þetta var herbergi rosknu konunnar, sem var systir Þorsteins eldra og ráðskona hans, en móður- systir Steina litla. Ekkert veit ég fyrir víst, hvar konan hafðist við, meðan ég svaf í herberginu hennar, enda spurði ég ekki um það, en mig grunaði, að hún hefði flutt í herbergið til Steina litla. Ég sá hana aldrei þessa daga, sem ég dvaldi þarna, frá fyrsta morgninum, sem áður er frá sagt, til kvöldsins, þegar ég fór um borð í Botníu sem síðar verður getið. Þegar við Steini litli sóttum farang- urinn minn á afgreiðsluna, komum Seyðisfiörður 1916 Myndin er tekin sama ár og Hólmsteinn beið eftir Botníu á Seyðisfirði í 10 daga. Goðafoss leggst þarna að Garðarsbryggju, en hann strand- aði við Straumnes skömmu síðar. Þetta var á heimsstyrjaldarárun- um fyrri og fyrir neðan nafn skipsins á hlið þess stendur stærri stöfum: DANMARK. við á gistihúsið Skaftfell, sem var í leiðinni, og spurðum um fæði fyrir mig. Það var fyrirstöðulaust að fá þar keyptar lausar máltíðir að vild. Gekk ég því þangað daglega til að matast, en keypti sjaldan nema eina máltíð á dag, af sparnaðarástæðum, en keypti mjólk á bóndabýlinu Firði, sem var stuttan spöl frá Öldunni, nær fjalls- hlíðinni. Ég fór þangað daglega með þriggja pela flösku og fékk mjólk á hana, og kostaði það 15 aura í hvert sinn, en brauð fékk ég í brauðgerðar- húsi, ekki heldur langt í burtu. Kaffi drakk ég ekki þessa daga, en fann ekki, að ég saknaði þess. Þarna á Skaftfelli, sem ég borðaði miðdegisverð minn, var marga að fæða um þessar mundir, miklu fleiri en þar voru til gistingar. Þarna voru m.a. nokkrir alþingismenn af Norð- urlandi og Norður-Múlasýslu, og ekki sátu menn þama þegjandi, en lítinn þátt tók ég í þeim umræðum, sem þar fóru fram. Þorsteinn M. Jónsson telur, að þarna hafi fæðzt hugmyndin að stofnun Framsóknarflokksins, sem varð að veruleika á þessum í hönd farandi vetri, og má hann gerst um það vita, þar sem hann var meðal gestanna þarna, þá nýkjörinn al- þingismaður á fyrstu ferð sinni til Al- þingis, glæsilegur ungur maður, sem dró að sér tilheyrendur. Ég kynntist honum ekkert þá, enda tók ég lítinn þátt í því, sem þarna var spjallað. 124 Heima erbezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.