Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1985, Blaðsíða 17

Heima er bezt - 01.04.1985, Blaðsíða 17
varlega og vera lengi. En samt kom loks að því að máltíðinni lauk. Gestinum var boðið að vera um nóttina og ég sá mína „sæng út- breidda“, til fóta. Gestakoman olli uppnámi í huga mínum. Minni áhrif hafði hún á foreldra mína og systur sem var á sjötta ári. Kýrnar voru mjólkaðar, þegar tími var til kominn og þegar búið var að „ganga frá“ mjólkinni voru Passíusálmarnir lesn- ir. Ekki man ég fyrir víst, hvort gest- urinn bauðst til að lesa, en mér er nær að halda að svo hafi verið. Að minnsta kosti hóf hann mikla trúarlega um- ræðu, þegar lestrinum var lokið. Að vísu talaði hann jafnan einn og án af- láts og við hin hlustuðum á. Fátt af því sem hann sagði festist í minni mínu en nokkuð þó. „Guð gaf mér röddina aftur eftir alla brjósthimnubólguna,“ sagði hann, „til að ég gæti flutt boðskap hans.“ En ógleymanlegast verður mér alla tíð, þegar hann þuldi yfir okkur lífsreynslusögu sína þetta síðvetrar- kvöld. Hvernig hann eitt sinn varðist djöflinum í örvæntingu og jafnvel heitustu bænir virtust ekki koma að notum gegn óvininum, sem nálgaðist hann stöðugt vegna þess hve hann sjálfur var syndugur og hafði talað ljótt. Og þegar ekki varð annað séð en að öllu væri lokið fyrir þessum vesal- ingi birtist þá ekki Frelsarinn sjálfur á úrslitastundu. Slík kynngi fylgdi frásögninni, að ég var lamaður af ótta og skelfingu, svo að ekkert sem ég hafði áður heyrt komst í samjöfnuð, nema ef vera kynni frásögnin af Glámi í Grettis- sögu, sem ég hafði nýlega stautað mig fram úr. Lengi á eftir sá ég andskotann fyrir mér í hrikalegri mynd, þegar fór að halla degi, og jafnvel um hábjartan dag gat ég ekki hætt að hugsa um hann. Daginn eftir fór gesturinn. Eitthvað af smábæklingum skildi hann eftir sem þóknun fyrir næturgreiðann. Ég held að ekkert af slíku hafi verið keypt heima hjá mér. Líklega hefur þó til- gangur hans með þessu ferðalagi ver- ið sá að bjóða slíka vöru til kaups. STEFÁN ÁGÚST: Séð um vesturgluggann Heiður himinn hjúpaður kvöldroða. Haust lœðist hœgt yfir hœðir og dœldir, háttar í skugga. Hinum megin fylling fegurðar, sem í fölva haustkveðju býr. Turnar bera við blikandi himin, breiðist dökkviyfir allt, sem að mér snýr. Fjœrst er háreist Hallgrímskirkja, í hennar skjóli tign Guðs býr. Háteigskirkja er har/a nœrri, víst er hún augnayndi. A Esjuna skyggir skeleggur sjóhalíarturn, útlínur hans eru sem hrönn, sem undrun mér vekja og spurn. Þessi kynjamynd af kveðju haustsins er kynngi vígð, sem í vor. Sólin steig þá sömu spor. Aðeins munurinn sá að allt var á uppleið þá, og óður minn flaug á fagnandi vængjum í faðminn á gróðursþrá. Núna sé ég rósir sofna og svífa inn í haustsins kul. Haustið virðist samt vorinu líkt. Hvað veit ég um þess dul? 1983

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.